Fréttablaðið - 21.07.2014, Síða 8
21. júlí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
NEYTENDUR Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra tjáir
sig ekki um innflutning á landbún-
aðarafurðum, þrátt fyrir að hún sé
ráðherra neytendamála.
Aðstoðarmaður hennar sagði í
samtali við Fréttablaðið að allt er
lýtur að innflutningi landbúnaðar-
afurða væri á hendi landbúnaðar-
ráðuneytisins.
„Þetta er íslensk stjórnsýsla í
hnotskurn,“ segir Jóhannes Gunn-
arsson, formaður Neytendasam-
takanna. Jóhannes segir að sagan
sýni að landbúnaðarráðherra líti
á það sem sitt helsta hlutverk að
vernda íslenskan landbúnað en
hafi ekki hagsmuni neytenda að
leiðarljósi.
„Ég tel að Alþingi ætti að fjalla
um hvort það sé eðlilegt að land-
búnaðarráðherra fjalli einn um
innflutning á landbúnaðarafurð-
um,“ segir Jóhannes.
Hann tekur sem dæmi innflutn-
ing á nautakjöti sem mikill skortur
er á í landinu.
Landbúnaðarráðherra tekur
allar ákvarðanir um innflutning á
nautakjöti út frá hagsmunum kúa-
bænda.
„Ég vildi að ráðherra neytenda-
mála hefði eitthvað um þetta að
segja þar sem þetta snertir hag
neytenda mjög mikið,“ segir
Jóhannes.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að innflutningur á landbún-
aðarafurðum sé klárlega neyt-
endamál.
„Það eru lög í landinu sem leyfa
ekki nema takmarkaðan innflutn-
ing á landbúnaðarvörum. Alþingi
ákvað hins vegar að leggja til hlið-
ar þau ákvæði sem áttu að vernda
hagsmuni neytenda,“ segir Gylfi.
Hann minnir á að Íslendingar
séu samkvæmt GATT-samningn-
um skuldbundnir til að flytja inn
landbúnaðarafurðir. Stjórnvöld
hafi hins vegar ákveðið að nota
ekki aðlögunartímabil GATT-
samninga til að stuðla að meiri
samkeppni heldur til að útfæra
samningana með þeim hætti að
þeir myndu valda sem minnstri
röskun á hag bænda.
johanna@frettabladid.is
Ákvarðanir út frá
hagsmunum bænda
Ráðherra neytendamála hefur ekkert með innflutning á landbúnaðarafurðum
að gera. Landbúnaðarráðherra er einráður er kemur að innflutningi. Formaður
Neytendasamtakanna segir hann taka allar ákvarðanir út frá hagsmunum bænda.
AKUREYRI Stofnuð hefur verið
sjálfseignarstofnun undir heit-
inu Menningarfélag Akureyrar. Í
hinu nýja félagi sameinast Leik-
félag Akureyrar, Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands og menningar-
húsið Hof. Markmið nýs félags er
að tryggja samstarf milli þess-
ara máttarstólpa í menningarlífi
Akureyrar, vinna að því að bæta
rekstur félaganna og nýta betur
það opinbera fjármagn sem fæst
í menningarlíf bæjarins.
Sigurður Kristinsson er for-
maður félagsins en í stjórn þess
sitja einnig fulltrúar leikfélags-
ins, menningarhússins og sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Leikfélag Akureyrar barðist við
erfiða fjárhagsstöðu og gat ekki
staðið við skuldbindingar sínar
á árinu að óbreyttu. Bæjarráð
Akureyrarkaupstaðar hljóp undir
bagga með félaginu til að tryggja
að félagið gæti staðið við sitt en að
óbreyttu mun ekki verða sett upp
sýning hjá leikfélaginu að hausti.
Starfsemi leikfélagsins mun þó
fara í eðlilegt horf í janúar á næsta
ári. - sa
Þrjár menningarstofnanir á Akureyri sameinast:
Menningarfélag
stofnað á Akureyri
SAMEINING Sigurður Kristinsson er formaður nýs félags sem hefur verið stofnað
um þrjár sameinaðar menningarstofnanir.
AKUREYRI Vilji er til þess hjá heil-
brigðisráðherra að taka aftur yfir
rekstur heilsugæslunnar á Akureyri
ef marka má bréf ráðuneytisins til
Akureyrarkaupstaðar.
Velferðarráðuneytið hefur, fyrir
hönd heilbrigðisráðherra Kristjáns
Þórs Júlíussonar, sent Akureyrar-
kaupstað bréf þar sem óskað er
eftir viðræðum um að flytja rekst-
ur heilsugæslunnar í bænum aftur
til ríkisins. Akureyrarbær hefur í
nokkurn tíma verið tilraunasveit-
arfélag um að reka heilsugæslu þar
í bæ. Nú er svo komið að fé vantar
inn í samninginn til þess að reka
heilsugæsluna og hefur hún verið
rekin með halla síðustu misseri.
Einnig hafa biðlistar eftir heimilis-
læknum lengst.
Bæjarráð svaraði bréfi ráðuneyt-
isins á síðasta fundi og skipaði tvo
fulltrúa í samráðshóp. Einnig óskaði
bæjarráð eftir fundi við ráðherra
vegna málsins.
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, formaður bæjarráðs Akureyr-
ar, sagði í samtali við Fréttablaðið
það vera skýran vilja bæjarins að
halda áfram rekstri heilsugæslunn-
ar. Þó væri það þannig að það vant-
aði fé inn í reksturinn.
Guðmundur segir að ekkert sam-
ráð hafi verið haft við bæjaryfirvöld
áður en þess var óskað að skipa full-
trúa í hópinn sem ætlað er að flytja
starfsemi heilsugæslunnar. - sa
Heilbrigðisráðherra skoðar þann möguleika að færa heilsugæsluna á Akureyri aftur til ríkisins.
Vill heilsugæslu Akureyrar aftur til ríkis
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON Telur
ástand heilsugæslumála á Akureyri
óviðunandi. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN
MENNING Sturluhátíð í Dölum
verður haldin um næstu helgi í
tilefni þess að átta hundruð ár
eru liðin frá fæðingu sagnaritar-
ans Sturlu Þórðarsonar.
Heiðursgestur hátíðarinnar er
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti. Einnig munu Einar K.
Guðfinnsson, forseti Alþingis, og
Olemic Tomessen, forseti norska
stórþingsins, flytja ávörp sem og
Einar Kárason rithöfundur og
Guðrún Nordal, forstöðumaður
stofnunar Árna Magnússonar.
Hátíðin verður haldin á sunnu-
daginn kemur að Tjarnarlundi í
Saurbæ í Dalasýslu. - bá
Þétt dagskrá á Sturluhátíð:
Fagna 800 ára
afmæli Sturlu
FLYTUR ERINDI Einar Kárason rit-
höfundur hefur oft fjallað um Sturlu í
skrifum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL Íbúðaverð er tekið
að lækka, sé miðað við vísitölu
íbúðaverðs á höfuðborgarsvæð-
inu. Vísitalan hefur nú lækkað
tvo mánuði í röð, í fyrsta sinn
frá því í desember 2010. Einnig
var lækkun vísitölunnar í síðasta
mánuði sú mesta frá því í des-
ember 2010, eða 0,8 prósent.
Þetta kemur fram í Hagsjá
Hagfræðideildar Landsbankans.
Þar segir að lækkunin undan-
farna tvo mánuði sé nær ein-
göngu tilkomin vegna lækkana
á verði sérbýlis, en sérbýli hefur
lækkað í verði um alls 4,3 prósent
síðan í apríl. Engu að síður hækk-
aði íbúðaverð verulega þegar
horft er á fyrri helming ársins
í heild sinni. Verðið var 6,8 pró-
sentum hærra í lok júní en fyrir
ári. -bá
Vísitala íbúðaverðs lækkar:
Verð á sérbýli
á niðurleið
REYKJAVÍK Íbúðaverð á höfuðborgar-
svæðinu lækkaði um 0,8 prósent í júní.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
EINRÁÐUR Landbúnaðarráðherra er
einráður um allt það er lýtur að inn-
flutningi á landbúnaðarvörum. Sama
hvort það varðar hag neytenda eða
ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GYLFI ARN-
BJÖRNSSON
JÓHANNES
GUNNARSSON
➜ Heilsugæslan hefur
verið rekin með halla
síðustu misseri.
EVRÓPUSAMBANDIÐ Dagað hefur
uppi í nefnd í Evrópuþinginu til-
laga um samræmingu reglna um
handfarangur flugfarþega. Frá
því er greint á vef Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB) að ekki sé
útlit fyrir að flugfélögum verði á
næstunni gert að samræma reglur
sínar um handfarangur.
Miklu er sagt muna á reglum
flugfélaga um handfarangur, en
þau eru sum sögð hafa lagst gegn
fyrirhuguðum „endurbótum á rétt-
indum flugfarþega“. - óká
Handfarangur er alls konar:
Samræmdar
reglur í nefnd