Fréttablaðið - 14.08.2014, Side 4
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
11.918 sílamávar voru skráðir í veiði-
skýrslur árið 2012.
Þeir voru 34.030 þegar mest var árið
1998.
VITA er lífið
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
Verð frá 49.900 kr.*
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
V
IT
7
00
61
0
7/
20
14
Síðustu sætin
Alicante, Spáni
19. og 26. ágúst
*Flug fram og til baka með flugvallasköttum.
Skoðið tilboðin á www.vita.is
Skráðu þig
í netklúbbinn - VITA.is
NEYTENDAMÁL Innflutningur á
helstu kjöttegundum hefur aukist
frá árinu 2013.
Ef innflutningur á fyrstu sex
mánuðum ársins 2013 er borinn
saman við sama tíma árið 2014
kemur í ljós að þriðjungi meira af
alifuglakjöti, mest kjúklingi, hefur
verið flutt inn og sex prósent meira
af svínakjöti, samkvæmt tölum
Hagstofunnar. Gífurleg aukning
hefur verið á innflutningi á ein-
stökum hlutum svínsins, til að
mynda hefur innflutningur á fryst-
um svínahryggvöðvum aukist um
helming á milli ára.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu hefur innflutning-
ur á nautakjöti tífaldast á þessu
sama tímabili. Miðað við þessa
aukningu og innlenda framleiðslu
árið 2013 munu 20 prósent af öllu
nautakjöti á íslenskum markaði
árið 2014 vera innflutt nautakjöt
frá að minnsta kosti níu löndum.
Aukinn innflutningur kemur til
vegna meiri eftirspurnar á mark-
aðnum sem innlendir framleið-
endur anna ekki. Af þeirri ástæðu
hafa verndartollar sem eru lagðir
á allt innflutt kjöt verið harðlega
gagnrýndir.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, er meðal
þeirra sem sjá ekki tilgang toll-
anna enda séu bændur fullkom-
lega færir um að keppa við inn-
fluttu vöruna án þeirra.
„Vegna flutninga bætist sjálf-
krafa kostnaður við innflutta kjöt-
ið. Það er ákveðin fjarlægðarvernd
fyrir innlenda framleiðslu. Sú
vernd og jákvæðnin í samfélaginu
gagnvart innlendum vörum ætti
að duga íslenskum bændum í sam-
keppni við innflutt kjöt. Ef ekki, þá
er það staðfesting á að það er eitt-
hvað meiri háttar að íslensku land-
búnaðarkerfi,“ segir Jóhannes.
Íslenskir neytendur kjósa oft
fremur innlendar vörur, að sögn
Jóhannesar, en í dag er ekki laga-
leg skylda að merkja annað inn-
flutt kjöt en nautakjöt. Með inn-
leiðingu EES-tilskipunar mun
verða skylda að merkja allt kjöt
með upprunalandi en ekki er vitað
hvenær það mun ganga í gegn.
„Þar til reglum um merkingar
verður komið á, skora ég á kjöt-
framleiðendur að sýna neytendum
þá virðingu að merkja kjötvörurn-
ar,“ segir Jóhannes.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins tekur undir orð Jóhann-
esar og segir augljóst að heildar-
endurskoðun verði að eiga sér stað
á landbúnaðarkerfinu.
„Lögin segja til um að verndar-
tollar eigi ekki að vera á innfluttu
nautakjöti ef framleiðslan annar
ekki eftirspurn. Þannig að það er
alveg ljóst að það er eitthvað við
þetta og í þessu kerfi sem þarf að
skoða,“ segir Ragnheiður og minn-
ir á að það sé stefna landsfundar
Sjálfstæðisflokksins að endur-
skoða landbúnaðarstefnuna.
erlabjorg@frettabladid.is
Fimmtungur af nautakjöti
á markaði er innfluttur
Innflutningur hefur aukist á nauta-, svína- og alifuglakjöti. Formaður Neytendasamtakanna segir að farið sé
illa með neytendur með verndartollum og hvetur framleiðendur til að merkja allt kjöt með upprunalandi.
NAUTAKJÖT Reglur um merkingar á upprunalandi gilda eingöngu um nautakjöt, en ekki til að mynda alifuglakjöt eða svínakjöt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þar til
reglum um
merkingar
verður komið
á, skora ég á
kjötframleið-
endur að sýna
neytendum þá virðingu að
merkja kjötvörurnar.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
GASA, AP Ítalskur fréttamaður og
palestínskur túlkur hans létu lífið
ásamt fjórum palestínskum lög-
reglumönnum þegar ísraelskur
sprengibúnaður sprakk á Gasa í
gær. Þrír særðust, þar á meðal
ljósmyndari frá bandarísku AP-
fréttastofunni.
Lögreglumennirnir voru að
reyna að aftengja sprengibúnað-
inn þegar hann sprakk, en frétta-
mennirnir voru að fjalla um
ástandið á meðan vopnahlé stóð
yfir á Gasa.
Þriggja sólarhringa vopnahlé
rann út á miðnætti, en egypskir
sáttasemjarar reyndu í gær hvað
þeir gátu til að fá Ísraela og Pal-
estínumenn til að fallast á lengra
vopnahlé. - gb
Vopnahlé rann út:
Fréttamenn
létust á Gasa
SIMONE CAMILLI Fréttamaðurinn sem
lést á Gasa í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPÁNN Artur Mas, forseti katal-
ónsku heimastjórnarinnar, blæs á
allar efasemdir um að Katalónar
geti kosið um það á tilsettum tíma
hvort sjálfsstjórnarhéraðið fái
sjálfstæði frá Spánverjum.
Hefur hann sagt að fyrirhuguð
þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara
fram 9. nóvember næstkomandi.
Efasemdaraddir voru þó farnar að
heyrast, jafnvel úr röðum heima-
stjórnarmanna, um að það gengi
eftir. Joan Ortega, sem sæti á í
heimastjórninni, hafði nýlega orð
á því að best væri að fresta þjóðar-
atkvæðagreiðslunni. Margir telja
hana feigðarflan, sérstaklega
vegna þess að spænsk yfirvöld
viðurkenna ekki lögmæti hennar.
Nú hefur Mas hins vegar tekið
af öll tvímæli, að því að fram
kemur á fréttavef El País, og sagt
að Katalónar breyti sínum lögum
í september, sem lögleiði þjóðar-
atkvæðagreiðsluna sem fari svo
fram á tilsettum tíma í sátt við guð
og menn. Hann segir enga vara-
áætlun til. - jse
Artur Mas, forseti Katalóníu, segir heimastjórnina sitja við sinn keip:
Katalónar staðráðnir í að kjósa
HORFA HVOR Í SÍNA ÁTTINA Mariano
Rajoy, forsætisráðherra Spánar sem sést
hér til vinstri, fékk engu tauti við Mas
komið þegar þeir hittust á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDICPHOTOS
ÚKRAÍNA, AP Rússnesk bílalest
með hjálpargögn var stöðvuð á
landamærum Úkraínu í gær, þar
sem stjórn Úkraínu sagðist gruna
Rússana um græsku.
Talsmaður Petros Porosjenkó
Úkraínuforseta sagði vel hugs-
anlegt að Rússar væru að plan-
leggja „beina innrás á úkraínskt
landsvæði undir því yfirskini að
afhenda fólki hjálpargögn“.
Í fyrradag hafði verið samið
um að Rússar fengju að koma með
hjálpargögn til Úkraínu. - gb
Úkraínustjórn skellti í lás:
Rússar ætluðu
til Úkraínu
SLYS Tveir erlendir ferðamenn á
fimmtugsaldri, karl og kona, slös-
uðust í mótorhjólaslysi á sunnan-
verðu Snæfellsnesi í gærmorgun.
Parið var á ferð við bóndabýlið
Bláfeld í Staðarsveit. Allt útlit er
fyrir að vindhviða hafi valdið því
að fólkið lenti utan vegar. Mjög
hvasst var á svæðinu þegar slysið
átti sér stað.
Konan slasaðist talsvert meira
en maðurinn. Hún var flutt með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á
gjörgæslu í Fossvogi. - ktd
Erlendir ferðamenn slasaðir:
Mótorhjólaslys
á Snæfellsnesi
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
BREYTINGAR Dregur fyrir sólu í dag, síðast A-til. Úrkoma um mest allt land á
morgun, einkum V-lands. Bætir í vind NV-til annað kvöld. Úrkoma N- og A-til á
laugardag og víða strekkingur. Kólnar heldur í veðri.
10°
6
m/s
11°
9
m/s
12°
6
m/s
12°
5
m/s
3-8 m/s
7-15 m/s
Gildistími korta er um hádegi
26°
31°
19°
22°
21°
22°
19°
21°
21°
26°
21°
31°
28°
35°
22°
22°
21°
21°
14°
3
m/s
13°
2
m/s
14°
3
m/s
13°
4
m/s
13°
5
m/s
12°
6
m/s
8°
7
m/s
12°
10°
9°
7°
13°
12°
14°
8°
12°
7°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN