Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 44
19. ágúst 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 28
Söngkonan Madonna fagnaði 56 ára afmæli sínu um helgina. Þemað
í veislunni var þriðji áratugurinn og létu helstu stjörnur tískuheims-
ins sig ekki vanta. Fyrirsætan Kate Moss fór mikinn í veislunni og sat
meðal annars fyrir á mörgum myndum með afmælisbarninu sjálfu.
Einnig var þar að finna Mert Alas, Marcus Piggott, fatahönnuðinn
og yfirhönnuð Givenchy Riccardo Tisci og Dean og Dan Caten hjá
Dsquar ed.
Börn Madonnu létu sig heldur ekki vanta en bæði Rocco og Mercy
voru í búningi og fögnuðu með móður sinni. Madonna skemmti sér hið
besta og má segja að partíið hefði alveg eins getað átt sér stað í bíó-
myndinni The Great Gatsby.
Stjörnum prýdd
veisla Madonnu
Söngkonan Madonna fagnaði 56 ára afmæli sínu.➜ Afmælið
var haldið
í franska
strandbæn-
um Cannes.
ÁRINU ELDRI
Madonna kann að
halda góð partí.
NORDICPHOTOS/GETTY
SKEMMTI SÉR
Kate Moss kann
að halda uppi
stuðinu.
Söngkonan Christina Aguilera
hefur nefnt nýfædda dóttur sína
Summer Rain Rutler. Stúlkan litla
kom í heiminn á laugardaginn
og er annað barn söngkonunnar
vinsælu. Fyrir á hún soninn Max,
sem er að verða sex ára, með fyrr-
verandi eiginmanni sínum Jordan
Bratman. Unnusti hennar og faðir
Summer Rain er Matt Rutler.
Aguilera fór að fordæmi fleiri
stjarna og notaði samskiptamið-
ilinn Twitter til að koma nafninu
áleiðis til aðdáenda sinna. Fæðing-
in gekk vel en Summer Rain var
tekin með keisaraskurði líkt og
stóri bróðirinn.
Nefnir
dótturina
SUMARREGN Christina Aguilera nefnir
sitt annað barn Summer Rain.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarann Alexander Skarsgård
dreymir um að leika á Broadway.
Þessi vinsæli leikari er byrj-
aður að leita að íbúðum í New
York þrátt fyrir að vera ekki með
neina vinnu í borginni. Skars-
gård er þessa dagana að leika í
sinni sjöundu seríu af True Blood
en það vampíruævintýri er senn
á enda og er því sænski sjarmör-
inn farinn að kíkja í kringum sig.
Einnig er hann með annan fótinn
í London þar sem hann leikur í
myndinni Tarsan sem er í tökum.
„Ég er að skoða íbúðir í New
York og planið er að flytja þang-
að. Ég veit ekkert hvað ég geri,
bíó, sjónvarp, leikhús. Það væri
gaman að fara á svið, gera eitt-
hvað allt öðru vísi.“
Langar á svið
FLYTUR ALexander Skarsgård er
tilbúinn að færa sig frá hvíta tjaldinu á
svið. NORDICPHOTOS/GETTY
STÖÐ 2 OG BYLGJAN KYNNA
LAUGARDAGINN 13. SEPTEMBER KL. 20.00 Í HOFI ÁSAMT HLJÓMSVEIT
TR OMMUR BENEDIKT BRYNLEIFSSON BASSI EIÐUR ARNARSSON GÍTAR GUÐMUNDUR PÉTURSSON
GÍTAR JÓN ELVAR HAFSTEINSSON HLJÓMBORÐ ÞÓRIR ÚLFARSSON HAMMOND ÞÓRIR BALDURSSON
GLÆSILEGT TÓNLEIKATILBOÐ Á HÓTEL KEA!
TÓNLEIKATILBOÐ A TÓNLEIKATILBOÐ B
3JA RÉTTA KVÖLDVERÐUR, TÓNLEIKAR,
GISTING OG MORGUNVERÐUR
TÓNLEIKAR · 3JA RÉTTA
KVÖLDVERÐUR Á MÚLABERGI
24.000
PR MANN Í TVEGGJA
MANNA HERBERGI
PR MANN Í EINS
MANNS HERBERGI
29.500
.......................
PR MANN.
15.000
MIÐASALA Á MIÐI.IS, MENNINGARHUS.IS OG Í SÍMA 450 1000
AUKATÓNLEIKAR SAMA KVÖLD KL. 23:00