Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 24
HEILSAFÓLK | Útsölustaðir: Hagkaup lífræna deildin, Fjarðarkaup - Fræið heilsuhornið, Heilsuhúsið, Blómaval – heilsuhornið, Lifandi markaður Borgartúni www.icecare.is - Netverslun Pana Chocolate Súkkulaði sem er gott fyrir þig… • Náttúruleg ofurfæða • Enginn unninn sykur! • Framleitt við lágan hita til að viðhalda miklu magni næringaefna • Inniheldur hrá lífræn- og náttúruleg innihaldsefni Allt okkar súkkulaði er bæði hand- gert og innpakkað Inniheldur lífrænt kakó sem er með mikið magn af andoxunarefnum, vítamínum og steinefnum. GLERAUGU ERU SKART Við kaup á margskiptum gleraugum færðu margskipt sólgler í þinum styrk í kaupæti. Við kaup á gleraugum nær/fjær færðu sólgler í þinum styrk í kaupæti. 40-50 % afsláttur af völdum umgjörðum til 28/8 2014 Gul poloroid sólgler í þínum styrk á góðu verði Sjón- og linsumælingar hjá Birni Óskari s: 463-1455 Gleraugnasalan-Geisli-ehf Holl og góð næring er nauðsynlegt eldsneyti þegar keyra á líkamann að þolmörkum. Maraþonhlauparar ættu ekki að borða eitt- hvað sem þeir eru ekki vanir að borða daginn fyrir hlaup og alls ekki sama dag og hlaupið fer fram. Í raun þarf að skipuleggja mataræðið samhliða æf- ingaprógramminu vikum fyrir stóra hlaupið. Fáir gætu leikið eftir árangur hlauparans Grete Waitz, en hún vann New York-maraþonið árið 1978 eftir að hafa skóflað í sig rækjukokkteil, nautasteik, ís og rauðvíni kvöldið áður. Reyndar þreif Grete af sér hlaupaskóna þegar hún kom í mark, henti þeim í mann sinn og gargaði að þetta ætlaði hún aldrei að gera aftur, enda líklegt að henni hafi ekki liðið vel í maganum. Á heimasíðunni womensrunning.competitor.com er mælt með eftirfarandi matseðli fyrir þá sem ætla að hlaupa heilt maraþon: HÁDEGISMATUR 20 TÍMUM FYRIR HLAUP Kalkúnaborgari í heilhveitibrauði Salat Saltkringlur Límonaði og vatn NASL 16 TÍMUM FYRIR HLAUP Grísk jógúrt og jarðarber Vatn KVÖLDMATUR 12 TÍMUM FYRIR HLAUP Bakaður fiskur Gufusoðið zucchini Brún hrísgrjón Banani NASL 10 TÍMUM FYRIR HLAUP Frosin jógúrt með jarðarberjum og smá hunangi MORGUNMATUR 2 TÍMUM FYRIR HLAUP Heilhveitibeygla með hnetusmjöri og sultu 230 ml vatn eða léttur orkudrykkur NASL 90 MÍNÚTUM FYRIR HLAUP Banani 230 ml orkudrykkur NASL 45 MÍNÚTUM FYRIR HLAUP 1 gel 118 ml orkudrykkur EINFÖLD UPPSKRIFT AÐ LAXI MEÐ SPÍNATI OG BRÚNUM HRÍSGRJÓNUM 2 msk. ólívuolía ¼ bolli skorinn laukur ½ bolli brún hrísgrjón 1 bolli vatn 1 bolli spínat 4 laxafillet 1 tsk. sítrónusafi Hitið olíu í potti. Bætið lauk út í og hrærið þar til hann er orðinn mjúkur en ekki brúnn. Bætið hrís- grjónum og hrærið vel. Bætið svo vatninu út í og látið suðuna koma upp. Látið malla undir loki þar til vatnið er að mestu gufað upp, eða um 15 mínútur. Leggið þá spínatið og laxinn ofan á hrís- grjónin og setjið lokið á, og eldið áfram þar til laxinn losnar auðveldlega sundur eða um það bil í tíu mínútur. Uppskrift fengin af food.com. MAGINN Í MARAÞONI HEILSA Góð næring er nauðsynleg fyrir mikil líkamleg átök. Þeir sem hyggja á heilt maraþon um næstu helgi ættu að passa upp á matseðilinn síðustu dagana fyrir hlaupið. TVEIMUR TÍMUM FYRIR HLAUP Gróft brauð eða beygla með hnetusmjöri og sultu er fyrirtaks morgunmatur á hlaupadaginn. TÍU TÍMUM FYRIR HLAUP Frosin jógúrt með jarðarberjum og smá hunangi er góð kvöldið fyrir hlaup. TÓLF TÍMUM FYRIR HLAUP Kvöldið fyrir hlaupið er gott að borða, fisk, hrísgrjón og grænmeti. GÓÐ NÆRING NAUÐSYNLEG Þegar keyra á líkamann upp að þolmörkum verður að borða vel. MYND/ NORDIC PHOTOS GETTY Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.