Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 48
Andinn léttur
en tónlistin þung
Súpergrúppan Oyama hefur unnið að
fyrstu plötu sinni í fullri lengd síðast-
liðið hálft ár. Enginn annar en Pétur
Ben á að framleiða plötuna en hann
er meðal annars þekktur fyrir störf
sín með Mugison og fyrir kvikmynda-
og leikhústónlist sína. „Andinn er
léttur en músíkin heví,“ segir Pétur.
Þá mun bandaríska plötufyrirtækið
Imperial Records gefa út smáplötu
sveitarinnar „I Wanna“ í Japan í
vetur. Þá plötu vann hljómsveitin
sjálf en Júlía Hermannsdóttir, söng-
kona sveitarinnar, segir að hljóm-
sveitin hafi verið
tilbúin að fá aðeins
meiri hjálp við
næstu plötu.
„Við vorum skotin
í því sem Pétur
hefur verið að gera, og
hann hafði sömuleiðis
lýst yfir áhuga á okkar
tónlist, þannig að
samstarf okkar
við hann kom
til frekar
náttúrulega í
byrjuninni.“
- ih
FRÉTTIR
AF FÓLKI
1 Hanna Birna hjólar í umboðsmann:
Íhugar að hætta í stjórnmálum
2 Er Bárðarbungu ekki um að kenna?
3 Van Gaal: Kagawa neitar
að hlusta á mig
4 Búið að slökkva eldinn
í Bjarnaborg– húsið var rýmt
5 Stærsti skjálft inn til þessa reið
yfi r í nótt
Mest lesið
Fjör í fimmtugsafmæli
„Það er alltaf meiri og meiri ástæða
til að fagna,“ segir Svandís Svavars-
dóttir, þingkona Vinstri grænna, sem
hélt upp á fimmtugsafmæli sitt með
fjölskyldu og vinum á Menningar-
nótt. Hún segir fimmtugsafmælið
tvímælalaust hafa verið skemmti-
legra en tvítugsafmælið.
Hápunktur afmælisins
var þegar börn Svan-
dísar tróðu upp. Það
var mikið sungið í
afmælinu og með-
limir Dómkórsins,
sem Svandís var eitt
sinn hluti af, leiddu
aðra afmælis-
gesti í söng
langt fram
eftir
nóttu.
- ssb
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
THE MORE YOU USE IT
THE BETTER IT LOOKS
UPPLIFÐU ÞITT