Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 30

Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 30
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Guðbjörg er menntuð bæði í grafískri hönnun og vöruhönnun auk þess sem hún hannar prjónaflíkur, bæði handprjónaðar og vél- prjónaðar. Hún hefur unnið hjá fatasöfnun Rauða krossins í tæp tvö ár og líkar mjög vel. „Það er mikil spenna að vita hvað kemur upp úr kössunum á hverjum degi. Nærri daglega finn ég eitt- hvað einstakt og fallegt,“ segir Guðbjörg. Hún bætir við að það sé gaman að sjá hverslags verðmæti Íslendingar gefi Rauða krossinum. Helsta starf Guðbjargar er að fara í gegnum þau föt sem þykja heillegust og söluvænlegust. Hún leitar að saumsprettum og blettum og ákveður hvort þær skuli fara í búðirnar eða ekki. Þegar eitthvað sérstaklega fallegt rekur á fjörur hennar heldur hún flíkinni oft eftir í ein- hvern tíma. „Stundum er fólk að biðja okkur um að leita eftir sérstökum flíkum, stundum þarf kjóla fyrir sérstök tilefni og þá er gott að eiga eitthvað á lager og stundum er sláin bara svo dásamlega falleg að ég þarf að horfa aðeins betur á hana áður en ég sendi hana frá mér í búð- irnar,“ segir Guðbjörg og hlær glaðlega. Guðbjörg heillast sérstaklega af fallegum handunnum vörum. „Við höfum fengið handofna kjóla, finnska hönnunarkjóla, Burberry-frakka og marga fal- lega kjóla,“ segir Guðbjörg sem segist stundum freistast til að kaupa flíkur sjálf. „En sem betur fer passar ekki allt. Annars væri ég í miklum vandræðum.“ ■solveig@365.is SAFNAR GULLMOLUM ENDURNÝTT FÖT Guðbjörg Rut Pálmadóttir starfar hjá fatasöfnun Rauða kross Íslands. Hún velur úr þau föt sem seld eru í Rauðakrossbúðunum. Á hverjum degi berast gullmolar sem Guðbjörg passar sérstaklega upp á. Fallegur kjóll frá japanska merkinu Comme des Garçons. Guðbjörg telur að dragtin sé frá sjötta eða sjöunda áratugnum. Náttkjóll frá áttunda áratugnum. Mikill fjöldi yfirhafna kemur í fata- söfnunina, bæði kápur, jakkar og mokkajakkar. Þessi græna kápa er mjög vel farin og í góðu standi. Fjöldi skópara berst fatasöfnuninni. Öðru hvoru berast skór frá Dior og öðrum dýrum tískumerkjum. VIÐ STÖRF Guðbjörg fer yfir fötin og kannar ástand þeirra. MYND/PJETUR SKÓTAU HEILLEG KÁPA KLASSÍSK DRAGT COMME DES GARÇONS BABYDOLL Bæjarlind 6 • S. 554 7030 www.rita.is Við erum á Facebook GALLABUXUR FRÁ KR. 10.900.- BEINAR SKÁLMAR HÁAR Í MITTIÐ STR. 36-46 3 SÍDDIR: 78, 82, 86 LITIR: BLÁTT OG SVART Nýjar vörur komnar! Síðustu dagar af rýmingarsölu á eldri vörum Skipholti 29b • S. 551 0770 Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.