Fréttablaðið - 16.06.2014, Page 38

Fréttablaðið - 16.06.2014, Page 38
KYNNING − AUGLÝSINGSkrifstofan MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 20144 Múlalundur selur ekki bara möppur heldur allt fyrir skrifstofuna,“ segir Sig- urður Viktor Úlfarsson, fram- kvæmdastjóri Múlalundar. Sigurður segir starfsemi Múla- lundar standa og falla með stuðn- ingi samfélagsins og því að ein- staklingar, fyrirtæki og stofnanir kaupi vörur af Múlalundi, þar með talið almennar skrifstofuvörur. „Við erum alltaf samkeppnis- hæf og stundum ódýrari en aðrir á markaðnum. Við seljum eigin framleiðsluvörur, eins og gata- poka, plastvasa, sýnapoka, gylling- ar og fleira, en einnig vörur sem við kaupum annars staðar frá því þær eru líka mikilvægur fjárhagslegur styrkur fyrir starfsemina.“ Í Múlalundi er sífellt leitað nýrra verkefna til að skjóta fleiri og styrk- ari stoðum undir reksturinn. „Við erum til að mynda opin fyrir því að taka að okkur hluta úr framleiðslu fyrirtækja og ýmislegt sem kallar á mikla handavinnu. Þá tökum við að okkur fjölbreytt verk- efni til lengri og skemmri tíma,“ segir Sigurður og nefnir ýmis dæmi. „Framhaldsskólar og háskólar láta okkur framleiða fallegar kápur utan um prófskírteini útskriftar- nema sem gera gögnin eigulegri og útskriftina að meiri viðburði. Þá hefur ferðaþjónustan komið sterkt inn með framleiðslu á f lottum möppum utan um matseðla þar sem merki veitingastaðarins er gjarnan þrykkt í kápuna, upplýs- ingamöppur fyrir hótelherbergi og fleira. Bókaforlög láta einnig fram- leiða plastkápur utan um ferðabæk- ur til að auka endingu þeirra. Öllu þessu, pökkunarverkefnum, merk- ingum, gyllingum og meira til er sinnt af starfsfólki Múlalundar.“ Sigurður segir langtímaverk- efni mjög mikilvæg fyrir starfsemi Múlalundar. „Múlalundur framleiðir til dæmis tugi þúsunda sýnapoka úr plasti fyrir Landspítalann á hverju ári. Hver og einn sýnapoki skapar vinnu fyrir sex starfsmenn áður en hann fer úr húsi og er því búinn að gera mikið mikið gagn áður en byrj- að er að nota hann á spítalanum.“ Öllum mikilvægt að vinna Á síðasta ári greiddi Múlalundur 90 milljónir í laun og skapaði vinnu fyrir rúmlega þrjátíu manns með skerta starfsorku. „Múlalundur stendur sjálfur undir stærstum hluta sinna tekna sem er allt að því einsdæmi á vinnustofum fyrir fatlað fólk. Starf- semin stendur því og fellur með viðskiptavinum okkar,“ segir Sig- urður. „Í dag eru mörg fyrirtæki að standa sig vel á sviði samfélags- legrar ábyrgðar. Einföld leið til að flétta slíkan stuðning inn í daglega starfsemi er að kaupa skrifstofu- vörur og fleira af Múlalundi.“ Frá árinu 1959 hefur Múlalund- ur verið rekinn af SÍBS með stuðn- ingi Happdrættis SÍBS. Þúsundir hafa fengið annað tækifæri og öðl- ast aukið sjálfstraust og starfsorku eftir störf hjá Múlalundi. „Góð samvinna er á milli Múla- lundar og Reykjalundar, sem er einnig rekinn af SÍBS. Þá er Múla- lundur í samvinnu við Vinnumála- stofnun og ræður fólk til vinnu af biðlistum, en umsækjendur hafa verið allt að tvö ár á biðlista áður en þeir komast að. Öll aðstaða er til staðar til að taka á móti mun fleira starfsfólki en aukin viðskipti og verkefni eru forsenda fjölgunar starfa,“ segir Sigurður og bætir við að markmið sé að koma sem flest- um áfram út á vinnumarkaðinn. Hjá Vinnumálastofnun eru til staðar úrræði sem styðja fyrirtæki í að taka við fólki með fötlun út á vinnumarkaðinn eftir starfsend- urhæfingu hjá Múlalundi. Störf á Múlalundi gefa mörgum, sem annars væru heima aðgerðalausir, tækifæri til að spreyta sig og taka þátt í að skapa verðmæti. „Fólki er mjög mikilvægt að fá að mæta til vinnu og vera virkt í samfélaginu. Bakgrunnur starfs- fólks Múlalundar er margvísleg- ur og margir þurfa að takast á við krefjandi veikindi eða fötlun, and- lega eða líkamlega, í kjölfar slyss eða veikinda. Máltækið „Það þarf þorp til að ala upp barn“ á við um Múlalund en starfsemin stendur og fellur með viðskiptavinum okkar þar sem hver króna skiptir máli.“ Sigurður segir gefa verkefninu líf að hitta einstaklinga sem hafa unnið sig upp í Múlalundi eftir erfið veikindi eða slys og eru í dag úti á almennum vinnumarkaði. „Nú eru þeir fullvirkir einstak- lingar á vinnumarkaði sem er sam- eiginlegur árangur Múlalundar og viðskiptavina.“ Sjá nánar á mulalundur.is. Máltækið „Það þarf þorp til að ala upp barn“ á við um Múlalund en starfsemin stendur og fellur með viðskiptavinum okkar. Ekki bara möppur í Múlalundi Múlalundur, vinnustofa SÍBS, framleiðir og selur allt fyrir skrifstofuna. Í Múlalundi fá fatlaðir einstaklingar tækifæri til að leggja sitt af mörkum til atvinnulífsins og skiptir stuðningur viðskiptavina þar sköpum. Sigurður Viktor Úlfarsson er framkvæmdastjóri Múlalundar. MYNDIR/GVA VÖRUR FRÁ MÚLALUNDI SKAPA TÆKIFÆRI – TVISVAR BÆÐI FYRIR ÞIG OG STARFSFÓLK MÚLALUNDAR KAUP Á VÖRUM MÚLALUNDAR GEFA UM 30 STARFSMÖNNUM MEÐ SKERTA STARFSORKU TÆKIFÆRI TIL AÐ TIL AÐ NÝTA HÆFILEIKA SÍNA OG SPREYTA SIG Á STÖRFUM VIÐ HÆFI HVERS OG EINS. Barmmerki fyrir ættarmót og ráðstefnur – Blýantar – Borðhlífar – Borðreiknivélar – Bréfabindi – Dagatöl – Dagbækur – DVD diskar – CD diskar – Gatapokar – Gatarar – Gestabækur með gyllingu – Gráðubogar – Gyllingar – Hálsbönd – Hótelmöppur – Kápur – Klemmuspjöld – Kortahulstur – Kórmöppur – Lausblaðabækur – Matseðlar – Minnislyklar – Músamottur – Möppur – Pennar – Plastmöppur – Plastumslög – Reglustikur – Röntgenmyndahulstur – Seglar á töflur – Sérsniðnar – Skattkortahulstur – Skilblöð – Sýnapokar – Tengdamömmur – Tímaritabox – Undirskriftamottur – Upplýsingamöppur – Vasabækur – Vasareiknar – Yfirstrikunarpennar Friðrik og Unnar sjá um lager Múlalundar og tryggja að pantanir skili sér örugglega til viðskiptavina. Lager Múlalundar telur um 1.500 vörunúmer svo af nægu er að taka. ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA Múlalundur | Vinnustofa SÍBS Reykjalundi | 270 Mosfellsbær sími 562 8500 | fax 552 8819 mulalundur@mulalundur.is www.mulalundur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.