Fréttablaðið - 16.06.2014, Qupperneq 38
KYNNING − AUGLÝSINGSkrifstofan MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 20144
Múlalundur selur ekki bara möppur heldur allt fyrir skrifstofuna,“ segir Sig-
urður Viktor Úlfarsson, fram-
kvæmdastjóri Múlalundar.
Sigurður segir starfsemi Múla-
lundar standa og falla með stuðn-
ingi samfélagsins og því að ein-
staklingar, fyrirtæki og stofnanir
kaupi vörur af Múlalundi, þar með
talið almennar skrifstofuvörur.
„Við erum alltaf samkeppnis-
hæf og stundum ódýrari en aðrir
á markaðnum. Við seljum eigin
framleiðsluvörur, eins og gata-
poka, plastvasa, sýnapoka, gylling-
ar og fleira, en einnig vörur sem við
kaupum annars staðar frá því þær
eru líka mikilvægur fjárhagslegur
styrkur fyrir starfsemina.“
Í Múlalundi er sífellt leitað nýrra
verkefna til að skjóta fleiri og styrk-
ari stoðum undir reksturinn.
„Við erum til að mynda opin
fyrir því að taka að okkur hluta úr
framleiðslu fyrirtækja og ýmislegt
sem kallar á mikla handavinnu. Þá
tökum við að okkur fjölbreytt verk-
efni til lengri og skemmri tíma,“
segir Sigurður og nefnir ýmis dæmi.
„Framhaldsskólar og háskólar
láta okkur framleiða fallegar kápur
utan um prófskírteini útskriftar-
nema sem gera gögnin eigulegri
og útskriftina að meiri viðburði. Þá
hefur ferðaþjónustan komið sterkt
inn með framleiðslu á f lottum
möppum utan um matseðla þar
sem merki veitingastaðarins er
gjarnan þrykkt í kápuna, upplýs-
ingamöppur fyrir hótelherbergi og
fleira. Bókaforlög láta einnig fram-
leiða plastkápur utan um ferðabæk-
ur til að auka endingu þeirra. Öllu
þessu, pökkunarverkefnum, merk-
ingum, gyllingum og meira til er
sinnt af starfsfólki Múlalundar.“
Sigurður segir langtímaverk-
efni mjög mikilvæg fyrir starfsemi
Múlalundar.
„Múlalundur framleiðir til
dæmis tugi þúsunda sýnapoka úr
plasti fyrir Landspítalann á hverju
ári. Hver og einn sýnapoki skapar
vinnu fyrir sex starfsmenn áður en
hann fer úr húsi og er því búinn að
gera mikið mikið gagn áður en byrj-
að er að nota hann á spítalanum.“
Öllum mikilvægt að vinna
Á síðasta ári greiddi Múlalundur 90
milljónir í laun og skapaði vinnu
fyrir rúmlega þrjátíu manns með
skerta starfsorku.
„Múlalundur stendur sjálfur
undir stærstum hluta sinna tekna
sem er allt að því einsdæmi á
vinnustofum fyrir fatlað fólk. Starf-
semin stendur því og fellur með
viðskiptavinum okkar,“ segir Sig-
urður. „Í dag eru mörg fyrirtæki
að standa sig vel á sviði samfélags-
legrar ábyrgðar. Einföld leið til að
flétta slíkan stuðning inn í daglega
starfsemi er að kaupa skrifstofu-
vörur og fleira af Múlalundi.“
Frá árinu 1959 hefur Múlalund-
ur verið rekinn af SÍBS með stuðn-
ingi Happdrættis SÍBS. Þúsundir
hafa fengið annað tækifæri og öðl-
ast aukið sjálfstraust og starfsorku
eftir störf hjá Múlalundi.
„Góð samvinna er á milli Múla-
lundar og Reykjalundar, sem er
einnig rekinn af SÍBS. Þá er Múla-
lundur í samvinnu við Vinnumála-
stofnun og ræður fólk til vinnu af
biðlistum, en umsækjendur hafa
verið allt að tvö ár á biðlista áður
en þeir komast að. Öll aðstaða er
til staðar til að taka á móti mun
fleira starfsfólki en aukin viðskipti
og verkefni eru forsenda fjölgunar
starfa,“ segir Sigurður og bætir við
að markmið sé að koma sem flest-
um áfram út á vinnumarkaðinn.
Hjá Vinnumálastofnun eru til
staðar úrræði sem styðja fyrirtæki
í að taka við fólki með fötlun út á
vinnumarkaðinn eftir starfsend-
urhæfingu hjá Múlalundi. Störf
á Múlalundi gefa mörgum, sem
annars væru heima aðgerðalausir,
tækifæri til að spreyta sig og taka
þátt í að skapa verðmæti.
„Fólki er mjög mikilvægt að fá
að mæta til vinnu og vera virkt í
samfélaginu. Bakgrunnur starfs-
fólks Múlalundar er margvísleg-
ur og margir þurfa að takast á við
krefjandi veikindi eða fötlun, and-
lega eða líkamlega, í kjölfar slyss
eða veikinda. Máltækið „Það þarf
þorp til að ala upp barn“ á við um
Múlalund en starfsemin stendur og
fellur með viðskiptavinum okkar
þar sem hver króna skiptir máli.“
Sigurður segir gefa verkefninu
líf að hitta einstaklinga sem hafa
unnið sig upp í Múlalundi eftir erfið
veikindi eða slys og eru í dag úti á
almennum vinnumarkaði.
„Nú eru þeir fullvirkir einstak-
lingar á vinnumarkaði sem er sam-
eiginlegur árangur Múlalundar og
viðskiptavina.“
Sjá nánar á mulalundur.is.
Máltækið „Það
þarf þorp til að
ala upp barn“ á við um
Múlalund en starfsemin
stendur og fellur með
viðskiptavinum okkar.
Ekki bara möppur í Múlalundi
Múlalundur, vinnustofa SÍBS, framleiðir og selur allt fyrir skrifstofuna. Í Múlalundi fá fatlaðir einstaklingar tækifæri til að
leggja sitt af mörkum til atvinnulífsins og skiptir stuðningur viðskiptavina þar sköpum.
Sigurður Viktor Úlfarsson er framkvæmdastjóri Múlalundar. MYNDIR/GVA
VÖRUR FRÁ MÚLALUNDI SKAPA TÆKIFÆRI – TVISVAR
BÆÐI FYRIR ÞIG OG STARFSFÓLK MÚLALUNDAR
KAUP Á VÖRUM MÚLALUNDAR GEFA UM 30 STARFSMÖNNUM MEÐ SKERTA STARFSORKU TÆKIFÆRI TIL AÐ
TIL AÐ NÝTA HÆFILEIKA SÍNA OG SPREYTA SIG Á STÖRFUM VIÐ HÆFI HVERS OG EINS.
Barmmerki fyrir ættarmót og ráðstefnur – Blýantar – Borðhlífar – Borðreiknivélar – Bréfabindi – Dagatöl – Dagbækur – DVD diskar – CD diskar – Gatapokar – Gatarar – Gestabækur með
gyllingu – Gráðubogar – Gyllingar – Hálsbönd – Hótelmöppur – Kápur – Klemmuspjöld – Kortahulstur – Kórmöppur – Lausblaðabækur – Matseðlar – Minnislyklar – Músamottur – Möppur
– Pennar – Plastmöppur – Plastumslög – Reglustikur – Röntgenmyndahulstur – Seglar á töflur – Sérsniðnar – Skattkortahulstur – Skilblöð – Sýnapokar – Tengdamömmur – Tímaritabox –
Undirskriftamottur – Upplýsingamöppur – Vasabækur – Vasareiknar – Yfirstrikunarpennar
Friðrik og Unnar sjá um lager Múlalundar og tryggja að pantanir skili sér örugglega til
viðskiptavina. Lager Múlalundar telur um 1.500 vörunúmer svo af nægu er að taka.
ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA
Múlalundur | Vinnustofa SÍBS
Reykjalundi | 270 Mosfellsbær
sími 562 8500 | fax 552 8819
mulalundur@mulalundur.is
www.mulalundur.is