Fréttablaðið - 21.07.2014, Page 6

Fréttablaðið - 21.07.2014, Page 6
21. júlí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Flísasagir og -skerar Drive DIY 430mm flísaskeri kr. 3.990 Drive DIY 500mm flísaskeri kr. 8.990 k 21 990 Drive Pro 600mm flísaskeri kr. 14.990 r. . Drive LG3-70A 1800W flísasög 86x57cm borð kr. 139.900 Drive Pro 600mm flísaskeri í tösku Drive LG4-570A 800W flísasög 79x39cm borð kr. 39.900 1. Hvað heitir bókin sem Vala Þórs- dóttir og Kolbrún Anna Björnsdóttir skrifuðu saman í gegnum Skype? 2. Við hvern barðist Gunnar Nelson í Dyfl inni á laugardagskvöld? 3. Hve háan styrk hlaut alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík (RIFF) frá Evrópusambandinu? Svör: 1. Á puttanum með pabba 2. Zak Cumm- ings 3. Tuttugu milljónir króna LÖGREGLUMÁL Lögregla stöðvaði bifreið þar sem ökumaðurinn var í annarlegu ástandi á laugardags- kvöld. Maðurinn ók á 102 kíló- metra hraða á þeim kafla Miklu- brautar þar sem hámarkshraði er 60 kílómetrar á klukkustund. Þegar lögregla tilkynnti mann- inum að hann væri handtekinn veitti hann mótspyrnu og reyndi að hlaupast á brott. Einn lögreglumaður slasaðist í átökum við manninn. Hann var vistaður í fangageymslum. -ih Vildi ekki láta handtaka sig: Ók fullur og reyndi að flýja FJÖLMIÐLAR Meira en þrefalt fleiri íbúar á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttablaðið en Morgunblaðið, sam- kvæmt nýrri könnun sem Capa- cent Gallup gerði á öðrum fjórð- ungi. Tölurnar sýna að 65,3 prósent höfuð borgarbúa á aldrinum 18–49 ára lesa Fréttablaðið en einungis 22,7 prósent lesa Morgunblaðið. Þá lesa 43,6 prósent Fréttatímann, 12,5 prósent Viðskiptablaðið og 9 prósent DV. Þegar landið er skoð- að í heild sést að 55,5 prósent fólks á aldrinum 18-49 ára lesa Frétta- blaðið en einungis 22,8 prósent lesa Morgunblaðið. Þá lásu 33,2 prósent Fréttatímann, 10,7 Viðskiptablaðið og 9,2 prósent lásu DV. Þegar samanburður á milli árs- fjórðunga er skoðaður sést að les- endum Morgunblaðsins á aldrinum 18–49 ára fækkar um 4 prósent á höfuðborgarsvæðinu en 1 prósent á landinu öllu. Lesendum Frétta- blaðsins fjölgar hins vegar um 6 prósent á höfuðborgarsvæðinu en um 5 prósent um land allt. - jhh 65 prósent höfuðborgarbúa lesa Fréttablaðið en 22,7 prósent Morgunblaðið: Þrefalt fleiri lesa Fréttablaðið Save the Children á Íslandi Save the Children á Íslandi VEISTU SVARIÐ? GASA „Ísraelar eru að fremja þjóð- armorð og þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum,“ segir Mustafa Barghouti um atburði síðustu daga á Gasa. Barghouti er palestínskur lækn- ir og stjórnmálamaður sem rekið hefur hjálparsamtök í Palestínu í áratugi. Hann var þar að auki til- nefndur til friðarverðlauna Nóbels árið 2010. Í gær var blóðugasti dagurinn á Gasa frá því að átök hófust þann 8. júlí síðastliðinn. Um hundrað pal- estínskir borgarar féllu og þrett- án ísraelskir hermenn á Gasa um helgina. Í hverfinu Shejaiya í Gasaborg, sem er að mestu byggt flóttamönn- um, segir Barghouti að fjöldamorð hafi verið framið á yfir sextíu Pal- estínumönnum: „Flestir þeirra sem dóu voru konur og börn. Ísra- elski herinn sprengdi upp allt hverfið með skriðdrekum, stór- skotaliði og loftárásum. Ísraelar sprengdu einnig tvo sjúkrabíla í loft upp sem reyndu að koma særð- um út úr hverfinu.“ Hverfið er gjörónýtt og Sam- einuðu þjóðirnar segja áttatíu þúsund manns nú vera á vergangi á Gasa. Baghouti segir: „Fólkið sem nú er á flótta er það sama og var rekið af heimilum sínum árið 1948 og hefur orðið flóttafólk oftar á ævinni en hægt er að koma tölu á.“ Barghouti segir hjálparstarf vera mjög erfitt á Gasa. „Við reynum að sinna slösuðum en það er skortur á öllum nauðsynjum. Okkur vantar lyf, vatn og elds- neyti, auk þess sem rafmagnslaust er nær alls staðar á Gasa. Hér ríkir algjört neyðarástand,“ segir Barghouti en yfir þrjú þúsund hafa særst og yfir fjögur hundruð Pal- estínumenn látist í átökunum. Barghouti gefur lítið fyrir útskýringar Ísraelsmanna á að þeir séu að stöðva skot flugskeyta til Ísrael. „Árásir helgarinnar eru ekki árásir á Hamas-samtökin heldur árás á alla Palestínumenn. Þeir særðu og látnu eru ekki Hamas-liðar, þetta eru óbreyttir palestínskir borgarar. Níutíu pró- sent þeirra látnu eru saklausir borgarar og tveir þriðju eru konur og börn.“ Barghouti kallar eftir því að lýsa þurfi vopnahléi samstundis og opna landamæri Gasa fyrir Pal- estínumönnum. Þar að auki segir Barghouti: „Ísraelar þurfa að láta af hernámi sínu á Palestínu sem breyst hefur í kerfi aðskilnaðar og kynþáttamismununar.“ Til að það gerist segir Bargh outi að beita þurfi Ísraela þrýstingi. „Alþjóðasamfélagið þarf að setja viðskiptaþvinganir á Ísraela líkt og gert var í Suður-Afríku vegna aðskilnaðarstefnunnar.“ ingvar@frettabladid.is Segir Ísraela fremja þjóðarmorð á Gasa Mustafa Barghouti, læknir sem hlotið hefur tilnefningu til friðarverðlauna Nóbels, segir ástandið á Gasa skelfilegt og kallar eftir efnahagsþvingunum gegn Ísrael. Alþjóða- samfélagið þarf að setja viðskipta- þvinganir á Ísraela líkt og gert var í Suður-Afríku vegna aðskilnaðarstefnunnar. Mustafa Barghouti, læknir og stjórnmálamaður MIKIÐ MANNFALL Yfir hundrað palestínskir borgarar og þrettán ísraelskir hermenn féllu á sunnudag, sem er mesta mannfall á einum degi frá því átökin hófust. NORDICPHOTOS/AFP ALGJÖR EYÐILEGGING Hverfið Shejaiya er gjörónýtt eftir sprengjuregn ísraelska hersins. NORDICPHOTOS/AFP Benjamín Netanyahu, forseti Ísraels, boðaði áfram- haldandi hernaðaraðgerðir í gær: „Ekkert stríð er réttlætanlegra en það sem nú stendur.“ Netanayhu útilokaði ekki að Ísraelsher hernæmi Gasa líkt og gert var fram til ársins 2005. Netanyahu sagði einnig að hverfið Shejaiya, þar sem yfir 60 Palestínumenn féllu, væri vígi hryðjuverkamanna sem skýldu sér bak við saklausa borgara. Netanyahu: Ekkert stríð réttlætanlegra

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.