Fréttablaðið - 07.06.2014, Blaðsíða 35
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki
til reynslu
Okkar markmið: Að allir íslendingar heyri vel.
Fáðu heyrnartæki
til reynslu
Okkar markmið: Að allir íslendingar heyri vel.
Fyrstu
heyrnartækin
sem tengjast
þráðlaust
við snjalltæki
Heyrðu
u skiptin
Fáðu heyrnartæki
til reynslu
ÚTILEGA UM HELGINA
Fyrsta útileguhelgin er runnin upp og búast
má við að margir vilji fara út úr bænum,
enda löng fríhelgi og frábært veður.
Gott er að muna að akstur og áfengi
eiga ekki leið saman.
GUÐS MAÐUR Hvítasunnudagur er fæðingarhátíð kirkjunnar og verður stór dagur í lífi Helga, sem segist næstum eiga lögheimili í
Fíladelfíu á sunnudögum og prédikar þá á þremur samkomum. MYNDIR/VILHELM
Jesús er mín fyrirmynd og drifkraftur. Til að einfalda málið líki ég sambandi okkar
stundum við raftæki sem stungið
er í samband, eins og blandara
sem er drifinn til að blanda. Jes-
ús er brúin sem tengir okkur við
Guð og lætur lífið ganga upp; allt
kemur heim og saman í gegnum
hann.“
Þetta segir presturinn Helgi
Guðnason sem á morgun hlýtur
blessun Hvítasunnukirkjunnar
sem nýr forstöðumaður, ásamt
Aroni Hinrikssyni, hvítasunnu-
presti á Selfossi. Á sömu hátíðar-
samkomu í Fíladelfíu verður
Verði Leví Traustasyni þökkuð
samfylgdin síðustu sautján ár
sem forstöðumanni, en Vörður
er nýráðinn framkvæmdastjóri
Samhjálpar.
Helgi er fæddur og uppalinn í
kirkjustarfi Hvítasunnusafnaðar-
ins.
„Trúin er ferðalag og ég
ákvað snemma að fylgja Jesúm
og lifa kristnu lífi. Ég er í þessu
af hugsjón, hjarta og sál og hef
sterka köllun. Starfinu fylgir
mikil ábyrgð og það eru for-
réttindi að fá að sinna því sem
er krefjandi og ekki fyrir hvern
sem er. Það má því segja að
starfið velji mann frekar en að
maður velji starfið.“
Helgi er tveggja barna faðir
og verður 32 ára í sumar. Þá á
hann líka tíu ára brúðkaups-
afmæli.
„Við konan mín kynntumst
í kirkjunni og það var ást við
fyrstu sýn. Okkur fannst tilgangs-
laust að bíða þess að gifta okkur
og í Hvítasunnukirkjunni er fólk
hvatt til að vera ábyrgt í sam-
böndum sínum, taka þeim ekki
létt og leika sér ekki að tilfinn-
ingum sínum né annarra. Rétta
leiðin er að bindast maka sínum
fyrir lífstíð og spara sig fram
að hjónabandi. Við vitum þó að
safnaðarmeðlimir eiga alls kyns
sögur að baki og eru ekki illa
innrættir fyrir vikið. Öllum er í
sjálfsvald sett hvernig þeir lifa
sínu lífi en við bendum á réttu
Í FÓTSPORUM AFA
HELGIN Á hvítasunnudag hlýtur Helgi Guðnason prestur blessun sem nýr
forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar. Helgi er sonarsonur Einars heitins
Gíslasonar í Betel og segir margt líkt með þeim tveimur.