Fréttablaðið - 07.06.2014, Side 49
| ATVINNA |
Cohn & Wolfe Íslandi er ráðgjafafyrirtæki á sviði stefnumótandi almanna-
tengsla og stjórnhátta innan Young & Rubicam, Grey Global Group og
WPP Group, stærstu boðmiðlunarsamsteypu í heimi. WPP Group er eina
alþjóðlega fyrirtækið á þessu sviði sem starfrækir eigin skrifstofur á
Íslandi. WPP Group rekur einnig skrifstofu MediaCom hér á landi.
Vaktstjóri á fréttavakt Cohn & Wolfe Íslandi þarf að vera góður
og fjölhæfur penni með kunnáttu til að leita uppi og koma auga
á áhugaverðar upplýsingar – bæði innanlands og utan.
Nauðsynlegt er að hafa fréttanef, geta greint kjarnann frá
hisminu og meðhöndlað fréttir og fréttatengt efni með hliðsjón
af boðskiptastefnu og hentugum boðleiðum hverju sinni. Starf
vaktstjóra er á stigi aðferðamótunar.
Aðferðamótun felst í skipulagningu herferða, vali á boðrásum,
boðleiðum og framsetningu skilaboða.
Cohn & Wolfe Íslandi kallar eftir atvinnuumsóknum. Þú vilt takast á við
skipulagningu á sviði almannatengsla. Vilt læra. Vilt gjarnan fara aðrar
leiðir en venjulega í þeim tilgangi að ná betri árangri en aðrir. Þú vilt
vinna hjá framsæknu alþjóðlegu fyrirtæki í ört vaxandi atvinnugrein.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní nk.
cohnwolfe.is
Í boði er spennandi og fjölbreytt ráðgjafastarf í alþjóðlegu
umhverfi sem felur í sér mikil tækifæri fyrir metnaðarfullan
einstakling. Leitað er eftir faglærðum almannatengli sem býr
yfir eldmóði og metnaði til að leggja á sig það sem þarf til að
sinna almannatengslaráðgjöf á æðsta stigi.
Skarpskyggni, þroski og djúpur skilningur á aðferðafræði eru
eiginleikar sem verða að vera til staðar auk þess sem viðkomandi
verður að ráða yfir hæfileikum til að miðla fagráðgjöf fyrirtækisins
í takt við formkröfur þess.
Réttur aðili þarf að eiga auðvelt með að ræða erfið mál
með skýrum hætti og hafa þrek til að greina, túlka og miðla
til samræmis við skilaboðastefnu.
Óskað er eftir sérfræðingi í skipulagningu stærri og minni
verkefna. Gerðar eru kröfur um mikla verkþekkingu og verður
viðkomandi að ráða yfir innsæi og yfirsýn til að geta þróað
aðgerða- og aðferðaáætlanir með hagkvæmum hætti.
Fagleg þekking á almannatengslum er nauðsynleg enda
verður viðkomandi til dæmis að geta þróað hagaðilagreiningu,
krísuáætlanir, boðskiptaáætlanir, langtímaáætlanir og stýrt
málefnavinnu – allt grundvallað á skilaboðastefnu.
Viðkomandi sérfræðingur verður að hafa yfirgripsmikla þekkingu á
tilgangi, forsendum og markmiðum til að geta byggt stefnulegar,
leiðarlegar og framkvæmdalegar áætlanir á réttum grunni.
Sendu umsókn á reykjavik@cohnwolfe.is strax í dag.
Umsækjendur verða að hafa gott vald á íslensku og ensku. Þekking og
reynsla á öllum tegundum fjölmiðlunar auk skilnings á taktískri hugsun er
mikilvæg. Góð tölvukunnátta og þekking á vefumsjónarkerfum er skilyrði.
Óskum eftir vönum smiðum í mismunandi verkefni eins og
• Mótasmiði
• Almenna smíðavinnu
• Viðhald/breytingar
Hægt er að senda umsóknir á netfangið gisli@thingvangur.is
þar sem jafnframt eru veittar nánari upplýsingar um störfin.
Óskum eftir vönum vélamönnum með vinnuvélaréttindi og
meiraprófsréttindi.
Hægt er að senda umsóknir á netfangið reynir@thingvangur.is
þar sem jafnframt eru veittar nánari upplýsingar um störfin.
Vegna aukinna umsvifa óskar Þingvangur ehf. eftir að ráða
Smiði og vélamenn
Leikskólinn Hulduberg í Mosfellsbæ
auglýsir lausar stöður
Hulduberg er sex deilda leikskóli. Þar eru um 140 börn á
aldrinum 2-4 ára og er aldursblöndun á öllum deildum.
Áherslur í starfi leikskólans er umhverfismennt og að njóta
og nýta náttúruleg gæði.
Leikskólinn Hulduberg er staðsettur við Lágafellsskóla og
íþróttamiðstöðina Lágafelli.
Auglýst eru laus eftrfarandi störf:
• Staða leikskólakennara í deildastjórn.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og metnaður
- Lausnamiðuð hugsun og færni til að koma hugmyndum í
framkvæmd
• Staða leikskólakennara eða þroskaþjálfa í 100%
sérkennslustöðu.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
- Góð hæfni í mennlegum samskiptum
- Jákvæðni og metnaður
- Færni í að vinna með börnum með sérþarfir
• Staða aðstoðarmanns í eldhús
Hæfniskröfur:
- Dagleg störf í eldhúsi
- Aðstoð við matargerð í samvinnu við matreiðslumann
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og metnaður
Laun eru greidd í samræmi við kjarasamning Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 18. júní 2014.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á netfangið
hulduberg@mos.is.
Upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu skólans
www.hulduberg.is.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Þuríður Stefánsdót-
tir og aðstoðarleikskólastjóri Guðrún Viktorsdóttir í síma
5868170 og 8670727.
Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um störfin.
LAUGARDAGUR 7. júní 2014 9