Fréttablaðið - 28.08.2014, Page 27

Fréttablaðið - 28.08.2014, Page 27
FIMMTUDAGUR 28. ágúst 2014 | SKOÐUN | 27 Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000 Klettagarðar 6, stórt atvinnuhúsnæði Reitir fasteignafélag bjóða til leigu 2.819 m2 atvinnuhúsnæði fyrir umfangsmikla starfsemi. Aðkoma að húsinu er eins og best verður á kosið, bæði fyrir gesti og atvinnutæki. Um er að ræða rúmgóðan sal með þremur innkeyrsluhurðum, minni sal með innkeyrsluhurð, fallegt skrifstofurými á efri hæð, eldhús, snyrtingu og sturtuaðstöðu. Fiskislóð 10, skrifstofuhúsnæði Reitir bjóða til leigu vandað 585 m2 skrifstofuhúsnæði á annarri hæð á vinsælum stað, steinsnar frá miðbænum. Rýmið skiptist í opið rými, fundarherbergi, nokkrar lokaðar skrifstofur og rúmgóða starfsmannaaðstöðu. Nánari upplýsingar veitir Halldór Jensson sölustjóri í 840 2100 eða halldor@reitir.is. Reitir eru stærsta fasteignafélag lands- ins á sviði útleigu atvinnuhúsnæðis. Við leigjum út yfir 130 eignir af öllum stærðum og gerðum um allt land. Við höfum undanfarið orðið vitni að sérkennilegri atburðarás vegna lekamáls- ins og misbeitingu innan- ríkisráðherra á valdi sínu með afskiptum af lögreglu- rannsókn. Við munum að endingu sjá hver viðbrögð umboðsmanns verða við málsvörn ráðherrans. Það sem meiru skiptir nú eru viðbrögð formanns Sjálfstæðisflokksins. Honum ber, sem for- manni stjórnarflokks, að standa vörð um stjórnfestu og leikreglur réttar- ríkisins. Hluti af því er að tryggja að stjórnmálamenn axli pólitíska ábyrgð af gerðum sínum, til að hlífa stjórnkerfinu og embættismönnum við óþarfa gagnrýni og álitshnekki. Þar bregst honum algerlega boga- listin. Þegar aðstoðarmaður ráðherra var ákærður fyrir að misfara með opinber gögn í ráðuneyti ráðherrans var ljóst að ráðherrann gat ekki setið áfram. Það er grundvallaratriði, sem allir virðast sammála um. Eng- inn – ekki einu sinni hörðustu máls- varnarmenn ráðherrans – hafa talið til greina koma fyrir hann að sitja áfram sem ráðherra dómsmála við þær aðstæður. Þá kemur að því hvað gerist næst. Í öllum öðrum löndum – og á öllum öðrum tímum á Íslandi – myndi það leiða til þess að ráð- herrann axlaði pólitíska ábyrgð og segði af sér. Fyrir því eru fordæmi. Klæðskerasaumuð breyting En formaður Sjálfstæðisflokksins virðist ekki ráða við þá leið. Til að forða því að ráðherra flokksins þurfi að axla ábyrgð á eigin verkum og framgöngu pólitískra aðstoðarmanna hennar er frekar farið í handahófs- kenndar ráðuneytabreytingar. Það er betra að brjóta upp stjórnkerfið en að skipta um ráðherra. Á undanförnum misserum hafa forystumenn ríkis- stjórnarflokkanna oft nefnt að til greina komi að breyta ráðuneytaskipan. Aldrei hefur verið rætt – fyrr en nú – um að stofna sérstakt dóms- málaráðuneyti. Breytingin er því ekki hluti af yfirvegaðri endurskipulagningu, heldur klæðskerasaumuð að þessum flótta Sjálfstæðisflokksins frá pólitískri ábyrgð. Enda var formaður flokksins að bögglast með það í nærri tvær vikur að finna út úr því hvernig væri hægt að kljúfa ráðu- neytið og endaði svo á því að biðja Framsóknarflokkinn að manna það. Það er saga til næsta bæjar að Sjálf- stæðisflokkurinn ráði ekki við að manna dómsmálaráðuneytið. Tekur undir ásakanir Pólitísk ábyrgð er hluti nauðsyn- legrar stjórnfestu. Sjálfstæðisflokk- urinn kemur okkur nú fyrir sjón- ir sem flokkur sem ræður ekki við að axla ábyrgð á landsstjórninni. Ef ráðherrar hans gera mistök þarf að breyta ráðuneytunum til að forða ráðherrunum frá því að bera ábyrgð á eigin verkum. „Völd án ábyrgðar“ ætti að vera hið nýja kjörorð Sjálf- stæðisflokksins. Annar hluti stjórnfestu er að standa vörð um réttan framgang mála og virða rétt eftirlitsstofnana til að vinna verk sín samkvæmt gild- andi lögum. Þar bregst Bjarni líka. Aðfinnslur ráðuneytis lögreglumála í fréttatilkynningu 18. júní sl. við yfir- standandi lögreglurannsókn í sumar voru látnar óátaldar og nú tekur hann undir ásakanir í garð umboðs- manns Alþingis, í stað þess að standa vörð um rétt umboðsmanns til að fylgja eftir máli innan gildandi laga- ramma eftir eigin dómgreind. Af þessu má ráða að Sjálfstæðis- flokkurinn ræður undir núverandi forystu ekki við að virða grunnregl- ur stjórnfestu í lýðræðissamfélagi. Bjarni bregst Við erum ekki kirkjurækin og ekki alin upp við að fara í guðshús nema á stórum stundum. Einmitt þess vegna verður þess gullmola, sem Rás 1 hefur flutt á kvöldin í áratugi, sárt saknað á mínu heimili. Ég hef hlustað á Orð kvöldsins í mörg ár og finnst það ómetanlegt. Þegar synir mínir voru ungir og með læti á háttatíma eða suðuðu um athygli, útskýrði ég fyrir þeim að þetta væri „eyrnanammið mitt“. Á unglingsárum sögðu þeir með andvarpi: „Mamma, þú hefur aldrei dottið inn í neinn þátt nema Orð kvöldsins!“ Alltaf virða þeir hlustun mína, líka maðurinn minn, og hlusti ég í eldhúsinu ganga þeir varlega um til að fá sér kvöldsnarl. Jafnvel hef ég stokkið upp frá gestum og kallað glaðlega, „Orð kvöldsins“, til að kveikja á útvarp- inu kl. 22:12, og látið það ganga á meðan gesta- skvaldrið heldur áfram á lægri nótunum. Gestir sem þekkja okkur minna, t.d. nágrannar, eru hissa; en allir hrífast með. „Þetta er af því ég nenni aldrei að lesa Biblíuna,“ segi ég, „meira að segja ekki Nýja testamentið, ég bara steinsofna. En þarna fáum við perlur þræddar upp á band, alveg fyrirhafnarlaust, og þetta er æðislegt veganesti, þetta er nefnilega svo praktískt. Eða er ekki lífið flókið? Við hefðum aldrei komist í gegnum daglegt líf, hvað þá hjónaband og uppeldi, án leiðsagnar. Þetta er svona abstrakt styrkur, maður skilur það ekki en það virkar.“ Aðrir gullmolar Ef RÚV er að þessum breytingum til þess að koma til móts við fjölmenningarþjóðfélagið, hvet ég þau til að gera þveröfugt: Halda þessu og fá inn fleiri gullmola, já, gimsteina, frá öðrum menningar- hópum; jafnt á íslensku sem og á öðrum tungu- málum. Hvernig væri það? Svo finnst mér líka að fylgja ætti vefsíða á ruv.is þar sem hægt yrði að fletta upp molum daganna og lesa beinar tilvitnan- ir, númer ritningagreina, nöfn tónverka og sálma- skálda og heiti trúarrita. Fyrir nokkrum árum stóð styrr um Orð kvölds- ins en þá var kvöldstundunum bjargað. Og nú á tímum aukinnar misskiptingar, aukinnar streitu og flóknara samfélags mættu slíkar stundir vera fleiri. Hvetja til kyrrlátra stunda Hugdetta þessu tengd: Fá landlækni, LSH, lýð- heilsustöð, heilsugæslurnar, tryggingastofnun, velferðarráðuneytið, mennta- og menningarmála- ráðuneytið, tryggingafélög, sjúkratryggingar, lög- regluna, Umferðarstofu, íþróttafélög, þjóðkirkj- una, geðlækna, sálfræðinga, svo og margvíslega trúarhópa og lífssýnarfélög, til þess að hvetja til kyrrlátra stunda. Fá leiklistarnema til að semja og flytja örstutta texta á borð við „Út í kvöld? Nei, verum bara heima.“ „Kringluna eða Smáralind? Hvernig væri að kíkja frekar til ömmu?“ „Æ, ekki bílinn. Röltum bara,“ sem flytja mætti á auglýs- ingatímum. Slíkir molar væru heilbrigt andóf gegn öllum „kauptu/upplifðu“ áróðrinum. Þessa mola- syrpu ættu ofangreindir aðilar að vilja styrkja í nafni lýðheilsu. Ég er þakklát fyrir þann kraft sem bjargaði morgunbænunum og vissulega er Orð dagsins að morgni til góð hugmynd – en hlustunin eykst ekki við þessa tilfærslu í dagskrá. Þess vegna vona ég að stjórnendur Rásar 1 sjái að sér og komi til móts við þá kröfu hlustenda sinna að halda Orði kvölds- ins á sínum stað og komi ennfremur til móts við aðra trúarhópa. Að umræðuþáttur á sunnudags- kvöldi geti komið í stað daglegrar trúariðkunar er mikill misskilningur. Arfur allra Íslendinga Kristinn menningararfur á Íslandi er dýrmætur, líka fyrir þá sem ekki eru kirkjuræknir og koma ekki í guðshús nema á stórum stundum. Samvinna kirkjunnar og RÚV hefur boðið upp á heimilisguð- rækni sem er frábær fyrir þennan stóra hóp. Og þó ég hafi fjölmenningarlegan bakgrunn; hafi sótt Guðspekifélagið á yngri árum og sé áskrifandi að Ganglera, hafi verið í Ananda Marga og lesið margt um hindúasið og gyðingdóm, hafi hrifist af kyrrð búddatrúar og fegurð íslams og allri trúar- fágun; þá verður lífsreynslan til þess að ég met kristnina æ meir – og ég er ekki ein um það. Orð kvöldsins ➜ Við erum ekki kirkju- rækin og ekki alin upp við að fara í guðshús nema á stórum stundum. Einmitt þess vegna verður þess gull- mola, sem Rás 1 hefur fl utt á kvöldin í áratugi, sárt saknað á mínu heimili. STJÓRNMÁL Árni Páll Árnason formaður Samfylk- ingarinnar RÚV Jóhanna M. Thorlacius vefritstjóri Veðurstofu Íslands

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.