Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 4
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
SAMFÉLAGSMÁL Lögmaður eins af
fórnarlömbunum í Landakotsmál-
inu ætlar að höfða mál á hendur
kaþólsku kirkjunni fái umbjóðandi
hans ekki afrit af þeim hluta skýrslu
fagráðs kirkjunnar er varðar hann.
Umræddur maður sætti grófu
ofbeldi af hálfu starfsmanna Landa-
kotsskóla árum saman. Margir
mánuðir eru frá því að fyrst var
beðið um afrit úr skýrslunni.
Í bréfi sem Guðrún Björg Birg-
isdóttir, lögmaður mannsins, ritar
Pétri Bürcher biskupi í byrjun októ-
ber í fyrra er ósk um afrit ítrekuð.
Í bréfinu er því meðal annars haldið
fram að biskup kaþólsku kirkjunnar
á Íslandi hafi látið hjá líða að aðhaf-
ast nokkuð í máli mannsins. „Með
því að aðhafast ekki hafi biskup
vanrækt skyldur sínar.“
Mánuði síðar er bréfi Guðrún-
ar svarað og þar kemur fram að
umbjóðandi hennar fái persónulegt
svar frá kirkjunni 15. nóvember.
Því er hins vegar hafnað að hann
fái afrit úr skýrslunni.
Guðrún hefur mörgum sinn-
um ítrekað við Bürcher biskup að
maðurinn vilji fá að sjá þann hluta
skýrslunnar sem varðar hann, jafn-
framt hefur verið farið fram á að fá
afrit af almennum hluta hennar.
Það var svo í fyrradag sem svar
barst. Í því segir að skýrsla fag-
ráðs kaþólsku kirkjunnar á Íslandi
sé ætluð til innri nota fyrir stjórn
kirkjunnar en ekki til almennrar
dreifingar. Á þeim grundvelli hafi
stjórn kaþólsku kirkjunnar ákveð-
ið að verða ekki við beiðni um að fá
sendan almenna hluta skýrslunnar.
Sama dag ítrekar lögmaðurinn
beiðni um afrit af skýrslu fagráðs
vegna umbjóðanda síns.
„Vinsamlegast athugið að ekki
er ætlunin að skýrslan verði send
í almenna dreifingu en það er eðli-
leg krafa að umbjóðandi minn fái
afrit af gögnum sem varða með-
ferð hans kröfu,“ segir Guðrún
Björg í tölvupósti til lögmanns
kirkjunnar. Ef ekki verði orðið
við þessari ósk sé ekki önnur leið
í stöðunni en að höfða mál til þess
að fá gögnin.
„Mikið væri það nú ánægjulegt og
löngu tímabært að kaþólska kirkjan
á Íslandi myndi í þessu máli sýna
á sér ímynd þar sem kristileg gildi
og mannvirðing er höfð í hávegum,“
eru lokaorðin í bréfinu.
johanna@frettabladid.is
Kaþólsku kirkjunni
hótað málaferlum
Lögmaður manns sem beittur var kynferðislegu ofbeldi í Landakotsskóla ætlar
að höfða mál á hendur kaþólsku kirkjunni fái hann ekki afrit af gögnum fagráðs
kirkjunnar er varða umbjóðanda hans. Kirkjan segir gögnin ekki til dreifingar.
Fagráð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi var skipað í byrjun nóvembermán-
aðar 2012. Hlutverk þess var að veita álit um bótarétt þolenda kynferðis-
ofbeldis eða annars ofbeldis innan Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi í ljósi
skýrslu rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar. Þá átti fagráðið að koma
með tillögur til úrbóta um breytingar á starfsháttum ef upp koma ásakanir
um kynferðisbrot eða önnur ofbeldisbrot. Fagráði kaþólsku kirkjunnar
bárust 17 kröfugerðir vegna ofbeldis eða kynferðislegrar misnotkunar.
Kirkjan taldist ekki bótaskyld nema í einu máli, sem var fyrnt.
Fagráð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi
VEÐUR Segja má að hinn eiginlegi fyrsti sumardagur hafi verið á höfuð-
borgarsvæðinu í gær. Enda voru sundlaugarnar troðfullar af fólki sem
tók sólinni og hitanum sem henni fylgdi opnum örmum.
„Það er búið að vera fullt af fólki, allir að njóta blíðunnar,“ sagði Bryn-
dís Ólafsdóttir, vaktstjóri í Laugardalslaug, þar sem ljósmyndari Frétta-
blaðsins leit við. „Það er mikil gleði búin að vera í dag og rosafjör og
greinilegt að sumarið er komið.“
Hitinn skreið yfir 20 stig í innsveitum Suður- og Vesturlands. Í Húsafelli
mældist hitinn 21,1 stig. Í dag er spáð hita á bilinu 15 til 22 stig í innsveit-
um. Búist er við áframhaldandi veðurblíðu alla hvítasunnuhelgina. - fb
Sérlega gott veður með sól í heiði víða um land í gær:
Njótum áfram hitans í blíðunni
Það eru
aðeins fimm
dagar þangað til
heimsmeistara-
mótið í knatt-
spyrnu hefst í
Brasilíu.
5
5.000
færri kjörseðlum var breytt í
nýliðnum borgarstjórnarkosning-
um en í kosningunum árið 2010.
stigahæsti skákmeistarinn
á Íslandsmótinu í skák,
Guðmundur Kjartansson,
varð Íslandsmeistari í
vikunni.
Sjöundi
Útlit er fyrir að 100 ára gamall silfurreynir við
Grettisgötu verði felldur vegna hótelbyggingar.
DÓMSMÁL
Hæstiréttur
Íslands hafn-
aði í gær beiðni
Kim Gram
Laursen, barns-
föður Hjördísar
Svan Aðalheið-
ardóttur, um að
fá börnin þeirra
þrjú afhent.
Laursen höfðaði mál gegn
barnaverndarnefnd Reykjavíkur
í von um að fá dæturnar og vann
málið í Héraðsdómi Reykjavík-
ur. Barnaverndarnefnd áfrýj-
aði til Hæstaréttar sem segir að
Laursen hefði átt að beina mál-
inu að ömmu barnanna en ekki að
barnaverndarnefnd. Hjördís situr
í fangelsi í Horsens fyrir ólöglegt
brottnám á börnunum. - sáp
Hæstiréttur hafnaði beiðni:
Dæturnar ekki
til Danmerkur
Allt að 22 stiga hitabrækju er
spáð í hitabylgju um helgina;
vorið er sagt það besta í 50 ár.
ferðamenn hafa þegar heimsótt Ísland á
þessu ári, þótt aðalferðamannatíminn sé
rétt að hefjast.
300.000
100
FÆR EKKI GÖGN FRÁ KIRKJUNNI Einn þeirra sem beittur var kynferðislegu
ofbeldi í Landakotsskóla vill fá að vita hvaða niðurstöðu Fagráð komst að í máli
hans.Kaþólska kirkjan neitar að afhenda afrit af gögnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HJÖRDÍS SVAN
31.05.2014 ➜ 06.06.2014
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
helgi í öllum
verslunum
Fjarðar
Tax Free
Lifandi
laugardagur
– í miðbæ Hafnarfjarðar
SVEITARSTJÓRNARMÁL Jenný Jóa-
kimsdóttir, sem skipaði annað
sæti lista Framsóknar í Hafnar-
firði í nýliðnum sveitarstjórnar-
kosningum, hefur sagt sig úr
flokknum.
„Ástæðan er sú ásýnd sem
flokkurinn er að fá í fjölmiðlum
og það sem enn hefur ekki verið
fordæmt á skýran hátt af forystu
flokksins. Svona tal sem er að
birtast frá sumum flokksfélögum
ofbýður mér hreinlega og gengur
gegn mínum grundvallarhugsjón-
um,“ segir Jenný á Facebook-síðu
sinni. Greinilegt er á Jennýju að
hún er ósátt við að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson hafi ekki
tekið skýra afstöðu hvað varðar
ummæli oddvita Framsóknar í
Reykjavík er varða lóðaúthlutun
vegna mosku í borginni. - ktd
Ofbauð tal flokkssystkina:
Frambjóðandi
úr Framsókn
VEÐURSÆLD Gestir Laugardalslaugar flatmöguðu í vaðlauginni og létu sér líða vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HVÍTASUNNUHELGIN og veðrið leikur við landsmenn. Víða bjart í dag og á morgun
en dregur fyrir smám saman á morgun fyrst SA-til. Víða dálítil rigning á mánudag.
Hlýtt í veðri, hiti 22 stigum í dag og á morgun, hlýjast í innsveitum.
11°
4
m/s
10°
3
m/s
14°
3
m/s
13°
3
m/s
Víða 3-8
m/s
Fremur
hægur
vindur
Gildistími korta er um hádegi
27°
33°
23°
27°
19°
18°
30°
19°
19°
24°
24°
31°
28°
30°
28°
27°
23°
29°
13°
2
m/s
11°
3
m/s
16°
3
m/s
12°
4
m/s
16°
2
m/s
12°
2
m/s
14°
2
m/s
17°
13°
10°
8°
12°
11°
13°
14°
15°
10°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN
14°