Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 29
KYNNING − AUGLÝSING Fyrirtækjaþjónusta19. ÁGÚST 2014 ÞRIÐJUDAGUR 5 Hressing, fyrirtækjaþjónusta Ölgerðar-innar, sérhæfir sig í heildarlausnum í drykkjar- og matvöru fyrir vinnustaði landsins. „Við bjóðum fyrst og fremst upp á gott úrval drykkjarvöru, eins og kaffi, te, vatnsdrykki, gosdrykki, safa og þykkni. Einn- ig bjóðum við upp á mikið úrval af matvöru. Hugmyndin er að vinnustaðir landsins finni á einum stað þá hressingu sem hentar hverjum og einum,“ segir Valur Ásberg Valsson, fram- kvæmdastjóri Hressingar. Hressing hefur starfað frá árinu 2007 og býður upp á fjölbreytt og gott vöruúrval. Þar á meðal er gott úrval af kaffi en hægt er að fá kaffi frá illy, Merrild, Café Noir, Piazzo D’oro og Cafitesse. „Undanfarna tvo ára- tugi hefur skapast mikil kaffimenning á Ís- landi. Þar af leiðandi hefur orðið miklu meiri þörf á markaði fyrir baunavélar með mjólkur- kerfi með ferskri mjólk svo fólk geti fengið sér bolla af cappuccino eða latte í vinnunni. Við hjá Hressingu erum með gott úrval af slíkum vélum,“ segir Valur. Valur bætir við að gott vöruúrval sé þó ekki nóg eitt og sér. „Við leggjum áherslu á að pöntunarferlið sé sem einfaldast og það er einlægt metnaðarmál okkar allra sem stönd- um að Hressingu að halda þjónustustiginu háu.“ Valur útskýrir að fyrirtæki geti feng- ið heimsókn frá sölumanni eða hringingu frá þjónustuveri þegar ganga skal frá pöntun. „Eins nota mjög margir viðskiptavinir heima- síðuna www.hressing.is til að panta vörur en nýr og öflugur vefur fór í loftið fyrir fáeinum mánuðum. Þar geta viðskiptavinir keypt allar vörur, séð reikningana sína og hvað þeir hafa keypt í gegnum tíðina. Það má því segja að við höfum stóraukið þjónustu við viðskiptavini sem velja þann kost að fara í gegnum vefversl- unina enda velja fleiri og fleiri fyrirtæki að versla þar í gegn.“ Hressing býður viðskiptavinum sínum upp á fjölbreytt úrval af sjálfsölum, bæði fyrir gos og nammi og matvöru, og hafa sífellt fleiri fyrirtæki nýtt sér þessa þjónustu. Allir sjálf- salar sem Hressing setur upp eru einfaldir í notkun; hægt er að nota greiðslukort en einn- ig er mögulegt að nota farsíma sem eru þá tengdir við ákveðin debet- eða kreditkort. Hressing býður viðskiptavinum sínum upp á breiða línu af tækjum á borð við kaffivél- ar, sjálfsala, djús- og safavélar, vatnsvélar og kæliskápa. Það er í höndum þjónustudeildar Ölgerðarinnar að sjá um fyrirbyggjandi við- hald, uppsetningu tækja og áfyllingu. Þjónustudeild Ölgerðarinnar sér um uppsetningu sjálfsala, kaffivéla og annarra tækja, fyrirbyggjandi viðhald þeirra og áfyllingu. MYND/GVA Hressing sem hentar öllum Hressing býður upp á heildarlausnir í drykkjar- og matvöru fyrir vinnustaði. Íslensk kaffimenning hefur breyst mikið undanfarna tvo áratugi og hjá Hressingu má fá úrval af baunakaffivélum með mjólkurkerfi svo starfsfólkið geti fengið sér góðan bolla af cappuccino eða café latte með lítilli fyrirhöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.