Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 42
19. ágúst 2014 ÞRIÐJUDAGUR26 „Mér finnst alltaf jafn skemmti- legt að sjá hvaða karaktera fólk sér úr printinu sem vekja barnið innra með þeim og auðvitað brosið sem fylgir,“ segir fatahönnuðurinn Rakel Blom. Hún sendi nýverið frá sér nýja línu, I Don’t Want to Grow Up, sem er innblásin af gömlum leikföngum. „Innblásturinn að mynstrinu kemur upphaflega frá gömlum leikföngum sem ég fékk æði fyrir og fór á flest öll dótasöfn í Lond- on og fékk að gramsa í kössum hjá alls konar söfnurum og á mörkuð- um. Ég notaði svo gamalt, franskt veggfóður sem ég fann í einum af þessum leiðöngrum sem grunn til að byggja upp printið svo það flæðir í samhverfu yfir flíkina og til að búa til heildarmynd. Þegar rýnt er í mynstrið má finna alls konar skemmtilega karaktera, hluti og munstur,“ segir Rakel. „Karakterarnir í mynstrinu koma alls staðar að úr minni æsku, æsku vina minna og kunningja og barna þeirra. Frá fólki á öllum aldri. Karakterarnir eiga það allir sameiginlegt að kalla fram nost- algíu, gleði og bros,“ bætir Rakel við og segist hafa fengið gríðar- lega góðar viðtökur við línunni. Rakel hefur verið búsett í Lond- on síðan hún útskrifaðist sem fata- hönnuður árið 2012 og líkar borgin vel. Hún útilokar þó ekki frekari landvinninga. „Ég er alltaf með augun opin fyrir nýjum löndum og tækifær- um svo það er aldrei að vita hvert stefnan verður tekin í framtíð- inni,“ segir hún brosandi. Varð- andi framtíðina er nóg í pípunum hjá fagurkeranum. „Ég er að vinna með öðrum listamönnum og það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því. Svo er ég að fara að selja í nokkrum pop- up-búðum hér í London en hugur- inn er auðvitað kominn af stað í að undirbúa næstu línu sem verður spennandi vinna.“ liljakatrin@frettabladid.is Ofurfyrirsætan Cara Delevingne hannar fyrir tískurisann DKNY Línan CaraD4DKNY kemur í verslanir í október en nú er búið að afh júpa klæðn- aðinn sem ofurfyrirsætan Cara Delev- ingne hefur hannað fyrir tískumerkið DKNY. Línan er afar fj ölbreytt og tónar við þann stíl sem Cara hefur tileinkað sér. CARA DELEVINGNE. NORDICPHOTOS/GETTY Meinhollar pönnukökur Breyttu til og byrjaðu morguninn á þessu lostæti. FLIPPUÐ Hönnun Rakelar er ávallt mjög litrík og skemmtileg. FYRIR STRÁKA OG STELPUR Í línunni eru kjólar, toppar, leggings og buxur. NOSTALGÍAN Í HÁMARKI Í mynstrinu má finna ýmsar fígúrur. Fatalína innblásin af gömlum leikföngum Fatahönnuðurinn Rakel Blom hefur sent frá sér fatalínuna I Don’t Want To Grow Up. Rakel segir fatnaðinn vekja barnið sem býr innra með okkur. Bananakókospönnukökur með bláberjum og kotasælu – fyrir einn 1 meðalstór, þroskaður banani 1 msk. kókosmjöl 2 msk. kotasæla (einnig hægt að nota rjómaost eða gríska jógúrt) 1 msk. heilhveiti 1 egg smá salt handfylli bláber 1 tsk. olía Maukið banana og blandið honum saman við kókosmjöl, kotasælu, hveiti, egg og salt. Bætið síðan bláberjunum saman við. Hitið olíuna á pönnu og steikið pönnukökurnar í 1–2 mínútur á hvorri hlið. Ljúffengt að bera fram með bláberjum og kókosmjöli ofan á. Fengið af síðunni aspoon fulof photo- graphy.blogspot.de Spínatpönnukökur – fyrir fjóra 1 2/3 b ollar h aframjöl 1 meðalstór banani 1 bolli spínat 1 bolli vanillumöndlu- mjólk (einnig hægt að nota vatn) Setjið 1 og 1/3 bolla haframjöl í matvinnslu- vél og vinnið þangað til það líkist hveiti. Bætið maukuðum banana, spínati og mjólk í matvinnsluvélina og blandið vel saman. Takið síðan afganginn af haframjölinu og blandið í nokkrar sek- úndur. Hitið olíu eða smjör á pönnu og setjið ¼ af deiginu á hana þegar hún er orðin heit. Steikið í um það bil 2 mínútur á hvorri hlið. Fengið af síðunni wholelivinglauren.com Hindberjapönnukökur – fyrir tvo 2 tsk. ólífuolía 1 bolli möndlumjöl 2 egg 1 3 bolli kókosmjólk ¼ tsk. salt 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. sítrónusafi 1 tsk. kókoshveiti 1 tsk. kókosolía 1 tsk. hunang 10 hindber Blandið möndlumjöli, eggjum, kókosmjólk, salti, lyftidufti, sítrónu- safa, kókoshveiti, kókosolíu og hunangi saman í stórri skál. Hellið olíunni á pönnu og hitið yfir miðlungs- hita. Skiptið deiginu í tvo hluta og hellið öðrum hlutanum á pönnuna. Setjið 5 hindber ofan á pönnu- kökuna og steikið í 4 mínútur. Snúið henni við og steikið í 2 mín- útur á hinni hliðinni. Endurtakið með hinn helminginn af deiginu. Fengið af síðunni perchancetocook.com LÍFIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.