Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 4
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
TRÚMÁL Kjörstjórn Þjóðkirkjunnar mun funda
á morgun um kröfu íbúa í Seljahverfi um að
fram fari prestkosningar. Staðan hefur tvisv-
ar verið auglýst. Í fyrra skiptið rann frestur til
að sækja um út þann 15. apríl síðastliðinn. Val-
nefnd komst að þeirri niðurstöðu að skipa ætti
Ólaf Jóhann Borgþórsson, prest í Seljakirkju,
í embættið.
„Eftir að fyrra ferlinu lauk var niðurstaða
valnefndar á þá leið að biskup ákvað að aug-
lýsa aftur. Það er þrennt í stöðunni sem biskup
getur gert. Að staðfesta niðurstöðu valnefndar,
framlengja umsóknarfrest eða auglýsa embætt-
ið að nýju,“ segir Þorvaldur Víðisson biskups-
ritari. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
var ástæða ákvörðunar biskups sú að í hópi
umsækjenda var kona sem gegnt hefur prests-
embætti á Akureyri um árabil. Agnes M. Sig-
urðardóttir, biskup Íslands, hafi því óttast að
ráðning Ólafs Jóhanns í stöðu sóknarprests yrði
kærð á grundvelli jafnréttislaga. Sóknarbörn í
Seljakirkju vildu ekki una við þessa niðurstöðu.
Því var fundað um málið og ákveðið að krafist
yrði almennra prestkosninga.
Umsóknarfrestur eftir að auglýst var í seinna
skiptið rann út fyrsta júlí. Ráðgert er að birta
nöfn umsækjenda í dag. „Stjórnin mun fara yfir
stöðu með tilliti til starfsreglna sem varða val á
prestum,“ segir Hjördís Stefánsdóttir, formað-
ur kjörstjórnar. - jhh
Biskup Íslands ákvað að hunsa tillögu valnefndar og auglýsa starf sóknarprests Seljakirkju að nýju:
Kjörstjórn ræðir kröfu sóknarbarnanna
AUGLÝSTI AFTUR Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, féllst ekki á niðurstöðu valnefndar.
Tekið skal fram að mynd af kennara
og nemendum sem birtist með frétt
um undirbúning íslenskra kennara í
Fréttablaðinu í gær tengist ekki með
nokkrum hætti efni fréttarinnar.
ÁRÉTTING
90.000 hillumetrar af skjölum voru
varðveittir á Þjóðskjalasafni árið
2013.
Skjalamagnið í safninu hefur átt-
faldast frá um 1980.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
GÓÐUR REGNGALLI OG HEITT KAKÓ verður staðalbúnaður helgarinnar. Allhvass
vindur V-til en lægir síðdegis á morgun. Talsverð úrkoma N-lands á morgun en dregur
úr á sunnudag, þurrt að mestu SV-lands. Hiti 6 -15 stig, svalast fyrir norðan.
6°
10
m/s
9°
11
m/s
12°
11
m/s
11°
5
m/s
8-18 m/s
V-til,
annars
hægari
Víða 5-10
m/s
Gildistími korta er um hádegi
24°
32°
21°
25°
20°
21°
29°
23°
23°
25°
26°
30°
31°
28°
24°
29°
25°
29°
13°
4
m/s
12°
6
m/s
12°
5
m/s
8°
7
m/s
9°
4
m/s
10°
9
m/s
6°
9
m/s
10°
11°
6°
7°
12°
12°
10°
11°
9°
9°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
SUNNUDAGUR
Á MORGUN
Skógarhlíð 18 • S ími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
v
u
ar
a
um
p
re
m
vi
l
nt
vi
llu
r.
lu
H
ei
m
sf
er
ði
fe
r
r á
sk
ilj
a
rrér
r
sé
r r
ét
t t
ét
il
le
ét
ið
ré
t
g
a
tin
g
a
tin
g
á á
tttttttttstttstststtttttststststsss
ey
s
ey
s
ey
sysey
s
ey
s
ey
sysysysysyyyyyyyyyeyyeyeyeyeyeyeyeyeee
án
f
án
fnnánáááááááá
rir
virv
yr
irv
yr
irvrv
ar
a.ra
..
ar
ara
slsls
á
s
á
. . .
ku
.u..uukukuík
ukí
A
th
.
th
.h.h.
.
th
A
th
. h.
h.
A
th
.h.h.hthhhhhthhhhhhhhthhthhtht
A
t
AA
veeve
ð
veveve
að
v
eeeeeveveve
að
vvvvvvvvð
v
ð
vvvv
ð
v
að
vð
v
ð
v
ð
v
ð
v
ð
v
ð
vvv
að
vvð
v
að
vvð ð ð ððaððððððaaaaaaaaaaaaa
rð
g
e
rð
g
e
rð
g
e
rð
g
e
g
eeeee
rð
g
e
rð
g
e
g
eeeeeee
ð
g
e
rð
g
e
ð
g
eeeeee
g
e
g
eeee
g
e
g
e
g
eee
g
eee
g
e
g
e
g
e
g
eee
g
e
g
e
g
e
g
e
g
e
g
e
g
e
g
e
gggggggggggggg
ð rð
rð
rð
ððððððððrðð
bbbbrbur
bbb
ur
bbbb
tu
r bur
bbbbrur
r r urrrtu
ruruuuutuututututtutututututtttttttttttttttttttt
rereerereereerereerrrr
Frá kr.
135.900
með allt innifalið
17. júlí í 11 nætur
Griego Mar
Kr. 135.900 - með allt innifalið
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi.
Netverð á mann mv. 2 fullorðna í herbergi kr. 154.900.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Griego Mar.
Önnur gisting í boði á afar hagstæðum kjörum.
Costa del Sol
MENNTAMÁL Á árunum 2009-2012
voru sjötíu prósent grunnskóla-
kennara aldrei metin af skólayfir-
völdum. Námsmatsstofnun sinnir
ytra mati fyrir mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytið og eru sex
skólar metnir árlega af um 200
grunnskólum landsins. Í langflest-
um tilfellum eru skólarnir metnir
eftir að skólastjórnendurnir hafa
sjálfir sóst eftir því.
Þetta kemur fram í megind-
legri rannsókn Arnars Ævars-
sonar sem hann lagði fyrir 225
kennara í 77 grunnskólum. Rann-
sóknin var lokaverkefni í námi
hans í skilvirkni og stefnumótun í
kennslufræði. Helstu niðurstöður
rannsóknarinnar ríma við TAL-
IS-rannsóknina sem Fréttablað-
ið fjallaði um í gær, að sjaldgæft
sé að starfsmat sé framkvæmt í
íslenskum skólum. Enn fremur
kemur fram í rannsókn Arnars að
ytra eftirlit menntayfirvalda sé í
lágmarki.
„Ytra mat á Íslandi er á mjög
lágu stigi. Mjög fáir skólar eru
metnir og eftirfylgnin er lítil.
Þetta er hálfgerð sýndarmennska
enda óska skólastjórnendur eftir
því sjálfir að vera metnir, sem er
undarlegt fyrirkomulag þegar um
eftirlit er að ræða. Þeir taka til og
bjóða svo yfirvöldum í heimsókn.
Það þarf mikið að ganga á í skól-
unum til að úttekt sé framkvæmd
að frumkvæði menntamálayfir-
valda,“ segir Arnar.
Í rannsókn Arnars kemur skýrt
fram að kennararnir vilja meira
mat og eftirlit með starfi sínu,
bæði innan skólans og af skólayf-
irvöldum.
„Eftirlit bætir fagmennsku og
kennarar vilja gera sitt besta. Þeir
vilja fá ábendingar um hvað þeir
geti gert betur og fá staðfestingu á
því sem þeir eru að gera vel. Einn-
ig er betra ytra eftirlit með skól-
unum ákveðið aðhald fyrir skóla-
stjórnendur.“
Arnar bætir við að kennarar
geti upplifað skort á mati og eft-
irliti sem ákveðið áhugaleysi yfir-
valda. „En þetta er ekki endilega
áhugaleysi heldur jafnvel ótti við
umræðuna um skólamál eins og
sést á umræðunni um Pisa. Það
má ekkert ræða skilvirkni, þá fer
skólaumhverfið á afturfæturna.“
Reykjavík er eina sveitarfé-
lagið sem er með reglulegt ytra
mat á eigin vegum og er þar til
fyrirmyndar að mati Arnars.
Skólar í öðrum sveitarfélögum
eru einungis metnir af Náms-
matsstofnun.
erlabjorg@frettabladid.is
Eftirlit með starfi
grunnskóla er lítið
Á þriggja ára tímabili höfðu sjötíu prósent kennara aldrei verið metin af skólayfir-
völdum. Samkvæmt megindlegri rannsókn óska kennarar eftir auknu eftirliti til
að bæta fagmennsku. Yfirleitt óska skólastjórnendur eftir mati þegar þeim hentar.
GRUNNSKÓLI Reykjavík er eina sveitarfélagið sem er með reglulegt ytra mat á eigin
vegum. Önnur sveitarfélög reiða sig einungis á Námsmatsstofnun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þetta er
hálfgerð
sýndar-
mennska enda
óska skóla-
stjórnendur
eftir því sjálfir
að vera metnir, sem er
undarlegt fyrirkomulag
þegar um eftirlit er að ræða.
Arnar Ævarsson, sérfræðingur
í skilvirkni og stefnumótun í kennslufræði.
KJARAMÁL Samninganefnd flug-
virkja sem starfa hjá Icelandair
fundaði í fjórða sinn hjá Ríkis-
sáttasemjara í gær en lítið miðar
í kjaradeilu þeirra.
Flugvirkjarnir boðuðu verk-
fallsaðgerðir í byrjun júní en því
var frestað þegar útlit var fyrir
að lög yrðu sett á verkfallið.
Samkvæmt heimildum frétta-
stofu á að boða til félagsfundar í
röðum flugvirkja á mánudag þar
sem farið verður fram á endur-
nýjun verkfallsheimildar. - bl / nej
Munu boða til félagsfundar:
Lítið miðar í
deilu flugvirkja
ÚR SKORÐUM Fari flugvirkjar Ice-
landair í verkfall má búast við röskun á
flugi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVÍÞJÓÐ Réttarhöldin yfir stofn-
anda Wikileaks, Julian Assange,
hefjast í Svíþjóð í þarnæstu viku.
Assange er ákærður fyrir kyn-
ferðisbrot gegn tveimur konum
sem eiga að hafa átt sér stað árið
2010. Sænsk yfirvöld hafa neitað
verjendum hans um aðgang að
smáskilaboðum frá konunum
tveimur sem verjendurnir segja
að geti sannað sakleysi Assange.
Assange dvelur nú í sendiráði
Ekvadors í Bretlandi - ssb
Réttarhöldin hefjast 16. júlí:
Assange fyrir
dóm í Svíþjóð
STJÓRNSÝSLA Margar umsagnir
og ábendingar vegna nýrra emb-
ætta sýslumanna og lögreglu-
stjóra hafa borist innanríkis-
ráðuneytinu og hefur því verið
ákveðið að framlengja frestinn
til 14. júlí.
Á vorþingi var samþykkt, eins
og kunnugt er, að fækka embætt-
um sýslumanna úr 24 í níu og lög-
regluumdæmum úr 15 í níu.
Umræðuskjöl um umdæma-
mörk og starfsstöðvar nýrra
embætta voru birt 4. júní en þau
fela ekki í sér endanlega ákvörð-
un ráðherra. - nej
Umdæmamörk sýslumanna:
Enn hægt að
senda umsagnir
ÖFLUG ÞJÓNUSTA Markmið breyting-
anna er að tryggja öfluga þjónustu fyrir
íbúa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NEYTENDAMÁL Matvælafyrir-
tækið Matfugl hefur innkallað
kjúkling vegna gruns um salmon-
ellusmit.
Kjúklingurinn hefur pökkunar-
dagsetningarnar 27. júní og 30.
júní. Ekki hefur vaknað grunur
um salmonellu hjá Matfugli síðan
í nóvember árið 2011.
Salmonella er bakteríusýking
sem finna má í ýmiss konar mat-
vöru. Einkenni salmonellu eru
magaveiki og hiti sem yfirleitt
gengur yfir á fjórum til fimm
dögum. - ssb
Innkalla kjúkling frá Matfugli:
Grunur um
salmonellusmit