Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 10

Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 10
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Samskipti milli NATO og Rússlands voru að mestu sett á ís eftir að Rússland yfirtók Krímskaga, sem áður tilheyrði Úkraínu. Einu samskiptin sem átt hafa sér stað síðan þá eru tveir fundir sem sendiherrar NATO-ríkjanna í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel hafa átt með sendiherra Rússlands. Seinni fundurinn fór fram að ósk rússneska sendiherrans síðast- liðinn mánudag. Hljóðið í embættismönnum sem sátu fundinn var afar þungt að honum loknum. Háttsettur embættismaður NATO sagði, í samtali við Fréttablaðið, að það virtist hafa lítinn sem engan tilgang að eiga í þessum samskiptum. Rússneski sendiherrann hefði aðeins endurtekið „áróðurinn“ sem áður hefði komið frá Pútín Rússlandsforseta. Rætt er um það í fullri alvöru að skera algerlega á öll samskipti NATO við Rússland, en engin ákvörðun hefur enn verið tekin um það. Flestir þeirra, sem Fréttablaðið hefur rætt við, telja mikilvægt að halda þessari samskiptaleið opinni. Það bíður nú leiðtogafundar aðildarríkja NATO, sem haldinn verður í Wales í Bretlandi í byrjun september, að ákveða hvernig samskipti bandalagsins við Rússland verða á næstunni. Ljóst er að innrás Rússa á Krímskaga og stuðningur við átök að- skilnaðarsinna í austanverðri Úkraínu er áfall fyrir þá sem stóðu að samskiptum við Rússland innan NATO. Rússland var fram að því í afar góðu sambandi við NATO, jafnvel betra en ríki eins og Georgía, sem sækjast eftir því að fá aðild að bandalaginu. Ekkert útlit er fyrir að samskiptin við NATO muni aukast á næstunni. „Komið ykkur burtu frá Krímskaga, þá skulum við ræða málin,“ sagði háttsettur embættismaður NATO, sem var í talsverðu uppnámi eftir fundinn með sendiherra Rússlands á mánudag. „Komið ykkur burtu frá Krímskaga“ HERNAÐUR Í ÚKRAÍNU Aðferð rússneskra stjórnvalda við að innlima Krímskaga og skapa óstöðugleika í Úkraínu kom aðildarríkjum NATO í opna skjöldu. NORDICPHOTOS/AFP NATO gerði við Rússland árið 1997 skuldbindur bandalagið sig til að staðsetja ekki varanlega hersveitir sem búnar eru til bardaga í nýjum aðildarríkjum NATO í Austur-Evr- ópu, til dæmis Rúmeníu, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Rússar hafa raunar rofið það samkomulag, til dæmis með því að virða ekki landa- mæri Úkraínu, en aðildarríki NATO hyggjast enn um sinn standa við sinn hluta samkomulagsins. Aðgerðir Rússlands komu á óvart Andrúmsloftið í höfuðstöðvum NATO er talsvert breytt eftir aðgerðir Rússlands í Úkraínu. Eftir endalok kalda stríðsins þurfti bandalagið að endurskilgreina hlut- verk sitt, og lagði í kjölfarið áherslu á hreyfanlegan herafla og hernaðar- aðgerðir utan bandalagsríkjanna, til dæmis í Afganistan. Nú virðist áherslan vera að breyt- ast aftur og aðildarríkin munu leggja áherslu á uppbyggingu varna bandalagsríkjanna gegn utanað- komandi ógn. Eftir að hafa dreg- ið úr útgjöldum til varnarmála er líklegt að mörg aðildarríkjanna kjósi að auka útgjöldin á ný, og hafa stjórnvöld í Póllandi þegar lýst því yfir að útgjöldin verði aukin umtals- vert. Áhersla NATO hefur verið á aðgerðir bandalagsríkja í Afganist- an, en beinum hernaðaraðgerðum á að öllu óbreyttu að ljúka fyrir lok árs. Eftir það er áformað að aðeins ráðgjafar af ýmsu tagi verði eftir í landinu til að aðstoða stjórnvöld, þótt það velti á því að sá sem nær kjöri sem forseti að lokinni ann- arri umferð í forsetakosningum í landinu á næstunni samþykki slíka aðstoð. Endalok þátttöku NATO í hern- aðaraðgerðum í Afganistan hefði undir venjulegum kringumstæðum verið stærsta umræðuefnið í höf- uðstöðvum bandalagsins, en þessa dagana kemst varla annað málefni en aðgerðir Rússlands í Úkraínu að. Frá því Rússland innlimaði Krím- skaga hafa sérfræðingar bandalags- ins rætt fátt annað en viðbrögð við þessum óvæntu hernaðaraðgerðum. Það er óhætt að segja að segja að aðgerðir Rússlands hafi komið á óvart. Einn heimildarmaður Frétta- blaðsins orðaði það þannig að aðeins nokkrir kaldastríðsjálkar innan NATO hefðu spáð því að Rússland hygðist innlima Krímskaga, en á þá hefði lítið verið hlustað. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur reynst óútreiknanlegur, og þó það gæti verið freistandi að reyna að meta hvað hann gæti tekið sér fyrir hendur næst er lítil áhersla lögð á það innan NATO að rýna í þá kristalkúlu, segir háttsettur emb- ættismaður innan NATO. Áherslan er þess í stað lögð á að treysta varn- ir aðildarríkjanna. Ástandið við Eystrasaltið ólíkt NATO þarf ekki aðeins að móta póli- tísk viðbrögð við aðgerðum Rúss- lands, heldur þarf einnig að ákveða hvernig hægt er að bregðast við verði svipaðar aðferðir notaðar til að ráðast á bandalagsríki og Rúss- land hefur beitt í Úkraínu. Þar hefur rússneskumælandi minnihluta verið beitt gegn stjórnvöldum, hann vopn- aður og studdur frá Rússlandi, undir því yfirskini að verja þurfi rúss- neskumælandi íbúa fyrir yfirgangi stjórnvalda í Kænugarði. Þetta vekur óhjákvæmilega ugg í brjóst- um stjórnvalda í Eystrasaltsríkjun- um, sem eru með stóran minnihluta rússneskumælandi íbúa. Rússneska þingið hefur veitt for- seta landsins heimild til að ráðast inn í önnur ríki til að verja rúss- neskumælandi íbúa þeirra, sem hefur vakið vægast sagt litla hrifn- ingu meðal stjórnvalda í Moldóvu, Eystrasaltsríkjunum og víðar. Mun- urinn á Úkraínu og Moldóvu annars vegar og Eystrasaltsríkjunum hins vegar er að þau síðarnefndu eru aðilar að NATO, og í stofnsáttmála bandalagsins er það skýrt að árás á eitt ríki jafngildi árás á þau öll. Heimildarmenn Fréttablaðsins í höfuðstöðvum NATO voru sam- mála um að þótt aðgerðir Rússlands í Úkraínu væru ekki hernaðarað- gerðir í venjulegri skilgreiningu þess orðs, enda ekki um eiginlega innrás merktra hermanna að ræða, væri líklegt að sams konar aðgerðir í aðildarríki NATO yrðu tilefni til þess að beita fimmtu grein stofn- sáttmála bandalagsins. Þar segir að árás á eitt ríki jafngildi árás á þau öll. Því ákvæði hefur aðeins verið beitt einu sinni í sögu NATO, eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkj- unum 11. september 2001. Gera ráð fyrir hinu óvænta Ástandið í aðildarríkjum NATO er þó að mörgu leyti ólíkt ástandinu í Úkraínu og erfiðara að beita sömu aðferðum til að draga úr stöðugleika þar. Stjórnmálaástandið í Úkraínu var mjög óstöðugt þegar aðskilnað- arsinnar hófu baráttu sína á Krím- skaga. Eystrasaltsríkin eru öll aðil- ar að Evrópusambandinu og NATO, og stjórnarfar þar hefur verið stöðugt. Þetta þýðir að sömu aðferðir munu ekki hafa jafn mikil áhrif og í Úkraínu. En ef Pútín Rússlands- forseti hefur sýnt eitthvað á undan- förnum mánuðum þá er það það að andstæðingar hans þurfa að gera ráð fyrir hinu óvænta. Heimsmynd aðildarríkja Atlants- hafsbandalagsins (NATO) var umturnað svo að segja á einni nóttu eftir að Rússland sendi ómerkta hermenn yfir landamæri Úkraínu og vopnaði rússneskumælandi aðskilnaðarsinna í landinu, fyrst á Krímskaga og síðar í austanverðri Úkraínu. Frá lokum kalda stríðsins hefur NATO reynt að finna sér hlutverk í breyttum heimi, með aukinni áherslu á aðgerðir utan bandalags- ríkjanna. Hafi NATO verið í tilvist- arkreppu er henni lokið, enda fór Rússland frá því að vera samstarfs- aðili bandalagsins í hlutverk and- stæðings þess, svo að segja á einni nóttu. Varnarmálaráðherrar aðildar- ríkja NATO hittust í höfuðstöðvum bandalagsins í vikunni. Þetta var fyrsti fundur ráðherranna frá því að Rússland innlimaði Krímskaga í lok febrúar síðastliðins. Ráðherr- arnir ræddu viðbrögð við aðgerðum Rússlands og áhrif þeirra á stöðug- leika í Evrópu á fundum á þriðjudag og miðvikudag. Fyrir fram var ekki búist við því að ráðherrarnir tækju stórar ákvarðanir á fundinum, enda fundurinn meðal annars haldinn til að undirbúa leiðtogafund NATO sem haldinn verður í Wales í Bretlandi í byrjun september þar sem stóru ákvarðanirnar verða teknar. Stærsta ógnin við stöðugleikann „Það er of snemmt að segja til um langtímaáhrifin af þessum aðgerð- um Rússlands nú þegar um það bil 90 dagar eru liðnir frá því þessi atburðarás fór af stað, en það er ljóst að þetta er stærsta ógnin við stöðugleika í Evrópu frá tímum kalda stríðsins,“ sagði Douglas Lute, sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO, í samtali við fjölmiðlamenn á mánudag. Hann sagði leiðtoga bandalags- ríkjanna þurfa að ákveða hver við- brögð NATO til lengri tíma verði. Þegar hafi verið brugðist við með því að aðstoða stjórnvöld í Úkraínu eftir megni, auka loftvarnir Eystra- saltsríkjanna og standa fyrir sam- eiginlegum æfingum bandalags- ríkja í Póllandi og Rúmeníu. Háttsettur embættismaður hjá NATO sagði að meðal þess sem bandalagið muni íhuga sé að fjölga heræfingum í bandalagsríkjum sem eiga landamæri að Rússlandi, og bæta í herafla NATO í þeim ríkjum. Samkvæmt samkomulagi sem Tilvistarkreppa NATO á enda Atlantshafsbandalagið er ekki lengur í þeirri stöðu að finna sér nýtt hlutverk í breyttum heimi eftir að rússneski björninn sýndi klærnar í Úkraínu í febrúar. Hernaðaraðgerðir Rússlands í Úkraínu þykja sýna fram á þörfina fyrir bandalagið og hefðbundnar varnir bandalagsríkja. ÚKRAÍNA Í FORGRUNNI Varnarmálaráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins funduðu í Brussel í vikunni og fjölluðu meðal annars um langtímaviðbrögð NATO við inn- limun Rússlands á Krímskaga. Anna Jóhannsdóttir, sendiherra Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu, sem situr fyrir miðri mynd, sat fundinn fyrir Íslands hönd. MYND/NATO Brjánn Jónasson Skrifar frá Brussel brjann@frettabladid.is Það er ljóst að þetta er stærsta ógnin við stöðugleika í Evrópu frá tímum kalda stríðsins. Douglas Lute, sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO VITA er lífið VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Tilboðsverð á mann frá 99.900 kr. ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 6 94 79 6 /2 01 4 Örfá sæti laus Bodrum á tilboði 12.–26. júní m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2ja til og með 11 ára, 12. júní í 2 vikur. Verð á mann m.v. 2 fullorðna 135.500 kr. – Flugsæti 49.900 kr. Innifalið: Beint flug og gisting í herbergi á hótel Eken með „öllu inniföldu“ í 2 vikur. ASKÝRING | 10 RÚSSAR UMBYLTU HEIMSMYND NATO-RÍKJANNA Á EINNI NÓTTU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.