Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 90
Kíkt í snyrtibuddu söngkonunnar Ritu Ora
Kampavíns-mojito
4-5 mintulauf
½ dl vodki
½ dl greipaldinsafi
1 msk. agavesíróp
Safi úr ½ súraldini
1 dl kampavín eða freyðivín
Setjið vodka, greipaldinsafa, agave-
síróp og súraldinsafa í hátt glas.
Merjið mintu í mortéli og blandið við
drykkinn. Fyllið glasið með ísmolum
og hellið kampavíninu saman við.
Hrærið saman og berið fram. Hægt
er að margfalda uppskriftina og
gera heila könnu af þessum svalandi
drykk. Þá er öllum hráefnunum
blandað saman í könnuna nema
ísnum og kampavíninu sem er bætt
við í hvert glas fyrir sig.
Fengið af
http://cookswithcocktails.com/
Svalandi drykkir
í steikjandi hita
Sannkallaðri bongóblíðu er spáð á landinu um
helgina og því tilvalið að töfra fram svalandi og
sumarlega drykki í veðurblíðunni.
FARÐI FRÁ
BOBBI BROWN
HYLJARI
FRÁ
CHANEL
RITA ORA
CHANCE-ILMVATNIÐ
FRÁ CHANEL
GLOSS FRÁ
SEPHORA
VARALITUR
FRÁ M.A.C.
AUGNA-
BRÚNABLÝ-
ANTUR FRÁ
VARA-
BLÝANT-
UR FRÁ
M.A.C.
BLAUTUR
EYELINER
FRÁ M.A.C.
KINNALITUR FRÁ
BOBBI BROWN
Bláberja-„smoothie“
1 lárpera, skorin í teninga
2 bollar frosin bláber
½ bolli bláberjajógúrt eða skyr
1–2 bollar mjólk eða vatn
½ bolli ísmolar
1/8 tsk. vanilludropar eða -sykur
Agavesíróp til að gera drykkinn
sætari, ef vill.
Blandið 1 bolla af mjólk saman við
öll hin hráefnin í blandara þangað
til allt er blandað vel saman. Bætið
mjólk við þangað til drykkurinn er
orðinn eins þykkur og þið viljið.
Fengið af
http://lecremedelacrumb.com/
Jarðarberja- og kívílímonaði
4 bollar vatn
2/3 bolli ferskur sítrónusafi
½ bolli sykur
1 bolli jarðarber, skorin í bita
½ bolli kíví, án hýðis og skorið í bita
Blandið vatni, sítrónusafa og sykri
vel saman í blandara. Bætið jarðar-
berjum og kíví saman við þangað
til allt er blandað. Hægt er að sigta
blönduna til að losna við ávaxta-
kjötið. Kælið og berið fram.
Fengið af
http://lecremedelacrumb.com/
LÍFIÐ
7. júní 2014 LAUGARDAGUR
Finndu þinn innri kraft með hugleiðslu er megininntak
námskeiðsins sem mun hjálpa þér að finna tilgang, innri
styrk, aukna orku og ástríðu fyrir lífinu og æðra sjálfi.
Hugleiðslunámskeið 9.-13. júlí
Hugleiðsla fyrir alla
Nánari upplýsingar í síma 483 0300 eða á heilsu@hnlfi.is
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Námskeiðið mun gefa þér einstaka reynslu af hugleiðslu, hvort sem þú ert byrjandi
eða hefur stundað hugleiðslu reglubundið. Auk dagskrár er innifalið: Gisting, ljúffengur
og hollur matur, aðgangur að líkamsrækt, sundlaugum og baðhúsinu Kjarnalundi,
skipulögð ganga, slökunartímar og vatnsleikfimi eða leikfimi.
Leiðbeinandi er Tristan Gribbin, hugleiðslukennari.
Fimm daga námskeiðið, frá miðvikudegi til sunnudags, 9.-13. júlí
kostar 119.900 kr. fyrir einbýli en 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Þriggja daga námskeiðið, frá föstudegi til sunnudags, 11.-13. júlí
kostar 65.000 kr. í einbýli en 59.000 kr. á mann í tvíbýli.