Fréttablaðið - 27.08.2014, Page 20
| 4 27. ágúst 2014 | miðvikudagur
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, segir stjórnendur fyrir-
tækisins og móðurfélags þess,
Century Aluminum, ákveðna í
að reisa allt að 360 þúsund tonna
álver í Helguvík. Þeir hafa stefnt
að byggingu álversins frá árinu
2005 en nú níu árum síðar er enn
ekki ljóst hvaðan raforkan, sem
á að knýja framleiðslu þess, á að
koma.
„Við höfum fullan hug á að klára
Helguvíkurverkefnið. Það er ljóst
enda sjáum við mikil tækifæri í
áliðnaði. Þetta strandar á raforku-
afhendingunni og á meðan svo
er getum við auðvitað ekki farið
lengra nema aðrir orkusalar komi
að verkefninu,“ segir Ragnar.
Verkefnið hefur þegar kostað
um 17 milljarða króna. Fyrirtækið
býr sig nú undir að taka til varna í
gerðardómsferli þar sem HS Orka
hefur aftur óskað eftir því að losna
undan samningi um orkusölu til
álversins.
Segir samninginn standa
Norðurál samdi um kaup á raforku
fyrir álverið við HS
Orku og Orkuveitu
Reykjavíkur, nú Orku
náttúrunnar, árið 2007.
„Ástæðan fyrir því
að álverinu var val-
inn staður í Helguvík
er að sveitarfélögin
á svæðinu buðu orku
frá HS í verkefnið.
Það kemur því ekki til
greina að ætla að leyfa
HS Orku að labba frá
samningnum,“ segir
Ragnar.
„HS Orka hefur ekki enn stað-
fest neina orkuafhendingu í þetta
verkefni en nýir eigendur HS
vildu losna undan skuldbinding-
um samningsins árið 2010,“ segir
Ragnar og rifjar upp þegar orku-
fyrirtækið fór áður með samning-
inn fyrir gerðardóm. Úrskurður í
því máli lá fyrir í desember 2011.
„Niðurstaðan þá var sú að fyrir-
tækið átti að standa við samning-
inn. Síðan hefur lítið gerst annað
en að þeir sendu málið aftur í gerð-
ardóm núna í júlí,“ segir Ragnar.
Hann segist að öðru leyti lítið
geta tjáð sig um málið. Hins vegar
er ljóst, samkvæmt hálfsársupp-
gjöri HS Orku, að orkufyrirtækið
telur ákvæði samningsins frá 2007
ekki hafa verið uppfyllt og að hann
sé því ekki lengur í gildi.
Ekki í viðræðum við Landsvirkjun
Ragnar segir Norðurál ekki eiga
í neinum viðræðum við Lands-
virkjun um mögulega orkusölu til
Helguvíkur.
„Það liggur í raun ekkert fyrir
um það að neitt annað orkufyrir-
tæki geti tekið við þessu hlut-
verki,“ segir Ragnar og heldur
áfram:
„Þau verðmæti sem hafa orðið
til hjá Landsvirkjun sýna best að
þessi samvinna álfyrirtækja og
orkuiðnaðarins hefur skilað gríð-
arlega miklum og góðum árangri.“
Að sögn Ragnars eru nú þrjú
ár síðan Orkuveita Reykjavíkur
hóf að afhenda um 50 megavött af
þeirri raforku sem samið var um
árið 2007. Orkan hefur verið notuð
í álverinu á Grundartanga þar sem
fyrirtækið hefur farið í umtals-
verða fjárfestingu til að auka
framleiðslugetuna úr 260 þúsund
tonnum á ári í 293 þúsund tonn.
„Við erum að nýta raforkuna á
Grundartanga og það hefur verið
ágætt samstarf við orkufyrirtækið
um það,“ segir Ragnar.
Hann segir að Orkuveitan þurfi
að reisa nýjar virkjanir svo fyrir-
tækið geti staðið við samninginn.
Fyrirhuguð virkjun í Hverahlíð í
Ölfusi hefur oft verið nefnd í því
samhengi.
Verður byggt í fjórum áföngum
Álverið í Helguvík á eins og áður
segir að framleiða allt að 360 þús-
und tonn á ári. Það verður hins
vegar byggt í fjórum 90 þúsund
tonna áföngum. Kerskálabygging-
ar sem búið er að reisa á svæðinu
miðast við 90 þúsund tonna álver.
„Hver áfangi yrði þá 150 mega-
vött og við höfum horft til þess að
tryggja raforku í tvo áfanga til að
ná ákveðinni hagkvæmni,“ segir
Ragnar. Hann segir að álfram-
leiðsla í Helguvík eigi að geta haf-
ist um tveimur og hálfu ári eftir að
framkvæmdir hefjast.
„Auðvitað geta einstaka þætt-
ir tekið lengri tíma en álverið á
Grundartanga reis til dæmis á
fjórtán mánuðum. Það er hægt að
vinna þetta hratt,“ segir Ragnar en
tekur fram að Grundartangi hafi
státað af tengimannvirkjum og
öðrum nauðsynleg-
um innviðum áður
en álverið var byggt
þar.
„Hins vegar er
búið að leggja gríð-
arlega mikla vinnu
í höfnina í Helguvík
og þetta er mjög góð
staðsetning. Þá hefur
atvinnuleysi verið
hæst á Reykjanesi
og álver væri því
góð viðbót við fl óru
fyrir tækja.“
Staðsetningin veitir nú forskot
Norðurál hefur komið með yfi r
milljarð króna inn í landið á þessu
ári í gegnum fjárfestingarleið
Seðlabankans. Þeim fjármunum
var varið í framleiðsluaukninguna
á Grundartanga en verkefnið hefur
þegar kostað á annan tug milljarða
króna.
„Það er eðli álvera að þau eru
byggð fyrir ákveðna grunnaf-
kastagetu og síðan er reynt að
gera meira og betur. Þá er hægt
að auka strauminn en þetta er við-
kvæmt ferli því það má ekki ganga
of langt því þá getur maður misst
tökin á þessu.“
Fyrirtækið hefur síðastliðin
sextán ár framleitt svokallaða
álhleifa til útfl utnings. Nú er stefnt
að því að fjölga framleiðsluvör-
unum.
„Það eru ákveðin tækifæri í því
sem er að gerast varðandi framboð
á áli í Evrópu. Þar hefur gömlum
álverum verið lokað og ný hafa
ekki verið byggð. Þetta ásamt stöð-
ugt vaxandi eftirspurn á svæð-
inu skapar tækifæri fyrir íslensk
álfyrirtæki.“
Hann nefnir sem dæmi að þeir
álkaupendur í Evrópu, sem áður
versluðu við álverin sem nú er búið
að loka, geti í staðinn keypt ál frá
Íslandi og þannig sparað sér fl utn-
ingskostnað og tíma.
„Skilvirkir og góðir sjófl utning-
ar héðan frá Íslandi gefa ákveðið
samkeppnisforskot. Í Rússlandi er
álið til dæmis fl utt á milli heims-
álfa með lestum. Staðsetningin
sem áður var hindrun er því farin
að veita ákveðið forskot og skapa
ný tækifæri. Við blasir einnig
aukin eftirspurn eftir áli og verð
hefur farið hækkandi. “
Vilja reisa álver í Helguvík sem fyrst
Hagnaður af rekstri álversins á Grundartanga nam 3,2 milljörðum króna árið 2013. Ragnar Guðmundsson, for-
stjóri Norðuráls, segir ekki koma til greina að leysa HS Orku undan samningi um orkusölu til álvers í Helguvík.
FORSTJÓRINN Ragnar Guðmundsson tók við sem forstjóri Norðuráls í ágúst 2007 en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá
1997. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í HELGUVÍK Ekkert hefur gerst á framkvæmdasvæðinu í Helguvík frá síðustu áramótum og kerskálabyggingarnar tvær standa þar óklár-
aðar. Fréttablaðið/Pjetur
STÓRIÐJA
Haraldur Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
Það kemur
því ekki til
greina að leyfa
HS Orku að labba
frá samningnum.
Hagnaður af rekstri álversins á Grundartanga nam 27,6
milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári, jafnvirði 3,2 millj-
arða króna. Árið 2012 skilaði reksturinn jákvæðri afkomu
upp á 46,6 milljónir dala og dróst hagnaðurinn því saman
um 41 prósent milli ára.
„Við erum stolt af rekstri álversins og heilt á litið er upp-
gjörið ágætt miðað við aðstæður,“ segir Ragnar og bendir á
að álverð var talsvert lægra árið 2013 en 2012.
„Við höfum rekið álverið með hagnaði síðustu árin og
höfum náð miklum árangri í rekstrinum. Allar okkar lykil-
tölur eru mjög góðar. Þetta á við um framleiðni, öryggismál
og umhverfismál,“ segir Ragnar.
Samkvæmt ársreikningi Norðuráls Grundartanga ehf. fyrir
árið 2013, sem fyrirtækið skilaði til ársreikningaskrár ríkis-
skattstjóra í síðustu viku, greiddi það 718 milljónir króna í
tekjuskatt vegna hagnaðarins á árinu.
„Sumir hafa sagt að hagkvæmni álvera á Íslandi byggist á
Um 3,2 milljarða hagnaður af rekstrinum á Grundartanga
lágu orkuverði. Það er fjarri sanni. Það eru gæði framleiðsl-
unnar og forskotið sem fyrirtækin hafa þar sem er krítískt í
vexti og viðgangi álframleiðslunnar. Raforkuverð til álvera á
Íslandi er til dæmis hærra en í Miðausturlöndum, en álver
þar sækja í auknum mæli inn á Evrópumarkað.“