Fréttablaðið - 04.07.2014, Side 32
FRÉTTABLAÐIÐ Íslenskar snyrtivörur. Lífið mælir með. Tinna Rún opnar fataskápinn. Sissa ljósmyndari. Geggjuð gúmmístígvél. Snyrtibuddan. Bloggarinn.
10 • LÍFIÐ 4. JÚLÍ 2014
Jakki S - L
kr.12.990.-
Buxur
S-XL
kr.9.990.-
kr.8.990.-
4 litir
kr.10.990.-
Grensásvegi 8, sími 553 7300
mán. - fim. 12 -18 , fös. 12 - 19 lau. 12 -17
kr.10.990.-
TÍSKA SMEKKBUXURN-
AR KOMNAR AFTUR
Helstu tískuspekúlantar heims hafa klæðst smekk-
buxum undanfarið, með stuttum skálmum og síðum,
úr gallaefni og jafnvel leðri. Hressileg sumartrend.
Stutt og leður á götum New York.
Leðursamfestingur á tískupöllunum hjá
Balmain.
Söngkonan Rita Ora í munstruðum
smekkbuxum á Glastonbury.
Smekkbuxur með sumarlegu ívafi.
FÖRÐUN NAUÐSYNJAR Í SUMARSNYRTIBUDDUNA
Lífi ð fékk að gægjast í snyrtibuddurnar hjá nokkrum vel völdum konum og sjá hvað væri nauðsynlegast að eiga yfi r sumartímann. Nærandi krem með sólarvörn,
sólarpúður fyrir sólarlausu dagana og frískandi andlitssprey eru meðal þess sem hægt er að bæta á innkaupalista sumarsins.
Mikilvægt að vera með
sólarvörn á vörunum
Guerlain Terracotta Joli Teint.
Ég legg mikla áherslu á að nota góðar grunnförðun-
arvörur sem verja húðina vel. Ég heillast mikið af lit-
uðum dagkremum með hárri vörn eins og þessu fal-
lega kremi frá Guerlain. Kremið gefur húðinni líka
aukabronsáferð sem er möst á Íslandi í dag ef sólin
fer ekki að láta sjá sig.
Dior Addict It-Lash Mascara
Maskari er nauðsynlegur í allar snyrtibuddur en á
sumrin förum við kannski frekar í vatnsheldu maskar-
ana. Margar þola það kannski ekki eins og ég en þá
eru það maskarar eins og þessi nýi frá Dior sem smit-
ast ekki, hrynja ekki og er nánast hægt að fara með í
sund – kannski bara ekki heita pottinn því hann renn-
ur af með heitu vatni. Svo er þetta einn besti maskari
sem ég hef prófað!
Maybelline Baby Lips
Góður varasalvi er ómissandi í sumarsnyrtibudd-
una mína. Allir Baby Lips-varasalvarnir eiga heima í
minni en þar eru þrír litlausir sem eru allir með SPF20
– það er ekki síður mikilvægt að verja varirnar með
vörn eins og húðina. Svo eru þrír litaðir og rauða og
bleika litinn nota ég mikið í kinnarnar, þeir gefa létt-
an lit og fallegan ljóma.
Erna Hrund Hermannsdóttir,
förðunarfræðingur og bloggari.
Orkugefandi appelsínulykt
Vitamin C Energising-andlitssprey frá
The Body Shop.
Ég hef notað C-vítamínlínuna frá The Body Shop
í mörg ár. Húðin verður ferskari og það er mjög
frískandi að spreyja á sig C-vítamínspreyinu því
að appelsínulyktin er svo orkugefandi og nær-
andi. Alveg nauðsynlegt í snyrtitöskuna.
Goat’s Milk dag- og næturkrem frá
Ziaja.
Ziaja-andlitskremin eru mjög rakagefandi að
mínu mati og ég hef notað vörur frá Ziaja í lang-
an tíma með góðum árangri. Á sumrin er nauð-
synlegt að næra húðina vel og styðja náttúru-
legt endurnýjunarferli hennar. Goat’s Milk-krem-
in gefa húðinni nærandi efni eins og E-vítamín,
A-vítamín, próvítamín B5 (d-panthenol), geita-
mjólkur-complex og UVA/UVB organic filters.
Terracotta-sólarpúður frá Guerlain.
Alveg frábært púður við hvaða tækifæri sem er.
Þegar ég vil vera fersk og fín þá set ég púðrið á
mig og nota einnig sem augnskugga því litbrigð-
in í Terracotta-sólarpúðrinu eru svo falleg.
Unnur Pálmarsdóttir, framkvæmdastjóri
Fusion og einkaþjálfari í World Class.
Svo miklu meira en púður
Sensai Bronzing-gel.
Ég mála mig nánast ekkert á sumrin en þetta
krem set ég á mig dagsdaglega. Þetta krem
gefur húðinni raka og frísklegan lit. Silkimjúkt og
hægt að nota yfir allt andlitið eða eins og sólar-
púður. Svo er það SPF6. Áferðin er ótrúlega fal-
leg og eðlileg.
Steinefnapúður fá Make up store.
Ég elska þetta púður. Þetta er svo miklu meira en
púður. Nærir húðina, róar hana og stíflar ekki
svitaholur. Verndar húðina fyrir geislum sólarinn-
ar. Þú getur stjórnað áferðinni. Það er hægt að
blanda því út í farða, kremið þitt eða setja það
beint á þar sem þú vilt að það njóti sín.
ADD VOLUME root and body lift frá KMS
California
Dásamlegt hársprey sem fær sko hárin til að
rísa. Fullkomin fylling fyrir allar hárgerðir. Hárið
verður oft svolítið flatt og líflaust yfir hásumar-
ið. Gott að spreyja í handklæðaþurrt hárið og
blása svo.
Ásta Sveinsdóttir,
eigandi suZushi og Roadhouse.
Sérpantaður farði án aukefna
Ég er yfirleitt ómáluð en það sem ég nota helst á tylli-
dögum er maskari frá L’Oreal, skrúfblýantur frá Art-
deco og farði. Farðann sérpanta ég að utan því hann
er laus við öll aukefni og er frá LA ROCHE-POSAY
og heitir Toleriane teint. Glossinn sem ég nota er líka
frá Artdeco.
Ingibjörg Reynisdóttir, leikkona,
rithöfundur og fótaaðgerðafræðingur.
Ljómandi húð og gljáandi hár
Moroccan oil gerir hárið svo fallegt og gljáandi.
Terracotta-sólarpúðrið frá Guerlain er fallegt á litinn,
gefur ljóma og lætur húðina líta einstaklega vel út. Er
því algerlega ómissandi í snyrtibudduna í sumar.
Glansandi og góðir glossar frá Chanel.
Nína B. Gunnarsdóttir, ljósmyndari og stílisti