Fréttablaðið - 04.07.2014, Side 24
FRÉTTABLAÐIÐ Íslenskar snyrtivörur. Líf ið mælir með. Tinna Rún opnar fataskápinn. Sissa ljósmyndari. Geggjuð gúmmístígvél. Snyrtibuddan. Bloggarinn.
2 • LÍFIÐ 4. JÚLÍ 2014
HVERJIR
HVAR?
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Ritstjórnarfulltrúi Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Sigríður Ella Förðun: Margrét Ásta
Lífi ð
www.visir.is/lifid
HVER ER?
Nafn? Katrín Helga
Andrésdóttir
Aldur? 21 árs
Starf?
Kaffibarþjónn á daginn,
rappari á nóttunni.
Maki?
Selma Reynisdóttir kemst
næst því.
Stjörnumerki?
Krabbi.
Morgunmatur?
Hverjum er ekki sama?
Uppáhaldsstaður?
Balí.
Hreyfing?
Að hlaupa á eftir strætó.
Uppáhaldslistamaður?
Jarvis Cocker, söngvari Pulp,
hefur átt hug minn og hjarta
síðan ég var þrettán ára.
Uppáhaldsmynd?
Mannen som elsket Yngve.
A- eða B-manneskja?
Stundum A, stundum B.
„Það má alveg kalla þetta yngingarlyf
úr fiskroði, náttúrulegt og íslenskt beint
úr hafinu,“ segir Hrönn Margrét Magn-
úsdóttir, framkvæmdastjóri Ankra, nýs
fyrirtækis sem býr til íslensk fæðubót-
arefni og snyrtivörur úr kollageni sem
framleitt er úr fiskroði undir heitinu
Feel Iceland og Frost Iceland.
Um er að ræða fæðubótarefni úr
kollageni sem viðheldur teygjanleika
og raka húðarinnar og minnkar verki
í liðum svo eitthvað er nefnt. Marg-
ir tengja eflaust efnið kollagen við
yngingarefnið bótox. „Efnið er ekk-
ert sérstaklega þekkt hér á landi en
það hefur svipuð áhrif og bótox, fyll-
ir upp í hrukkur nema kollagenið sem
við búum til er alveg náttúrulegt. Þetta
er í raun eins og vítamín. Það eru engin
aukefni og það hefur sýnt sig og sannað
að það gefur betri virkni að taka efnið
beint inn,“ segir Hrönn, sem er við-
skiptafræðingur að mennt.
Fyrirtækið var stofnað í fyrra af þeim
Hrönn, Kristínu Ýri Pétursdóttur, sem
er grafískur hönnuður, og Ásu Maríu
Þórhallsdóttur snyrtifræðingi. Svo fengu
þær til liðs við sig Biljönu Ilievska sem
er efnafræðingur. Fyrirtækið er til húsa
í Sjávarklasanum á Granda, sem er að-
setur fyrir frumkvöðlafyrirtæki með
áherslu á haftengda starfsemi. Auk
fæðubótarefnisins er verið að þróa krem
og töflur úr kollageninu. Næst á dagskrá
hjá fyrirtækinu unga er að koma vörunni
út fyrir landsteinana og er stefnan tekin
á Asíu.
„Þetta er í raun ákveðinn draum-
ur að rætast hjá okkur öllum, að búa til
okkar eigið. Við erum í viðræðum um
að koma okkur út og og þá helst til Asíu
þar sem við keyrum á íslenska vöru-
merkið. Kollagenið er til dæmis mjög
þekkt og vinsælt efni í Japan.“
alfrun@frettabladid.is
SNYRTIVARA NÁTTÚRULEGT
YNGINGARLYF ÚR FISKROÐI
Hrönn, Kristín og Ása stefna með íslenskt kollagen í fæðubótarformi út í heim.
Keira Knightley var einstaklega
sumarleg í partíi Serpentine
Gallerys í London í vikunni. Hún
stal senunni í litríkum kjól frá
Chanel, sem var óvanalegur
að því leytinu til að pilsið var
úr hvítu tjulli svo rétt sást í gylltu
skóna. Frjálslegir lokkar og lítil
förðun settu svo punktinn yfir i-ið
hjá leikkonunni.
AUGNA-
BLIKIÐ
Þær Hrönn, Kristín Ýr og Ása María létu drauminn rætast og búa nú til snyrtivörur úr fiskroði. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hvað er kollagen?
KOLLAGEN er eitt helsta uppbyggingarprótein
líkamans og er oft kallað límið sem heldur líkaman-
um saman.
KOLLAGEN finnst til að mynda í
liðum, liðböndum, beinum, húð, hári og
nöglum.
KOLLAGEN byggist upp á einstakri
samsetningu amínósýra og eru það am-
ínósýrurnar glýsín, prólín og hýdrox-
ýprólín sem gera kollagenið sérstakt
og eru þessar amínósýrur sjaldgæfar í
fæðubótarefnum.
KOLLAGEN er nauðsynlegt til að viðhalda
unglegri húð og fyrirbyggja hrukkur, það er einn-
ig nauðsynlegt fyrir teygjanleika bandvefja húðar-
innar. Með aldrinum minnkar framleiðsla líkamans
á kollageni að meðaltali um 1,5 prósent á ári frá
25 ára aldri. Þá verður húðin þynnri, hrukkur
byrja að myndast og liðir og liðbönd verða
stirðari.
SAGT ER að kollagen sé sterkara en stál-
vír og því á sér stað lítil upptaka líkamans
á kollageni þegar við borðum til dæmis fisk
og kjöt.
SAGT ER að með inntöku á kollageni sé
bæði verið að auka kollagenforða líkamans
og einnig hraða endurnýjun kollagens. Ekki
er búið að bæta neinum aukefnum út í Amino
Collagen og er það alveg laust við fiskbragð.
Sniðugt er að blanda því út í búst eða hafragraut-
Það er margt og mikið að
ske um helgina og um
að gera að láta veðr-
ið ekki draga úr
góða skapinu. Lífið
kíkti á nokkra at-
burði sem vert er
að gefa gaum
um helgina.
Rauðisandur
festival: Tónlist-
arhátíð fyrir vest-
an. Sökum veð-
urs hefur hátíðin hins
vegar verið færð frá
Rauðasandi til Patreksfjarð-
ar en það á ekki að skemma neitt
enda margir af bestu
tónlistarmönnum
landsins sem koma
fram á hátíðinni.
Amaba Dama,
Emilíana Torrini,
Lay Low og My
Bubba svo eitt-
hvað sé nefnt.
Dragðu fram
gúmmístíg-
vélin og
lopapeys-
una og
af stað.
Hlustunarpartí Gus
Gus á Boston í
kvöld. Hefst klukk-
an 19.00. Ein-
stakt tækifæri
fyrir aðdáend-
ur til að hlusta
á nýja plötu
rafsveitarinn-
ar, Mexico,
en sveitin mun
einnig stíga
á svið og taka
nokkur lög fyrir
viðstadda.
Kántrífestival á Kex.
Það verður bandarísk stemning á
Kexi í kvöld í tilefni af þjóðhátíðar-
degi Bandaríkjanna. Mr. Silla og
Snorri Helgason eru á meðal
þeirra sem taka lagið.
LÍFIÐ MÆLIR MEÐ …
Tónlistarhátíð, hlustunarpartí og kántrífestival
Síðastliðið föstudagskvöld var Eldborgar-
salnum í Hörpu breytt í leðurblökuhelli,
þegar Friðrik Ómar og félagar settu
upp fágaða og flotta tónleika til heiðurs
Meat Loaf. Þar var Bat Out of Hell-plat-
an leikin í gegn og tók salurinn vel undir.
Mátti þar sjá marga þekkta einstak-
linga og ber þar helst að nefna hjón-
in Jónínu Benediktsdóttur og Gunn-
ar Þorsteinsson, áður kenndan
við Krossinn, og söng- og leikkonuna
Selmu Björnsdóttur í góðum gír.