Fréttablaðið - 27.08.2014, Síða 25

Fréttablaðið - 27.08.2014, Síða 25
KYNNING − AUGLÝSING Heimilsþrif27. ÁGÚST 2014 MIÐVIKUDAGUR 3 Við sérhæfum okkur í gluggaþvotti og erum með margvísleg fyrirtæki í viðskiptum hjá okkur Glersýn er rótgróið fyrir-tæki sem býður upp á fjöl-breytta hreingerningar- þjónustu. Fyrirtækið hefur þó alla tíð sérhæft sig í gluggaþvotti og leggur mikla áherslu á vönduð vinnubrögð að sögn Ingva Reynis Berndsen. „Fyrirtækið var stofnað árið 2002 en byggir á gömlum grunni þar sem stofnandi þess, Ingvar Berndsen, rak það á eigin kenni- tölu frá árinu 1989. Starfsem- in hefur vaxið mikið síðan árið 2000 eftir að öll háhýsin voru byggð á höfuðborgarsvæðinu og starfsmenn okkar búa yfir mik- illi reynslu. Við sérhæfum okkur í gluggaþvotti og erum með marg- vísleg fyrirtæki í viðskiptum hjá okkur; verslanir, smærra skrif- stofuhúsnæði og háhýsi auk heimila.“ Auk gluggaþvottar býður Glersýn upp á gólfbónun, teppa- hreinsun og almenna ræstingar- þjónustu. Ingvi segir það algengan mis- skilning að Glersýn þjónusti ein- ungis stór fyrirtæki. „Glersýn sér um gluggaþvott fyrir allar stærð- ir húsa, allt frá hæstu blokkum niður í staka eldhúsglugga. Við erum með mörg heimili í áskrift og nær öll fyrirtæki sem skipta við okkur eru í áskrift enda fel- ast mikil þægindi í því fyrir- komulagi. Lítil fyrirtæki fá okkur í heimsókn vikulega eða á tveggja vikna fresti en stærri fyrirtækin sem eru í tveggja til þriggja hæða húsum fá okkur gjarnan mánað- arlega. Við þvoum glugga í háhýs- um hins vegar tvisvar til fjórum sinnum á ári.“ Góður tækjakostur Glersýn býr yfir góðum tækja- kosti og á meðal annars tvo körfu- bíla sem notaðir eru við glugga- þvott. „Áður fyrr leigðum við körfubíla en nú getum við þjón- ustað viðskiptavini okkar mun betur og á ódýrari hátt. Þegar mest er að gera á vorin og sumrin bætum við síðan nokkrum tækj- um við okkur. Þannig klárum við verkin fljótar sem viðskiptavinir okkar eru auðvitað ánægðir með.“ Annasamasti tími ársins að sögn Ingva er yfirleitt frá miðjum apríl fram í júlí þótt ýmsir ytri þættir geti breytt því, til dæmis eldgos, hvassviðri og sand- og saltfok. „Í það heila hefur þó álag- ið jafnast út yfir árið sem er breyt- ing frá fyrstu árum fyrirtækisins.“ Flestir viðskiptavinir Glersýn- ar eru á höfuðborgarsvæðinu en starfsmenn þess fara þó reglulega í nálæg bæjarfélög. „Við höfum undanfarin ár einnig þjónustað heimili og fyrirtæki á Snæfells- nesi, Akranesi, í Borgarnesi, á Sel- fossi og í Hveragerði og fyrirtæki á Suðurnesjum.“ Glersýn er með aðsetur í Lauf- brekku í Kópavogi. Nánari upp- lýsingar um fyrirtækið og þjón- ustu þess má nálgast á w w w. glersyn.is og á öflugri Facebook- síðu Glersýnar þar sem finna má úrval mynda af ýmsum verkefn- um fyrir tækisins. Sérfræðingar í gluggaþvotti Góður tækjakostur og reynslumiklir starfsmenn gera Glersýn að góðum kosti þegar kemur að gluggaþvotti. Glersýn sér um gluggaþvott fyrir allar gerðir húsa, frá hæstu blokkum til stakra glugga. Flest heimili og fyrirtæki eru í áskrift hjá Glersýn. Flestir viðskiptavina Glersýnar eru í áskrift. MYND/ANDRI MARINÓGlersýn sér um gluggaþvott fyrir allar stærðir húsa, allt frá hæstu blokkum niður í staka glugga. MYND/ANDRI MARINÓ Glersýn á tvo körfubíla sem notaðir eru við gluggaþvott. MYND/ANDRI MARINÓ Gluggaþvottur hefur alla tíð verið helsta sérhæfing Glersýnar. Hér þrífur starfsmaður glugga Hörpu. MYND/ANDRI MARINÓ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.