Fréttir - Eyjafréttir - 20.12.1981, Page 5
„Brant van Tray“ nokkrum
árum síðar varpaði akkerum
við Manhattan, voru Johann-
es Brunck, Jochiem Kuyter
og Annika innanborðs.
Það var á fallegum sumar-
degi að fundur var haldinn í
einu stærsta og fallegasta
húsi, þar sem bærinn New
Amsterdam (New York) síðar
óx upp. Þetta hús „Emaus“
var byggt úr steini, sem var
mjög sjaldgæft á þeim tíma,
og eigandi hússins var Jo-
hannes Brunck eða Jonas
Bronck, sem hannvar nú fari-
inn að nefna sig. Indíána-
höfðingjarnir „Ramagur” og
sonur hans voru viðstaddir á
þessum fundi, og þar var gert
samkomulag um að þeirseldu
Jonas Bronck 500 ekrur lands
á milli fljótanna Harlem river
og Bronx river fyrir ákveðna
peningaupphæð. Kuyter keypti
álíka stórt svæði af indíána-
höfðingjanum „Tar Kamick”
og húsið hans fékk nafnið
„Zegendal”. Annika var hon-
um stoð og stytta og dugleg
húsmóðir. Kuyter varð fljót-
lega útnefndur sem sátta-
semjari.
Annika var sem sagt huguð
og atkvæðamikil kona, hún
var líka dugleg að handleika
byssur eins og maður hennar,
og tók oft þátt í orustum á
móti indíánum, þegar barátt-
an stóð sem hæst, var hún vön
að grípa í Sigurðarkvæði og
kveða hátt, eins og hún var
vön heiman frá, það gaf henni
aukið baráttuþrek og kjark,
svo indíánarnir féllu sem strá
í vindi.
Jonas Bronck var mennta-
maður mikill og á heimili
hans var stórt bókasafn, hið
eina sem talist gat í New York
á þeim tíma. A meðal bók-
anna voru nokkrar sem hann
hafði erft eftir föður sinn í
Þórshöfn.
Það var ekki löng leið frá
„Zegendal” til „Emaus”, og
Annika kom oft í heimsókn til
bróður síns þar. Þar gátu þau
setið tímunum saman og talað
á færeyisku fyrir opnum
glugga, sem enginn annar
skildi, á meðan Harlem áin
rann hvískrandi framhjá. Þá
fannst þeim þau vera komin
heim til Færeyja, prestssetrið
við ána og endurnar niðri í
sjávarmálinu og aðra kunn-
uga staði.
Sem heimildarrit að þessari
sögu, er notuð grein úr,
„Personalhistorisk Tidskrift”
eftir fyrrverandi sorinskrifara
(sama sem eiðsvarin undir-
rétts dómari) i Færeyjum, N.
Andersen, sem er í höfuð-
atriðum þessi.:
Morten Jespersen Bronck,
var sóknarprestur fyrir suður
Straumey, með heimili í
Þórshöfn. Arið 1583 varð
Christen eða Christian Ped-
ersen Morsing, aðstoðarmað-
ur hans og var þá heilsufar
Mortens orðið lélegt.
Hin 26. ágúst 1579 undir-
ritaði hann skjal í sambandi
við það, sem sjóræningjar
höfðu tekið af konungseign-
um, og hinn 14. og 17. ágúst
1583 klögumál á Magnús
Heinason.
Kona Mortens hét Billa og
sonur þeirra er líklega sá
nemandi sem útskrifast úr
Hróarskeldu háskóla 1619.
Johannes Mortensen tel ég
;
Gata í New York á tímum Jonasar Broncks.
vera hinn útskrifaða færeying
við háskólann 1619, því eftir
þeim nánu kynnum sem ég
hef af færeyskri sögu, og
öðrum heimildum frá þeim
tíma sem hér um ræðir, þá er
ég ekki í nokkrum vafa um, að
Johannes Martini Farinsul-
anus er sonur Mortens
Jespersen Brunck.
Það voru fáir færeyingar í
háskóla á þeim tíma, og með
einstökum undantekningum
voru allflestir nemarnir
prestsynir, en seinnihluta 16.
aldar og fyrrihluta 17. aldar,
var enginn sóknarprestur í
Færeyjum sem hét Morten,
nema Morten Jespersen
Brunck.
Johannes mun hafa verið
um þrítugt þegar hann út-
skrifaðist úr latínuskólanum,
en það var nokkuð algengt á
aftur heim til Færeyja að námi
loknu, og urðu aðstoðarprestar
hjá feðrum sinum, eða fengu
önnur brauð.
Johannes Brunck fór ekki
aftur, enda var faðir hans þá
þeim tíma, að eldri menn
sætu á skólabekk, og var það
ennþá algengara hjá þeim
færeyingum sem fóru þangað.
Johannes Mortensen Brunck
er sem sagt útskrifaður frá
Hróarskeldu háskóla 1619. dáinn fyrir löngu. Sennilega
Hann finnst samt ekki undir hefur hann yfirgefið landið, og
nafninu Brunck, þess vegna án efa er það hann sem við
hafa umbeðnar eftirgrennslan- finnum undir nafninu Bronck í
ir frá ættingjum Jonas Broncks Hollandi, þar sem hann þá er
til Kaupmannahafnar háskóla, giftur kaupmannsdóttir frá
engan árangur borið. Þeir fær- Amsterdam, því það er sagt um
eyisku stúdentar sem gengið þennan Jonas Bronck, að hann
hafa í skóla þar, hafa allir merkt var fæddur danskur. Það var
sig með aukanafni sem bendir á töluvert samband á milli Dan-
þann stað sem þeir eru frá, merkur og Hollands þá, og
Feronensis, Feroensis, Færi, sérstaklega voru Færeyjar mik-
og Johannes Brunck hefur ið heimsóttar af Hollendingum
nefnt sig Johannes Martini þar sem þeir bæði fiskuðu og
Farinsulanus. versluðu við heimamenn, þrátt
Allir hinir færeyisku stúd- fyrir einkarétt Íslensk-Fær-
entar - sem áður var sagt frá, eyiska félagsins. Frá sínum
voru flestir prestssynir, sneru heimahögum getur hann hafa
Samkomuhús Vestmannaeyja
Óskum Vestmanneyingum
GLEÐILEGRA JÓLA
og þakkar fyrir viðskiptin á liðnu ári.
Jóla- og áramótaskemmtanir verða auglýstar í
Fréttum þriðjudaginn 22. desember n.k.
Í^SAMKOMUHÚS VESTMANNAEYJA.
Sendum sjómönnum á skipum okkar•,
starfsfólki í landi og fjölskyldum þeirra
bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsœlt komandi ár
Þökkum samstarfið á liðnu ári
SAMTOG SF
s/t BREKI VE 61
s/t KLAKKUR VE 103
s/t SINDRI VE 60
kynnst Hollendingum, sem
hann hefur endurvakið, eftir að
hann var orðinn stúdent og
yfirgefið landið.
Ef það er Færeyingurinn
Johannes Brunck, sem ásamt
mörgum öðrum kemur til Nýja
Niðurlands árið 1639, þá hefur
hann farið víða og kynnst
mörgu, eftir þeirri menntun og
þekkingu sem hann, eftir að
vera kominn til Ameríku, virt-
ist hafa til að bera.
Kuyter eða Koyter, sem
ættaður var frá Ditmörk, var
42 ára gammall, þegar hann
ásamt Brunck kom til nýja
heimsins. Hann var giftur
konu sem fædd var undir nafn-
inu Martins, -Martins er sama
og Mortensdatter á dönsku, -
Hún getur hafa verið dóttir síra
Mortens, svo Jochiem Kuyter
og Johannes Brunck hafa verið
mágar. Sagt er um Kuyter að
hann var kapteinn í danska
flotanum, og hafði verið 12 ár í
þjónustu hans í dönsku aust-
indísku nýlendunum.
Að Johannes Brunck nefnir
sig Jonas Bronck í Hollandi og
Nýja Niðurlandi afsannar ekki
kenninguna um það að það var
Færeyingurinn Johannes
Brunck sem 1639 settist að í
Ameríku, því Johannes og
Jonas er sama nafnið, og
Jonas er mikið meira notað í
Hollandi.
í bókinni „Scandinavian
Immigrants 1630-1674” eftir
Dr. John O. Evjen, er rætt um
Jonas Bronck og Pieter Kuyter
í sambandi við skiptidoku-
menntir og annarra skjala. Um
Jonas Bronck skrifar dr. Evjen
m.a. (hér þýtt úr ensku) „Ein-
stakir rithöfundar segja að
Jonas Bronck og Pieter Kuyter
komu til New Amsterdam
með skipinu „De Brant Van
Trogen” og að Kuyter var
skipstjóri og Bronck eigandi
skipsins. Ég get ekki ábyrgst
þetta, en öruggt er að þeir
voru alltaf miklir og góðir
vinir.
Bronck gaf húsinu sínu
nafnið „Emaus”. Það stóð
rétt hjá þar sem nú er Harlem
River Station í 132 götu. Það
sést af því sem skrifað er upp
um eignir Broncks eftir að
hann er dáinn, því fyrir utan
íbúðarhúsið átti hann hlöður
og mörg önnur útihús, hús
sem hann geymdi í tóbak og
annað. Það sem vakti mestan
áhuga var eftir þeirra tíma
mælikvarða, hvað hann átti
stórt bókasafn, og þar á meðal
margar danskar bækur, til
dæmis má nefna, eina danska
biblíu í folio, eina Luthers
Katekismus, eina danska barna
bók, eitt almanak og margar
aðrar danskar bækur. Það
sýnir að hann hefur haft mik-
inn áhuga fyrir kristilegum
fræðum og hefur stúderað
teologi guðfræði. Hann hafði
líka átt heima í Færeyjum þar
sem íbúarnir eru þekktir fyrir
andlegann áhuga, eins og
skrifað er í bókinni eftir Lucas
Debes um Færeyjar í 1675.
Jonas Bronck hefur verið
friðarsinnaður maður. „Ne
cede malis”voru hans eink-
unnarorð og á vel við það nafn
sem hann setti á húsið sitt
„Emaus”. Hann dóárið 1643.
Kuyter mágur Jonasar féll í
bardaga 1654, sem háður var
á milli nýlendubúa og indíána.
Þýtt úr dönsku:
Jógvan Hansen