Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 18
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
Það er varla hægt að tala um hamborgara hér á landi án þess að Tómas Andrés Tómasson, betur þekktur sem Tommi, ber-ist í tal. Hann hefur ýmsa
fjöruna sopið í veitingahúsageiran-
um en þegar hann opnaði Tomma-
borgara fyrst árið 1981 grunaði
hann ekki að 33 árum síðar yrði
hann kominn í útrás með borgar-
ana góðu undir nafni Hamborgara-
búllu Tómasar eða Tommi ś Burger
Joint. Nú eru fimm staðir á höfuð-
borgarsvæðinu og einn á Selfossi,
tveir í London, einn í Berlín og svo
eru fyrirhugaðar opnanir á næst-
unni í Kópavogi, Kaupmannahöfn
og Ósló.
Tommi sér um að reka staðinn
á Bíldshöfða en aðrar Búllur eru
reknar sjálfstætt með öðrum eig-
endum en í svokölluðum nafnleigu-
samningi eða „franchise agree-
ment“. Tíu ár eru síðan Tommi
opnaði Búlluna á Geirsgötunni, í
þá hálffokheldu húsi sem áður hýsti
Hafnarvigtina og Kaffi Skeifu,
en hafði staðið autt um árabil við
Reykjavíkurhöfn. Svæðið hefur
aldeilis blómstrað á síðustu árum.
Átti ekki fyrir símanum
„Ég ætlaði að setjast í helgan stein
þarna fyrir tíu árum, nýbúinn að
selja Borgina og ætlaði að fara að
lifa lífinu. Ég fór til Argentínu í tvo
mánuði að dansa tangó en vaknaði
svo upp við vondan draum þegar
ég kom heim. Ég var með frelsi á
símanum en til þess að fylla á hann
500 krónur þurfti ég að taka pen-
inga af þremur mismunandi banka-
reikningum. Það var ekki í lagi og
ég fór að hugsa hvað ég gæti gert til
að lifa af. Ég var alveg blankur. Þá
komu synir mínir, Ingvi og Tommi,
með þá hugmynd að opna hamborg-
arastað. Mér fannst það afleit hug-
mynd enda var ég búinn með þann
kafla en þeir náðu að sannfæra
mig,” segir Tommi þar sem hann
tekur á móti blaðamanni rétt fyrir
hádegistraffíkina uppi á Höfða.
Starfsfólkið er að hita grillið og
Tommi býður upp á kleinu og kaffi í
notalegu umhverfi. Búllurnar bera
allir sama yfirbragð, amerísk vega-
sjoppustemming með hressandi
tónlist og fjölbreyttu veggskrauti.
„Þetta er nú bara samtíningur
héðan og þaðan. Svona skipulagt
kæruleysi. Í takt við matinn. Ham-
borgarinn er skyndibiti, eins og
pulsan, nema það er meiri athöfn
að borða borgarann. Tekur um tíu
mínútur og svo ertu farinn. Bás-
arnir hér eru til dæmis frá Hard
Rock, ég keypti allar innréttingar
þaðan þegar staðurinn lokaði.“
Tómas hefur rekið fjöldann
allan af veitingastöðum hér á
landi. Stundum hafa þeir sleg-
ið í gegn og stundum ekki. Meðal
þeirra sem hafa verið í hans eigu
eru áðurnefndur Hard Rock, stað-
ur sem Tommi segir vera flottasta
veitingastað sem opnaður hefur
verið hér á landi, Amma Lú, Kaffi-
brennslan, Glaumbar, Tommaborg-
arar og Hótel Borg.
Þúsund hamborgarar á dag
En af hverju fór Tommi, sem er
menntaður matreiðslumaður sem
kláraði Verslunarskólann og er með
gráðu í hótel- og veitingarekstri frá
Bandaríkjunum, að steikja ham-
borgara á sínum tíma?
„Það er svo sem ekki flókið. Það
var ekkert annað í boði. Ég var
búinn að skíta í buxurnar og brenna
allar brýr að baki mér ef svo má
að orði komast. Ég var nýkominn
úr meðferð, aleinn og yfirgefinn
fannst mér en var það auðvitað
ekki, og stökk á það fyrsta sem
mér bauðst, að snúa hamborgurum
á stað sem vinur minn opnaði og
hét Winnies. Þetta var 1980 en ári
seinna ákvað ég að stofna Tomma-
borgara sjálfur. Ég átti engan pen-
ing en keypti græjur fyrir helm-
inginn af peningnum sem ég hafði
milli handanna. Græjurnar áttu
að lokka viðskiptavini í heimsókn,
sem þær gerðu. Þær vöktu athygli
en auðvitað er galið hversu dýrar
þær voru þar sem þær þjónuðu
engu hlutverki á staðnum öðru en
að spila tónlist,“ rifjar Tommi og
glottir. Fyrsti staðurinn var opnað-
ur á Grensásvegi og varð fljótlega
geysilega vinsæll. „Þetta var mikið
ævintýri. Við seldum um þúsund
hamborgara á dag. Ætli ég hafi
ekki verið búinn að selja um milljón
hamborgara þegar ég hætti.“
Tommi kennir kappseminni um
að Tommaborgarar gengu ekki sem
skyldi en hann opnaði annan stað
samhliða veitingastaðnum, ung-
lingaskemmtistaðinn Villta tryllta
Villa. „Við ætluðum að opna sex
staði á 16 mánuðum. Það reyndist
of mikið en svo var skemmtistaður-
inn dýrari í innréttingum en allir
Tommaborgarastaðirnir til sam-
ans,“ segir Tommi sem seldi stað-
ina eftir endurskipulagningu og
fór í árs frí til Los Angeles þar sem
Hard Rock-ævintýrið hófst.
105 kíló í bekk
Tommi gefur sjálfur lítið fyrir titla
á borð við guðföður hamborgarans
eða hamborgarakónginn eins og
margir hafa kallað hann. „Sumir
segja að ég hafi komið með ham-
borgaramenninguna til landsins en
það er bara ekki rétt. Ég bragðaði
minn fyrsta hamborgara á Ísborg
fyrir 50 árum, þá 14 ára gamall.”
Galdurinn á bak við borgara
Tomma liggur í kjötinu og ein-
Fannst Búllan afleit hugmynd
Tómas Andrés Tómasson er gjarnan kallaður guðfaðir hamborgarans hér á landi en tíu ár eru síðan hann vakti hamborg-
arakokkinn af værum blundi. Nú hefur hróður Búllunnar borist út fyrir landsteinana þar sem borgararnir renna ljúflega
niður í Evrópubúa undir ströngu gæðaeftirliti Tómasar sem hefur borðað einn hamborgara á dag síðastliðin tíu ár.
GRILLAR HAMBORGARA Tómas Tómasson hefur grillað óhemju marga hamborgara um ævina og hérna sýnir hann hvernig fagmenn bera sig að. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Álfrún
Pálsdóttir
alfrun@frettabladid.is