Fréttablaðið - 21.07.2014, Page 13
ASKA Í FÖSTU FORMI
Fransk-þýski hönnunarneminn Geraldine
Spilker hefur þróað aðferð til að binda ösku í
trjákvoðu. Þannig getur hún búið til muni úr
ösku látins fólks sem aðstandendur geta átt.
Mikil vitundarvakning hefur orð-ið undanfarin ár meðal Íslend-inga þegar kemur að ræktun
kryddjurta og matjurta í heimahúsum.
Þótt komið sé fram í miðjan júlí er ekki
of seint að gróðursetja forræktaðar
kryddplöntur og matjurtir enda duga
þær margar hverjar langt fram á haust
eða þar til frostið skellur á. Guðmund-
ur Vernharðsson garðyrkjufræðingur
segir fjölbreytni hafa aukist sérstaklega
mikið í kryddjurtum enda séu lands-
menn áhugasamari um matargerð en
áður. „Mér finnst matreiðslumenningin
hafa tekið mikið stökk fram á við með
tilkomu netsins og matreiðsluþátta í
sjónvarpi. Margir sækja sér alls kyns
uppskriftir þangað og þurfa fyrir vikið
oft nýjar kryddjurtir sem hvetur marga
til að hefja ræktun á nýjum tegundum.“
Það er orðið of seint að sögn Guð-
mundar að gróðursetja ýmsar tegundir
káls en hins vegar er ekki of seint að
gróðursetja forræktaðar salattegundir
þótt úrvalið í gróðurstöðvum lands-
ins sé minna nú en í vor. „Fólk er farið
að rækta fjölbreyttari flóru en áður.
Nýjar kryddjurtir eru orðnar vinsælar
og margar salattegundir eru í boði
sem hægt er að rækta án mikillar fyrir-
hafnar. Íslendingar hafa líka vanist
því undanfarin ár að hafa ferskt salat
í verslunum og vilja því eðlilega prófa
sig áfram sjálfir yfir sumartímann. Svo
getur ræktun sparað pening, ekki síst
þegar kemur að kryddjurtum.“
Ef matjurtir og kryddplöntur eru
ræktaðar í kerum er mikilvægt að nota
nógu stór ker að sögn Guðmundar.
„Svo bendi ég fólki alltaf á tvö mikil-
væg atriði. Annað er að fólk velji þær
kryddjurtir og matjurtir sem því þykja
góðar og kunni að nýta til matargerðar.
Hitt er að huga að staðsetningu þeirra
því miklu skiptir hafa kryddið og mat-
jurtirnar í seilingarfjarlægð. Annars
er hætt við því að þær séu ekki not-
aðar og því til lítils að leggja út í slíka
ræktun. Svalir og pallur eru til dæmis
góður staður.“
HRESST UPP Á
MATARGERÐINA
HEIMARÆKTUN Það er alls ekki of seint að gróðursetja forræktaðar krydd-
plöntur og matjurtir. Margar þeirra lifa langt fram á haust.
INNIPÚKI Basilíka
er ein þeirra krydd-
jurta sem þarf að rækta
innandyra.
MYND/VALLI
FJÖLBREYTNI
„Nýjar kryddjurtir
eru orðnar vinsælar
og margar salatteg-
undir eru í boði,“
segir Guðmundur
Vernharðsson
garðyrkjufræðingur.
MYND/VALLI