Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 2
19. ágúst 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Ólafur Jóhann, ertu atkvæðamikill prestur? „Ég kýs fremur að vera það, já.“ Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson fékk tæplega 97 prósenta kosningu til sóknar- prests í Seljakirkju um helgina. SKOTLAND Bilið milli þeirra, sem ætla að greiða atkvæði með sjálf- stæði Skotlands, og hinna sem ætla að greiða atkvæði á móti hefur mjókkað nokkuð, samkvæmt skoðanakönnunum um helgina. Enn vantar þó töluvert upp á að sjálfstæði hafi meirihlutastuðn- ing meðal Skota, en þeir ganga til kosninga um málið eftir mánuð, fimmtudaginn 18. september. Samkvæmt skoðanakönnun ICM fyrir blaðið Scotland on Sunday eru 38 prósent fylgjandi sjálfstæði, en 47 á móti. Samkvæmt skoðanakönn- un sem Panelbase gerði fyrir hreyfingu sjálfstæðissinna, Yes Scot- land, eru 42 prósent fylgjandi en 46 prósent á móti. - gb Óðum styttist í kosningar um sjálfstæði Skotlands: Sjálfstæðissinnum fjölgar eilítið Á LANDAMÆRUNUM Á mörkum Skotlands og Englands stendur þessi pylsuvagn, The Borderer, þar sem ferðalangar geta fengið sér pylsur og hamborgara. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL „Hanna Birna Kristjánsdóttir er ennþá starfandi innanríkisráðherra og þar með dómsmálaráðherra,“ segir Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í samtali við fréttastofu. Hann segir að Hanna Birna hafi beðist undan að sinna skyldum dómsmálaráðherra og þá sé næsta skrefið að finna út úr því hver taki við málaflokknum. Sigmundur Davíð segir að hann og Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra hafi rætt þá stöðu sem upp er komin og beðið um upplýsingar frá stjórnsýslunni; menn séu að meta hvernig best sé að gera þetta. Forsætisráðherra segir að gert sé ráð fyrir því að einhver ráðherra ríkisstjórnarinnar taki við dómsmálunum. Sigmundur Davíð segir að það hafi verið rætt áður að nýr ráðherra frá Framsóknarflokknum kæmi inn í ríkisstjórn og báðir ríkisstjórnarflokkarnir hefðu fimm ráðherra. Hann segir að sú umræða sé hins vegar ótengd máli Hönnu Birnu. Hann segir jafnframt að menn hafi rætt uppskipti á ráðuneyt- um sem þyki of stór, þeirra á meðal sé innanríkisráðuneytið. Sigmundur Davíð telur að ráðherrann hafi höndlað lekamálið vel. „Ég tel ekki að mál Hönnu Birnu hafi skaðað ríkisstjórn- ina,“ segir Sigmundur Davíð en bætir við að það sé hins vegar óheppilegt að mikill tími fari í mál sem snúast ekki um lands- ins gagn og nauðsynjar og uppbyggingu í landinu. - gag, jme Forsætisráðherra telur að mál Hönnu Birnu hafi ekki skaðað ríkisstjórnina: Er ennþá dómsmálaráðherra Ég tel ekki að mál Hönnu Birnu hafi skaðað ríkisstjórnina. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra BRUNI Minniháttar bruni varð í ruslagámi við Varmárskóla í Mosfellsbæ síðdegis í gær og var slökkvilið ræst út. Talið er að eldur hafi kviknað út frá grilli sem stóð við eitt af anddyrum skólans. Mikinn svartan reyk lagði frá eldinum sem tók ekki langan tíma að slökkva. Greinileg ummerki mátti sjá eftir reykinn en tröppur upp á aðra hæð skólans voru svartar af sóti. Skólastarf hefst í næstu viku en skólasetning er á mánudag. - nej Slökkvilið kallað á vettvang: Eldur kviknaði í Varmárskóla HEILBRIGÐISMÁL „Þetta hefur aldrei verið vandamál. Á tuttugu ára tímabili hefur þetta eina tilvik komið upp,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri bráðasviðs Landspítalans. Frétta- blaðið sagði frá því í gær að fórn- arlamb nauðgunar á Selfossi, sem var ekið á bráðamóttöku, hefði þurft að snúa heim án skoðunar vegna þess að of löng bið var eftir lækni. „Við getum verið stolt af þessari þjónustu. Þó er alltaf gott að taka hlutina til endurskoðunar og sjá hvað við getum gert betur,“ segir Guðlaug. Hún hyggst því taka málið upp innanhúss og funda með Eyrúnu Jónsdóttur, verkefnastjóra neyðarmóttöku. „Ég held að það sé mjög mikil- vægt að fá þessa umræðu af stað. Neyðarmóttakan, rétt eins og önnur starfsemi spítalans, er ekki hafin yfir gagnrýni,“ segir Guð- laug. „En ég hef ekki heyrt fólk kvarta mikið undan þessari þjón- ustu heldur hef ég frekar heyrt að hún sé öflug.“ Guðlaug segir að alltaf sé hjúkr- unarfræðingur á vakt sem setið hefur námskeið í að taka á móti fórnarlömbum kynferðisofbeld- is. Hún leggur áherslu á að þeir sem valist hafa til þeirra starfa sinni þeim af miklum myndugleik, umhyggju og fagmennsku. Þjónustan við fórnarlömb kyn- ferðisofbeldis sem leita sér hjálp- ar á neyðarmóttöku sé endurskoð- uð með reglubundnum hætti en að hennar mati sé málefnum móttök- unnar vel fyrir komið. Þó er það staðreynd að þegar fórnarlamb kynferðisofbeldis kemur á neyð- armóttöku þarf að kalla út sér- fræðilækni og bið eftir honum er alla jafna nokkrar klukku- stundir. Guðrún Jóns- dóttir, talskona Stígamóta, er þeirrar skoðunar að styrkja þurfi þjónustu neyðarmóttökunnar til muna. „Ég veit vel að það þarf að kalla út teymi og það getur tekið nokkra klukkutíma. En það vita ekki konurnar og karlarnir sem sækja sér hjálp. Hver klukkutími í þessum bráðafasa getur verið erfiður.“ Styrkja þurfi þjónustuna, sér í lagi ef litið er til þess hversu ört brotum hefur fjölgað í þessum málaflokki. Hún nefnir hugmyndir sem uppi hafa verið um að færa neyð- armóttökuna af bráðamóttökunni og skipuleggja hana á svipað- an hátt og starfsemi Barnahúss. nanna@frettabladid.is Stolt af þjónustu við þolendur nauðgana Framkvæmdastjóri bráðasviðs Landspítala segir þjónustu við þolendur kynferðis- brota á neyðarmóttöku góða. Þó bið sé eftir sérfræðilækni séu þjálfaðir hjúkrunar- fræðingar á vakt. Talskona Stígamóta segir hins vegar þurfa að bæta þjónustuna. GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR SAMI STAÐUR Þolendur kynferðisofbeldis sækja sér aðstoð á Neyðarmóttöku sem deilir húsnæði með bráðamóttöku Landspítala. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BRUNI Íbúar á Grettisgötu sluppu naumlega þegar eldur kviknaði í húsi þeirra um hálf tíu í gærmorgun. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út og greiðlega gekk að slökkva eld- inn. Húsið var reykræst í kjölfarið en mikinn reyk lagði upp af hús- inu og sjá mátti reykjarmökk yfir Reykjavík úr mikilli fjarlægð. Guðmundur Árnason, einn íbúa hússins, sagðist í samtali við Vísi hafa stokkið út um glugga á annarri hæð þegar hann varð eldsins var. „Ég vaknaði við reykský og brothljóð og ég vakti strákana og sagði þeim að það væri kviknað í,“ sagði hann. Auk hans voru í húsinu tveir aðrir karlmenn en þeir vöknuðu einnig við eldinn og engum varð meint af. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur hústökufólk dvalist þar löngum og verið af því stöðugt ónæði. Maður sem býr í nágrenni hússins, sem er á horni Grettisgötu og Baróns- stígs, sagði að augljóst hefði verið að stefndi í óefni, aðeins hefði verið um tímaspursmál að ræða. Eldsupptök eru ókunn. - nej Slökkvilið kallað út vegna eldsvoða í húsi á horni Grettisgötu og Barónsstígs: Vaknaði við reyk og brothljóð REYKMÖKKUR Húsið skemmdist mikið í eldinum en reyk lagði frá því sem sjá mátti úr órafjarlægð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég held að það sé mjög mikilvægt að fá þessa umræðu af stað. Neyðarmóttakan, rétt eins og önnur starfsemi spítal- ans, er ekki hafin yfir gagnrýni. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri bráðasviðs Landspítalans LÖGREGLUMÁL Mennirnir fimm, sem Hæstiréttur úrskurðaði í gæsluvarðhald vegna grófr- ar líkamsárásar í heimahúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd þann 6. ágúst síðastliðinn, eru sagðir hafa haldið fórnarlambi sínu í sex til átta klukkustundir á meðan þeir gengu harkalega í skrokk á honum. Þurfti hann meðal annars að drekka smjörsýru og sleikja frunsu manns. Pilturinn sem haldið var er aðeins átján ára gamall. Verði mennirnir sakfelldir gætu þeir hlotið allt að 16 ára dóm. - sój Alvarleg líkamsárás í Vogum: Piltinum haldið í 6 til 8 tíma ÍRAK Fjöldi kristinna Assýr- inga í borginni Mosul í Írak var umskorinn án deyfingar af með- limum Íslamska ríkisins sem nú ræður lögum og lofum á stórum hluta landsvæðisins fyrir botni Miðjarðarhafs. Nákvæmur fjöldi þeirra sem umskorinn var er óljós að því er greinir í dagblaðinu Tunisia Daily en fullyrt er að um fjölda- umskurð hafi verið að ræða. Þar segir einnig að IS-liðar hafi selt 700 jasídískar konur í þrældóm á liðnum vikum á uppboði í Mosul á 150 dollara. - sój Umskurður án deyfingar: Limlesta karla og selja konur SPURNING DAGSINS H VÍ TA H Ú SI Ð / S ÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.