Fréttablaðið - 04.07.2014, Side 21
Compeed eru einstakir plástrar sem eru sérhannaðir fyrir blöðrur og nuddsár. Plástrana má bæði nota
fyrirbyggjandi til að forðast sár og blöðr-
ur og einnig eftir að blaðra eða sár hefur
myndast til að draga úr sársauka, vernda
sárið og flýta fyrir að það grói. Að sögn
Jódísar Brynjarsdóttur, markaðstengils
hjá Vistor, virkar plásturinn eins og gervi-
skinn og helst hann fastur í marga daga.
„Compeed-blöðruplástrarnir draga úr
sársauka, verja húðina, bægja frá óhrein-
indum, vatni og sýklum og skapa húðinni
kjörumhverfi til að gróa.“
Jódís segir plástrana byggja á vatns-
kvoðutækni þar sem innra lag plástursins
er byggt upp af kvoðukenndu efni sem
inniheldur rakadrægar agnir. „Þær draga
í sig raka úr sárinu og breytast við það í
gel sem verndar sárið og styrkir viðgerð-
arferli húðarinnar. Ytra byrði plástursins
kemur í veg fyrir að vatn, óhreinindi og
bakteríur komist í sárið en „andar“ og
viðheldur rakajafnvægi, líkt og gerist í
húðinni sjálfri.“
Þegar Compeed-blöðruplástur er not-
aður er gott að hita hann í höndunum í
1-2 mínútur áður en hann er settur á húð-
ina. „Síðan er plástrinum þrýst á húðina
og haldið í smá stund svo hann festist
vel. Sé hann vel settur á helst hann fastur
í marga daga, jafnvel þótt farið sé í sturtu
eða sund.“
Compeed Medium er hinn hefðbundni
hælsærisplástur en Compeed Extreme er
hins vegar öflugri plástur sem þolir meira
álag. Compeed Extreme er því sérlega
hentugur fyrir fjallgöngur og lengri hlaup.
Einnig fást litlir plástrar og plástrar fyrir
tær ásamt stifti með áburði til að bera
fyrirbyggjandi á núningsfleti.
Jódís mælir með að plástrarnir séu
notaðir fyrirbyggjandi á helstu núnings-
fleti á fætinum, til dæmis fyrir hlaup,
fjallgöngur eða þegar farið er í nýja skó.
„Annars ber að nota Compeed um leið og
þú finnur að blaðra eða núningssár er að
myndast og sársaukinn hverfur eins og
dögg fyrir sólu. Því er alltaf gott að vera
viðbúinn og hafa Compeed í töskunni.“
PLÁSTRAR SEM
DRAGA ÚR SÁRSAUKA
VISTOR KYNNIR Compeed hælsæris- og blöðruplástrar draga strax úr sárs-
auka og flýta fyrir að sárið grói. Þeir henta vel sem fyrirbyggjandi aðgerð.
FYRIRBYGGJANDI
„Því er alltaf gott að
vera viðbúinn og hafa
Compeed í töskunni,“
segir Jódís Brynjars-
dóttir, markaðstengill
hjá Vistor.
MYND/GVA
GÓÐIR Í TÖSKUNA
Compeed-blöðruplástr-
ar fást meðal annars í
Lyfjum og heilsu
og í Apótekaranum.
BOLUNGARVÍK 40 ÁRA
Í tilefni af kaupstaðarafmæli Bolungarvíkur verður
haldin hátíð í bænum um helgina. Markaðsdagurinn er
blanda af öflugu markaðstorgi og yfirgripsmikilli tón-
listar- og fjölskylduskemmtun, auk fjölbreyttra leik-
tækja fyrir krakka á öllum aldri.
VÆNGIR
OG RIF VÆNGIR OG RIF 1990kr.
MIÐAÐ VIÐ TVO EÐA FLEIRI
HOT AND STICKY SVÍNARIF / THAI KJÚKLINGAVÆNGIR
STEIKT HRÍSGRJÓN / HRÁSALAT / SWEET CHILLI SÓSA
Hringdu nú
na!
Sæktu eða f
áðu
matinn send
an heim
588 9899
Á
M
A
N
N
Laugavegi 63 • S: 551 4422
laxdal.is
Vertu vinur á
Facebook
Skoðið
Yfirhafnir
STÓRÚTSALA
SUMARYFIRHAFNIR –
VATNSVARÐAR REGNKÁPUR
SVARTAR LAKK
THE MORE YOU USE IT
THE BETTER IT LOOKS