Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 44
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 28 leika sér í tækjunum og sjá karakter- arnir um að segja þeim hvenær sá tími er útrunninn. „Spjaldtölvan er orðin eins og nútímabarnapía. Aðalkarakterarnir í sögunni okkar gefa börnum til kynna hvenær þau eiga lítinn tíma eftir í tækj- unum og kynna þau fyrir skemmtileg- um útileikjum eða gefa þeim hugmynd- ir að einhverju öðru sem tengist ekki tölvunni og þau geta gert þegar tíminn er liðinn. Þetta er síðan hægt að stilla eftir tíma dags, aldri barnsins og jafn- vel veðri,“ segir Kristinn. Hann vill vekja máls á tölvufíkn barna og ung- menna á Íslandi og takast á við vand- ann. „Þetta er vandamál og getur haft alvarlegar afleiðingar ef við bregð- umst ekki við,“ segir hann en bókin og smáforritið eru væntanleg á markað snemma næsta árs. liljakatrin@frettabladid.is TÍST VIKUNNAR KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is „Ég held satt best að segja að það sé enginn hraðari á Íslandi en ég. Ég hef allavega ekki hitt þann einstakling,“ segir forritarinn Mikael Fängström. Mikael er ekki aðeins flinkur fyrir framan tölvuskjáinn heldur einnig skot- fljótur að leysa svokallaðan töfratening, eða Rubik’s cube eins og hann heitir á ensku. Metið hans að leysa þrautina er 8,55 sekúndur og var það eitt sinn fjórði besti staðfesti tíminn í heimalandi hans, Svíþjóð. „Ég veit ekki hvort ég held enn þá fjórða sætinu en ég er allavega ofarlega á listanum,“ segir Mikael sem hefur æft sig á teningnum síðan hann var sextán ára, í tæp sjö ár. Hann veit ekki hvort hann gæti bætt metið. „Ég þyrfti þá að æfa mig miklu meira. Ef ég gerði það gæti ég hugsan- lega bætt metið,“ segir Mikael sem for- ritar með teninginn í annarri hendinni á hverjum degi. En hvað er það sem heillar við teninginn? „Þetta er mjög afslappandi. Ég byrj- aði á þessu því ég vildi geta leyst hann eins og allir aðrir. Fyrr en varði gat ég leyst hann á innan við mínútu. Þá hugs- aði ég með mér að ég væri orðinn frek- ar góður og byrjaði að æfa mig meira og meira.“ Mikael vinnur sem forritari hjá íslenska fyrirtækinu Ecomals sem vinnur að þróun sögubókar og smáfor- rits hjá Startup Reykjavík. „Tilgangurinn er að efla umhverfis- vitund hjá börnum. Í fyrsta fasa erum við að hanna, þróa og útbúa sögubók og karaktera í kringum hana en einnig smáforrit sem passar upp á tímanotk- un barna í farsímum og spjaldtölvum,“ segir Kristinn Jón Ólafsson, upphafs- maður EcoMals. Hann skipar kjarna fyrirtækisins ásamt Gunnari Helga- syni, rithöfundi og leikara, og Einari Karli Birgissyni. Smáforritið er stillt þannig að börn fá vissan tíma til að Mikael leysir töfra teninginn á aðeins 8,55 sekúndum Sænski forritarinn Mikael Fängström er líklega sá fl jótasti á landinu að leysa töfrateninginn. Hann for rit ar með teninginn í hendinni á hverjum einasta degi. Hann efast um að hann geti bætt tímann enn frekar. Ég held satt best að segja að það sé enginn hraðari á Íslandi en ég. Ég hef allavega ekki hitt þann einstakling. Mikael Fängström. TÖFRAR ÞETTA FRAM ÚR ERMINNI Mikael vekur mikla lukku á skrifstofunni þegar hann leysir teninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Ragnar Eythorsson @raggiey 3. júlí Hápunktur vikunnar: Virkja ‚Out of office reply‘ á póst- inum. Kominn í eff-err-íí... #FRÍ #jibbí Stefán Máni @StefnMni 3. júlí Ég er að semja djók um regnsumarið, bíðið að- eins … „það haustar snemma í ár“, var búið að segja það? Er það? OK, bíðið aðeins lengur … Jón Jónsson @jonjonssonmusic 30. júní Hvernig má það vera að nú kl. 10.08 er ég búinn að sjá Ástu (og Kela) úr Stundinni okkar tvisvar sinnum á förnum vegi bara í dag …? #steikt Heiða Kristín @heidabest 3. júlí Kann ekki nákvæma skýringu á því, en lífið er auðveldara þegar maður er tanaður. Ari Eldjárn @arieldjarn 1. júlí Óska eftir að kynnast miðaldra karlmanni í þvottahúsi. Áhugamál: húðflúr og Gevalia-kaffi. #hmruv 5,55 sekúndur Hollendingurinn Mats Valk setti heimsmet í að leysa töfrateninginn á Zonhoven- mótinu í mars í fyrra. 9,03 sekúndur Feliks Zemdegs á metið í að leysa teninginn með annarri hendi. Það gerði hann í fyrra. 27,93 sekúndur Fakhri Raihaan leysti teninginn með fótunum árið 2012. 23,80 sekúndur Pólverjinn Marcin Zalewski leysti teninginn með bundið fyrir augun á móti í Póllandi í fyrra. ÞREMUR SEKÚNDUM FRÁ HEIMSMETI Ég ber blendnar tilfinningar til hormónatengdra getnaðarvarna. Ég skil mikilvægi þeirra og kann að meta þægindin en samt nagar eitthvað mig varðandi þetta mál. Nýlega féll dómur í Hæstarétti Bandaríkjanna um að sjúkratrygg- ingar fyrirtækja þurfi ekki lengur að greiða pilluna fyrir kvenkyns starfsmenn sína. Fyrir okkur kann þetta að hljóma ómerkilega. Í Bandaríkjunum er þetta stórmál því heilbrigðisþjónusta þar er mjög dýr og flókin. Þessi niðurstaða dómsins er því tvær langatangir framan í bandarískar konur (og karlkyns bólfélaga þeirra). Sögu getnaðarvarna má rekja margar aldir aftur í tímann. Fólk hefur alltaf reynt að koma í veg fyrir getnað, hvort sem það var með krókódílaskít, svampi og hun- angi eða vömb á lambi. Saga horm- ónapillunnar er hins vegar aðeins fimm áratuga gömul. Pillan færði konum mikið frelsi. Þær gátu stjórnað barneignum og þar með eigin lífi og kynhegðun. Hún er því mjög mikilvægur liður í femín- ískri baráttu. Í dag getur pillan (og aðrar hormónagetnaðarvarn- ir) haft ýmsa heilsufarslega kosti en einnig aukaverkanir. Sumar konur upplifa þyngdaraukningu, bólur, höfuðverki, bjúgmyndun og minni kynlöngun. Kvensjúk- dómalæknirinn minn sagði einu sinni að það virtist vera að þegar konur kæmust á ákveðinn aldur (lesist, barneignaraldurinn um 25 ára) þá fengju þær ógeð á pillunni. Þær höfðu margar hverjar verið í áskrift í rúm tíu ár en fannst nú vera komið nóg. Þær nenntu ekki lengur að lifa eins og Lísa í Undra- landi þar sem þú veist aldrei hver áhrifin verða af næstu pillu. (Ég myndi kalla þetta að hlusta á lík- amann.) Það sem pirrar mig í tengslum við hormónaverjur er hversu sjálf- sagt það þykir að stelpur „fari á pilluna“. Eins og þetta sé bara Pez í ljótum staut, einhver sykurpilla sem þýði ekkert annað en að sæðið þitt komist ekki að egginu mínu. Það er ákveðið frelsi að geta treyst því að litlu sáðfrumurnar leki bara samviskusamlega út úr leggöng- unum á meðan maður knúsast undir hlýrri sæng. Þetta er auð- vitað mín ábyrgð, minn líkami, mitt barn eða bíddu, þitt sæði? Hvar er ábyrgð drengja í þessu máli? Af hverju eru karlmönnum ekki kenndar rofnar samfarir og agi sem fylgir því að stjórna sáð- láti? Karlmenn ættu að gera rík- ari kröfu um notkun smokksins. Vildu þeir ekki annars samfarir án afleiðinga, rétt eins og við? Ég vil breyttar áherslur í samræðum um getnaðarvarnir, það er meira en að segja það að „taka bara pilluna“. Reyndu að selja karlmanni pillu sem hindrar getnað en getur um leið drepið kynlöngun. Segir þetta sig ekki sjálft? Blendnar tilfi nningar til hormónatengdra getnaðarvarna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.