Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 20
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 20
Bestu kaup Guðbjargar Ríkeyjar Thoroddsen Hauksdóttur, rappara í Reykjavíkur-
dætrum, er stór hvítur postulínsfíll.
„Þetta var afskaplega fallegur og stór fíll úr postulíni sem ég keypti fyrir 10
krónur á tombólu,“ segir Guðbjörg.
Fíllinn var keyptur árið 2002 svo að Guðbjörg áætlar að þessar 10 krónur séu í
dag jafngildi um það bil 200 króna.
Einnig nefnir Guðbjörg exótíska vatnspípu. „Ég keypti fallega vatnspípu á Marm-
aris fyrir slikk. Kolin sem fylgdu með voru reyndar tekin af mér í tollinum vegna
eldhættu,“ rifjar hún upp.
Verstu kaup sín segir Guðbjörg vera andlitsfarða sem sölukona seldi henni.
„Þegar ég notaði meikið varð ég svo hrikalega mislit að það var ónothæft. Það
kostaði næstum því 6.000 krónur,“ segir Guðbjörg sem kveðst hafa gert fleiri mis-
tök í innkaupum. Verstu kaup ævi hennar hafi verið rándýr matréttur í Kína. „Það
átti að vera andarsteik en var í raun og veru bara bein með smá skinni.“
NEYTANDINN Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir
Mislit af misheppnuðu meiki
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 41,9 millj.
Ásakór 15 íbúð 4032 0 3 Kópavogur
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Lágmúla 4 www.miklaborg.is
OPIÐ HÚS
Fimmtud. 28. ágúst 17:30 - 18:00
Falleg 157 fm endaíbúð á 4.hæð
Fjögur rúmgóð svefnherbergi
Glæsilegt opið eldhús
Tvennar svalir, suður og vestur
Stæði í bílakjallara / Lyftuhús
Leikskóli og grunnskóli í göngufæri
Til leigu heil hæð í glæsilegu skrifstofuhúsnæði að Borgartúni
27 í Reykjavík. Hæðin er ca. 816 fm. að stærð og er á 4. hæð.
Möguleiki á að skipta hæðinni upp í minni einingar Lyfta er í
húsinu sem og bílageymsla sem er í kjallara. Næg bílastæði
einnig á lóð hússins.
Upplýsingar veitir Gunnar í síma 693-7310. eða gunnar@bygg.is
TIL LEIGU
Borgartún 27 – Rvk.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
„Við hvetjum neytendur til að vera
ávallt vel á verði,“ segir Neytenda-
stofa sem gerir athugasemdir við
verðmerkingar fjölda verslana og
fyrirtækja á Akureyri. Misræmi
var milli verðmerkinga í verslun-
um og raunverulegs verðs þegar
á kassa var komið. Mesti munur
var 18,4 prósent frá hillu að kassa.
Þetta er í fyrsta skipti frá árinu
2008 sem Neytendastofa kannar
verðmerkingar utan höfuðborg-
arsvæðisins. Fréttablaðið greindi
frá því um miðjan apríl að stofn-
unin sinnti ekki skyldum sínum á
öllu landinu.
Þórunn Anna Árnadóttir, sviðs-
stjóri hjá Neytendastofu, telur það
hafa ýtt við stofnuninni
„Það eru margir hlutir sem
spila inn í og öll umfjöllun hefur
áhrif. Við fengum engin auka-
fjárframlög til þessa verks en
ákváðum að ráðast í verk-
ið í sumar. Við munum
svo fara aftur í haust og
kanna hvernig til hafi
tekist með lagfæringar á
verðmerkingum á svæð-
inu,“ segir Þóra.
Þrjár matvöruverslanir
af þeim átta sem kannað-
ar voru höfðu verðmerk-
ingar í lagi.
Hjá hinum fimm verslununum
voru athugasemdir gerðar við
fjölda verðmerkinga. Talsvert var
af óverðmerktum vörum við kassa
og einnig voru standar með bókum
og sælgæti sérstaklega illa verð-
merktir að því er Neytendastofa
upplýsir.
Samkaup reka fjórar verslanir
á Akureyri, Strax á Borgarbraut
og Byggðavegi, Samkaup Úrval
í Hrísalundi og Nettó á
Glerártorgi. Gerð var
athugasemd við verðmerk-
ingar í öllum verslunum
fyrirtækisins.
Þær verslanir sem
höfðu verðmerkingar í
lagi var verslun 10-11 í
Kaupangi, Bónus í Lang-
holti og Hagkaup á Furu-
völlum.
Gunnar Egill Sigurðsson, for-
stöðumaður verslunarsviðs Sam-
kaupa, gagnrýnir að vera ekki
búinn að fá í hendur skýrslu Neyt-
endastofu.
„Á meðan ég veit ekki nákvæm-
lega hvað var að hjá okkur get ég
ekki tjáð mig um athugun Neyt-
endastofu,“ segir Gunnar.
Gísli Tryggvi Gíslason, versl-
unarstjóri Nettó á Glerártorgi,
harmar það að verðmerkingar
hafi ekki verið í lagi í verslun-
inni. Gísli segir að hann hafi hafið
störf í byrjun ágúst og því hafi
hann ekki verið verslunarstjóri
þegar könnunin var gerð.
„Ég er að kanna þetta hjá okkar
verslun. Ég las skýrsluna í gær
og við munum fara yfir alla búð-
ina og sjá til þess að hver einasta
vara hjá okkur sé merkt rétt. Þar
sem verðmerkingum er ábótavant
munum við einnig sjá til þess að
allar vörur séu verðmerktar,“
segir Gísli Tryggvi.
Að sögn Gísla er það skýlaus
réttur neytenda að vita hvað
varan kostar. „Það er klárt hjá
okkur að svona á þetta ekki að
vera. Við munum koma öllum
okkar hlutum á hreint.“
sveinn@frettabladid.is
Varað við tvöföldu
verðkerfi á Akureyri
Neytendastofa kannaði mun á hilluverði og kassaverði á Akureyri í sumar. Gerðar
voru athugasemdir hjá fimm af átta matvöruverslunum. „Munum sjá til þess að
hver einasta vara sé rétt verðmerkt,“ segir verslunarstjóri Nettó á Glerártorgi.
GÍSLI TRYGGVI
GÍSLASON
Nýtt rekstrarár er gengið í garð
hjá IKEA með nýjum vörulista.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir
að verð á öllum húsbúnaði lækki í
versluninni og að meðaltal lækk-
unarinnar sé um fimm prósent.
Lækkunin nemi tugþúsundum
króna á hverja fjölskyldu í landinu
miðað við viðskipti undanfarin ár.
IKEA segist lækka verð vegna
sterkari krónu, aukins stöðugleika
í efnahagsmálum, samninga um
hagstæðara innkaupsverð og lækk-
unar á flutningskostnaði. - ebg
Nýtt rekstrarár hafið í IKEA:
Lækka verð á
húsbúnaði
Spænska fatakeðjan Zara hefur
fjarlægt úr hillum sínum peysu
sem þykir minna á helför gyð-
inga. Peysan er með gula stjörnu
er minnir á Davíðsstjörnuna og
röndótt mynstur sem minnir á
fangabúninga sem notaðir voru í
einangrunarbúðum nasista.
Verslunarstjóri Zöru í Kringl-
unni segir að umræddri peysu
hafi ekki verið komið fyrir í
hillum Zöru-verslana á Íslandi.
Póstur um málið hafi þó borist
frá höfuðstöðvum Zöru. - aí
Peysa úr Zöru tekin úr sölu:
Þykir minna á
helför gyðinga
NETTÓ GLERÁRTORGI Gerðar voru athugasemdir við verðmerkingar í öllum versl-
unum Samkaupa. Verslunarstjóri ætlar að láta fara í gegnum verðmerkingar í allri
versluninni FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
„Samskipti á milli neytandans og framleiðandans
eru númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Eirný Sigurðar-
dóttir, eigandi Búrsins og skipuleggjandi matar-
markaðar í Hörpu um helgina.
Matarmarkaðurinn er nú haldinn í sjöunda sinn
en þetta er í þriðja sinn sem hann fer fram í húsinu.
Markmið hans er meðal annars að koma á milliliða-
lausri verslun bænda og framleiðanda við neytend-
ur.
„Framleiðendur koma líka saman og sjá hvað hver
annar er að gera og hefja samstarf,“ segir Eirný og
nefnir dæmi um samstarf Saltverks og Höllu Stein-
ólfsdóttur, bónda í Ytri-Fagradal. Það hefur leitt af
sér lífrænt hangikjöt með salti frá Saltverki, unnu
úr Ísafjarðardjúpi.
Aðsóknarmet var slegið í Hörpu í fyrra þegar
matarmarkaður Búrsins var haldinn. Þá lögðu 32
þúsund manns leið sína þangað. Eirný segist ekki
búast við öðrum eins fjölda í þetta sinn, margt hafi
þá spilað inn í. „Fyrir minn eigin smekk er bygg-
ingin ekki nógu stór til að taka við þessum fjölda,“
segir hún.
- ssb
Matarmarkaðurinn sló aðsóknarmet í fyrra og er nú haldinn í sjöunda sinn:
Búast við fjölda á matarmarkað
SKIPULEGGJENDURNIR Eirný Sigurðardóttir og Hlédís
Sveinsdóttir standa að baki matarmarkaðnum í Hörpu um
helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA