Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2014, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 28.08.2014, Qupperneq 32
FÓLK|TÍSKA Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tísku og finnst gaman að fylgjast með tískustraumum og hvað er að gerast hverju sinni. Ég var að byrja á mínu fyrsta ári í Listaháskóla Íslands þar sem ég mun læra fatahönnun næstu þrjú árin. Í stuttu máli er ég mikill fjölskyldumaður, er með athyglisbrest og er mjög óþolinmóður, íþróttir spila mikla rullu í lífi mínu og ég hef einnig gríðarlegan áhuga á tónlist.“ Hefurðu lengi pælt í tískunni? „Ég byrjaði mjög ungur að hafa skoðanir á fatavali. Var alltaf í frekar litríkum fötum á mínum yngri árum og var ekki sama í hvernig skóm ég gekk. Ég fæddist og ólst upp í Englandi og gekk í enskan skóla frá fjögurra ára aldri. Ég þurfti því að klæðast enskum skólabúningi sem mér fannst alveg óþolandi. Það var mikill léttir fyrir mömmu því þá slapp hún við allt vesenið á mér á morgana.“ Hvernig klæðir þú þig hversdags? „Eftir veðri og vindum.“ Hvernig klæðir þú þig spari? „Það er alltaf gaman að klæðast jakkafötum þegar tilefni gefst.“ Hvernig lýsir þú stílnum þínum? „Stíllinn minn er mjög fjölbreyttur. Ég er óhræddur við að prófa eitthvað nýtt og finnst sérstaklega skemmtilegt að klæðast flík- um sem fáir eiga. Annars prófa ég allt. Stundum ganga hlutirnir en það er mjög oft sem þeir ganga ekki.“ Hvar kaupir þú fötin þín? „Ég kaupi flest mín föt í útlöndum. Annars er það JÖR hér heima og einhverjar fleiri búðir.“ Eyðir þú miklu í föt? „Ég væri að ljúga ef ég segðist eyða litlum peningum í föt. Annars tel ég mig vera góðan í að finna vönduð föt á miklum afslætti.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín? „Ég er mikill skófíkill og hef verið það síðan ég var smá stubbur. Ég á þó nokkur pör af Jordan-skóm sem erfitt er að festa kaup á og geta kostað sitt.“ Uppáhaldshönnuður? „Riccardo Tisci, yfirhönnuður Givenchy, er í miklu uppáhaldi. Það væri draumur að vinna fyrir hann einhvern daginn.“ Bestu kaupin? „Skellti mér í Kringluna fyrir nokkr- um árum með það að markmiði að kaupa sólarvörn fyrir útskriftarferð. Ég labbaði út með leðurjakka frá All Saints sem ég fékk á 90% afslætti. Svo keypti ég mér Kooples-jakkaföt í London í sumar á 70% afslætti sem var frekar nett.“ Verstu kaupin? „Ég hef gert mörg skelfileg kaup í gegnum tíðina. Mér detta strax í hug eiturgræn Moon Boots sem ég keypti í einhverri skíðaferð á Ítalíu þegar ég var þrettán eða fjórtán ára. Aldrei verið notuð enda ljótustu skór sögunnar.“ Hver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að tísku og útliti? „Eitt af mínum helstu áhugamálum eru skór. Maður á aldrei of marga. Ég er í skógrúppu á Facebook með helstu skófíklum landsins þar sem við ræðum daglega skómenningu heimsins. Síðan segjum við hver öðrum frá nýjustu kaupunum og svo framvegis.“ Hvers konar fylgihluti notarðu? „Geng með Nike FuelBand á úlnliðnum daglega. Svo á ég það til að ganga með derhúfur.“ Áttu þér tískufyrirmynd? „Kanye og A$AP Rocky eru alltaf nettir. TÍSKUNÖRD MEÐ ATHYGLISBREST HERRATÍSKA Bergur Guðnason var að byrja í fatahönnun í Listaháskóla Íslands og vinnur í JÖR. Tískuáhuginn hefur fylgt honum nánast frá fæðingu. TÍSKUÁHUGAMAÐUR Uppáhaldshönnuður Bergs er Riccardo Tisci, yfirhönnuður Givenchy. „Það væri draumur að vinna fyrir hann einn daginn.“ MYND/GVA KJÓLAR OG MUSSUR NÝ SENDING Sjá fleiri myndir á 30% afsláttur Mussur áður 14.990 nú 9.990 kr. Stærðir 42-50 Kjólar áður 16.990 nú 12.590 kr. Stærðir 38-46 Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland. -Flest stéttarfélög styrkja nemendur til náms. -Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu Helstu námsgreinar: - Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. - Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. - Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. - Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8-22 Umsögn: S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel undir væntingum þar sem fjölmargir kennarar komu að kennslunni og áttu þeir auðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið okkar er og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma efninu til skila. Námið gefur mikla atvinnumöguleika og spennandi tímar eru framundan. Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.