Fréttablaðið - 04.07.2014, Side 12

Fréttablaðið - 04.07.2014, Side 12
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 ÍSRAEL, AP Hundruð félagsmanna Hamas-sam- takanna hafa verið handtekin á Vesturbakk- anum í Palestínu vegna rannsóknar á dauða þriggja ísraelskra unglinga. Útför palestínsks drengs, sem fullyrt er að hafi verið myrtur til að hefna fyrir dauða unglinganna þriggja, var frestað í gær til að hægt væri að kryfja líkið. Spennan hefur vaxið gríðarlega síðustu daga. Palestínumenn hafa skotið eldflaugum og sprengjum úr sprengjuvörpum á svæði Ísraelsmanna, en engar fréttir hafa borist af því að fólk hafi orðið fyrir sprengjunum. Ísraelski herinn hefur svarað með loftárás- um og hafa í það minnsta tíu særst í þeim. Þá sló í brýnu milli Palestínumanna og lög- reglu í austurhluta Jerúsalem, þar sem Pal- estínumenn hentu steinum í lögreglu, sem svaraði með því að skjóta gúmmíkúlum og táragasi á mannfjöldann. Tugir Palestínu- manna særðust í átökunum. Foreldrar Mohammeds Abu Khdeir, sex- tán ára palestínsks drengs sem var numinn á brott á miðvikudag og fannst síðar látinn og illa brunninn í skógi, halda því fram að hann hafi verið myrtur af öfgasinnuðum Ísraelum. Ísraelsk stjórnvöld saka á móti Hamas- samtökin um að bera ábyrgð á dauða ísra- elsku táninganna þriggja. Því neita talsmenn Hamas. Ísraelski herinn flutti í gær hermenn og skriðdreka að Gasa-svæðinu. Talsmaður hersins sagði að tilgangurinn væri að verja Ísrael, en bætti því við að herinn væri tilbú- inn að bregðast við frekari árásum Palest- ínumanna. Lögreglan í Jerúsalem hélt í gær áfram að rannsaka dauða Abu Khdeir. Illa gekk að bera kennsl á lík hans þar sem það var illa brunnið. Talsmaður lögreglunnar sagði í gær að mikilvægt væri að finna ástæðuna fyrir morðinu. Mikilvægt væri að vita hvort ástæðan tengdist þjóðerni drengsins eða hvort um annars konar glæp hefði verið að ræða. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagðist í gær krefjast þess að rétt- lætið næði fram að ganga hratt og vel í þessu „ámælisverða morðmáli“. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sagði í gær að það væri augljóst að öfgafullir ísra- elskir landtökumenn hefðu myrt Abu Khdeir. Hann krafðist þess að morðingjar hans yrðu færðir fyrir dóm. brjann@frettabladid.is Mikil spenna vegna morðs á palestínskum unglingi Spennan hefur aukist í samskiptum Ísraels og Palestínu vegna dauða fjögurra táninga. Palestínumenn hafa mótmælt á götum úti og hefur grjótkasti mótmælenda verið svarað með gúmmíkúlum og táragasi lögreglu. SKEMMDIR Ísraelsk kona skoðar skemmdir á húsi í landnemabyggðunum sem palestínsk eldflaug olli. Ekkert manntjón hefur orðið í eldflaugaárásum Palestínumanna enn sem komið er. NORDICPHOTOS/AFP Í RÚST Palestínskur maður virðir fyrir sér skaðann sem loftárás Ísraelshers olli í Gasa-borg. Tíu Palestínumenn særðust í loftárásunum, sem voru svar Ísraelshers við eldflauga- og sprengjuvörpuskotum Palestínumanna. NORDICPHOTOS/AFP VEIÐI Æskilegt væri að Veiðifélag Þingvallavatns setti svipaðar regl- ur um veiði á urriða í öllu Þing- vallavatni og gilda fyrir þjóðgarð- inn, segir Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í svari við fyrirspurn Össurar Skarp- héðinssonar, þingmanns Samfylk- ingarinnar, á Alþingi. Samkvæmt reglum þjóðgarðsins verða veiðimenn að sleppa öllum urriða á tímabilinu 20. apríl til 1. júní. Þá mega þeir aðeins veiða með flugu og aldrei af báti. Össur fagnar því að ráðherrann vilji vernda stofninn. „Veikleikinn í svarinu er hins vegar að ráðherrann segir svart á hvítu að Veiðimála- stofnun viti ekki nægilega mikið um stofninn. Þá tel ég svartalágmark að stjórnvöld beiti sér fyrir strangari reglum, sem ættu meðal annars að skylda stangveiðimenn til að sleppa öllum stórurriða þangað til það mat liggur fyrir. Urriðinn á að njóta vaf- ans,“ segir Össur. Hann segir það mat sérfræðinga að hrygningarstofn hins svokallaða ísaldarurriða sé hugsanlega undir 1.500 fiskum. „Það þarf ekki mikla ofstopaveiði til að höggva stór skörð í svo lítinn stofn fari menn ekki ofurvarlega.“ Össur bendir á að ásókn í urr- iðann sé að aukast. „Menn eru að byrja að markaðssetja stórurriðann erlendis og fiskisagan spyrst, enda hvergi í heiminum hægt að veiða jafn stóra urriða og hér á Íslandi, þar sem menn hafa í vor verið að veiða fiska sem líklega losa 30 pund miðað við lengdarmælingar.“ - bj Össur Skarphéðinsson vill að reglur um urriða í Þingvallavatni verði hertar: Urriðinn fái að njóta vafans 22 PUND Össur Skarphéðinsson er sér- fróður um ísaldarurriðann í Þingvalla- vatni, og sést hér með 22 punda urriða sem hann veiddi í Öxará. STJÓRNSÝSLA Á 139. löggjafarþingi var flutt tillaga til þingsályktun- ar um flutning Landhelgisgæsl- unnar til Reykjanesbæjar. Flutn- ingsmenn tillögunnar voru allir þingmenn Suðurkjördæmis. Þrír núverandi ráðherrar voru flutn- ingsmenn tillögunnar; Ragnheið- ur Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæð- ismálaráðherra. Að mati flutningsmanna fylgdu fjölmargir kostir því að flytja starf- semi Landhelgisgæslunnar á Suð- urnesin. Atvinnuástand væri ekki gott á svæðinu sem og að heppileg aðstaða væri fyrir starfsemi stofn- unarinnar, bæði húsnæði, flug- brautir og góð hafnaraðstaða gerði það að verkum að svæðið væri afar vel í stakk búið til að taka á móti stofnun sem þessari. „Þá skiptir máli að á Suður- nesjum fengi Landhelgisgæslan aðstöðu til að sameina alla sína starfsemi og koma sér fyrir til framtíðar á einum stað. Nú er stofnunin með starfsemina dreifða í leiguhúsnæði á mörgum stöðum. Aðstaða fyrir alla starfsemi gæsl- unnar getur verið í byggingum á varnarsvæðinu og þar er land- svæði sem hægt er að laga að þörf- um stofnunarinnar,“ segir í þings- ályktunartillögunni. Á þeim tíma var gerð athugun á því hvort rekstrarkostnaður gæsl- unnar myndi aukast við það að flytja hana til Suðurnesja. Óháð fyrirtæki var fengið til starfans og kom í ljós að rekstrarkostnað- ur Landhelgisgæslunnar myndi aukast um nærri 700 milljónir króna ef staðsetning gæslunnar væri á Keflavíkurflugvelli. - sa Þingmenn Suðurkjördæmis fluttu tillögu á síðasta kjörtímabili um flutning Landhelgisgæslunnar: Ráðherrar vildu flytja Landhelgisgæsluna SAMGÖNGUR Flutningaskipið UTA liggur enn í höfn á Reyðarfirði en sýslumaður kyrrsetti það þann 18. júní síðastliðinn vegna óupp- gerðra krafna eiganda þess. Sam- kvæmt upplýsingum frá bæjar- yfirvöldum í Fjarðabyggð er skipið í eigu fyrirtækisins MS „Jop“ Schiffahrtsgesellschaft mbH. & Co. Reederei KG sem er með höfuðstöðvar sínar í Þýska- landi en umboðsaðili leigutaka var Thor Shipping. Skipið átti að flytja 7.000 tonn af áli frá Alcoa Fjarðaáli til Evrópu en sá farmur er farinn þótt frakt- skipið fari hvergi að sinni. Að sögn sýslumannsins á Eskifirði er verið að vinna að lausn málsins. - jse Skip enn í óskilum: Unnið að lausn UTA Í HÖFN Á REYÐARFIRÐI Unnið er að lausn á málum eiganda skipsins sem legið hefur í höfn frá 18. júní. MYND/ÞURÍÐUR LILLÝ BREIÐAFJÖRÐUR Ákveðið hefur verið að fresta Bátadögum á Breiðafirði um eina viku vegna slæmrar veðurspár, en djúp lægð hefur verið yfir landinu að und- anförnu. Bátadagar áttu að vera nú um helgina, þá fyrstu í júlí. Þeir verða þess í stað þá næstu, dag- ana 11.–13. júlí. Hátíðin verður haldin í sjötta sinn nú í ár. Helgin snýst um að sýna báta, sigla þeim og sérstak- lega kenna ungu kynslóðinni að róa. - nej Slæmt veður veldur frestun: Bátadögum í ár frestað um viku VINSÆLT Hátíðin er vinsæl á meðal báta- áhugamanna en háð því að veður sé gott. VILDU FLUTNING Lagt var til að Gæsl- an yrði flutt á Suðurnesin. NEYTENDUR Lýsi fór á vörusýn- ingu í Sjanghæ um síðastliðna helgi. Þetta er í annað sinn sem Lýsi fer á vörusýninguna en hún er stór í sniðum og beinist fyrst og fremst að markaðnum í Kína. - nej Gestir á vörumerkjasýningu: Lýsi í Sjanghæ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.