Fréttablaðið - 28.08.2014, Page 54

Fréttablaðið - 28.08.2014, Page 54
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 „Þetta eru verk sem ég hef verið að vinna að síð- ustu ár og eiga ekki beint heima á sviði þar sem ég er vanari að vinna,“ segir danshöfundurinn Mar- grét Bjarnadóttir en hún opnar sýningu sína LIFE-EFI í Kling og Bang klukkan 17.00 í dag á vegum Reykjavík Dance Festival. „Þetta er svona önnur hlið á því sem ég hef verið að gera,“ segir Margrét. „Þetta eru ljósmyndir, teikningar og vídeóverk en þetta eru allt bara hugmyndir og því ekkert frábrugðið því sem ég geri vanalega en samt í öðru formi,“ lýsir listamaðurinn en sýningin er fyrsta einkasýning Margrétar í safni. „Ég held að það séu tengingar á milli verkanna á sýningunni en þau eru samt sjálfstæð,“ segir Margrét. „Ljósmyndirnar eru eitt verk og myndbandsverkið annað en ég held að það megi finna tengingar á milli.“ Meðal verka Margrétar á sýningunni eru til dæmis svonefnd anagröm þar sem búið er að endurraða stöf- um í nöfnum fólks og finna út nýja merkingu sem lýsir persónunni. Sem dæmi er hún með fjölmiðlamanninn „Egill Helgason“ og hefur endurraðað stöfunum sem „og lesa helling.“ „Þetta eru annaðhvort þjóðþekktir einstaklingar eða bara vinir mínir,“ segir Margrét en hún er með fjór- tán slík anagröm. „Ég þarf að þekkja persónuna eða vita nógu mikið um hana af því þetta eru ekki bara ein- hver orð. Þau þurfa að kallast á við persónuna á bak við nafnið.“ Annað verk sem Margrét sýnir í dag er myndbands- verk þar sem hún fékk til sín fimm einstaklinga, sem misst hafa einhvern nákominn, til þess að reyna að muna og kalla fram hreyfingar eða háttalag viðkom- andi manneskju. „Þetta er fimm rása myndbandsverk þar sem hver einstaklingur er á sínu sjónvarpi og allt sýnt samtímis,“ lýsir Margrét. Eins og áður hefur komið fram verður sýningin opnuð í Kling og Bang í dag klukkan fimm en hún mun standa í mánuð. baldvin@365.is Ég held að það séu tengingar á milli verkanna Allt bara hugmyndir Danshöfundurinn Margrét Bjarnadóttir opnar fyrstu einkasýningu sína í Kling og Bang í dag en á sýningunni má sjá aðra hlið á listamanninum í verkunum. „Við erum oft feimin við að koma með skapandi lausnir í ýmsum verkefnum,“ segir Karl Guðmunds- son en hann stendur fyrir fyrir- lestri Toms Kelley í Háskólabíói klukkan tólf í dag. Kelley er einn eigenda hönnunarskrifstofunnar IDEO og höfundur metsölubók- arinnar The Art of Innov ation en hann gaf nýlega út bókina Sköpun- arkjarkur sem þýdd var á íslensku. „Það er almennt viðurkennt að nýsköpun og skapandi hugsun séu drifkrafturinn að baki árangri fyr- irtækja og einna verðmætustu eig- inleikar leiðtoga á okkar dögum,“ segir Karl. „Við þurfum ekki öll að vera listamenn en við getum verið skapandi lögfræðingar, læknar, framkvæmdastjórar eða sölu- menn.“ Karl kynntist Kelley þegar hann bjó í San Francisco og starfaði hjá Ekso Bionics og segir það hafa verið tilviljun að þeir hafi kynnst á góðgerðarsamkomu. „Við vorum að kynna tækið okkar sem hjálpar mænusködduðum að ganga,“ segir Karl. „Honum leist svo vel á verk- efnið að það endaði með því að við unnum verkefnið með IDEO og upp úr því hittumst við oft og hann talaði mikið um þessa bók sem ég var svo áhugasamur um.“ Í bókinni reynir höfundurinn að fá fólk til að verða meira skapandi einstaklingar og bókin inniheldur nokkrar reynslusögur fólks sem fer eftir aðferðum Kelleys. „Þegar ég kláraði að lesa hana þá fannst mér hún bara þurfa að koma út á íslensku og hótaði að þýða hana sjálfur ef forlagið myndi ekki finna góðan þýðanda,“ segir Karl og hlær. „Það er gríðarlegur áhugi fyrir þessu á Íslandi. Þetta á við fleiri en bara nýsköpunarfyrir- tæki, það geta allir komið með meira skapandi lausnir í þeim verkefnum sem þeir sinna dags- daglega.“ Eins og áður hefur komið fram fer fyrirlesturinn fram í Háskóla- bíói klukkan 12.00 og er hann haldinn í samstarfi við Hönnun- armiðstöðina, Símann og Háskóla Íslands en aðgangur er ókeypis. baldvin@365.is Það geta allir skapað Rithöfundurinn og nýsköpunarhugsuðurinn Tom Kelley heldur ókeypis fyrirlestur í Háskólabíói í dag en hann gaf nýlega út bókina Sköpunarkjarkur á íslensku. LEIKUR SÉR AÐ LISTINNI Margrét Bjarnadóttir segir að verkin á sýningunni séu sjálfstæð en sjá megi tengingar á milli þeirra. FRUMKVÖÐULL Tom Kelley segir að fólk sé feimið við að koma með skapandi lausnir. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014 Tónleikar 17.00 Perlur íslenskra sönglaga í Hörpu. Fluttar verða perlur íslenskra sönglaga, þjóðlaga, sálma og ættjarðarsöngva. Miða- verð er 3.900 krónur. 21.00 Heiladans 37 á Bravó. Þeir lista- menn sem koma fram eru YAGYA, BUSPIN JEIBER og ORACLE. 21.00 Elín Ey kemur fram á tónleika- röðinni á Hlemmur Square. Elín Ey er íslenskur söngvari, lagahöfundur og gítar- leikari. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Cell7 og Kött Grá Pjé koma fram á Græna hattinum. Cell7 kemur nær alltaf fram ásamt söngkonunni Sunnu, Earmax og Dj Big Gee. En á tónleikunum mun hún einnig hafa hljómsveit sér til liðsinnis. 22.00 Gummi Jóns og hljómsveitin Vest- anáttin halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La- Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. Fræðsla 20.00 Erlendur Sveinsson leiðir menning- argöngu þar sem skoðuð verður merkileg saga kvikmyndahúsa og kvikmyndasýninga í Hafnarfirði, sem nær aftur til upphafsára kvikmyndasýninga á Íslandi. Gangan hefst við Hafnarborg. Sýningar 10.00 Expo skálinn í Hörpu. 360 gráðu upplifun af íslenskri náttúru í Hörpu. Miðaverð er 1.500 krónur. 12.00 Enskuleiðsögn um sýninguna Í ljósa- skiptum í Listasafni Íslands, Laufásvegi 12. Sýningin tekur mið af þeim magnaða hluta sólarhringsins, sem hvorki er dagur né nótt heldur bil milli beggja. 16.00 Sænska listakonan Suzanna Asp opnar verkið sitt Secret Garden Verönd í bakgarðinum á Hóli gestavinnustofu að Vesturvegi 15 á Seyðisfirði. 17.00 Málverkasýning Kristins Alexanders- sonar verður opnuð í Boganum í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi. Kristinn sýnir bæjarlífsmyndir sem eru minningar uppvaxtaráranna og íslenskt landslag. 19.00 Danski sirkusinn Sirkus Baldoni heimsækir Ísland og kemur fram í Íþrótta- höllinni á Húsavík. Miðaverð er 3.000 krónur. Uppákomur 21.00 DJ-teymið Alex Baldwin bjóða til tónlistarveislu á skemmistaðnum Dolly. Gestir eru hvattir til þess að klæða sig eftir veðri. Bæjarhátíðir 17.00 Bæjarhátíð Seltirninga hefst form- lega í Bókasafni Seltjarnarness. Í Eiðisskeri verður opnuð sýningin Endurkast og Ojba Rasta verður með tónleika fyir alla fjöl- skylduna sem hefjast kl. 18.00. Leikrit 18.00 Sýningin Flækjur fer fram í anddyri Borgarleikhússins en miðaverð er 4.950 krónur. 19.00 How to become Icelandic in 60 minutes er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórs- syni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni í Kaldalóni í Hörpu. 21.00 Sjö börn gyðinga - Leikrit fyrir Gaza í Bæjarbíói, Hafnarfirði. Við bygg- ingu verksins var skoðað áhrif ástandsins á börn, ásamt því að vinna með tengsl milli leikja og raunveruleika. Sýningin er á vegum Leikfélagsins Óríon og er frítt inn. 21.00 Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson verður sýnt í Borgarleikhúsinu. Miðaverð er 4.750 krónur. 21.30 Saga Sigurðardóttir og samstarfs- félagar sköpuðu Predator verkið í þremur þáttum þar sem kórverk, eróbikk, klúbba- teknó og velúr varpa fram birtingarmynd þjáningar, náð hennar og fegurð. Verkið er sýnt í Þjóðleikhúsinu og er miðaverð 2.500 krónur. Málþing 17.00 Málþing í sal Lyfjafræðisafnsins við Neströð á Seltjarnarnesi. Yfirskrift mál- þingsins er Epli, ber og annað góðgæti. Ræktunartilraunir í Nesi á átjándu öld. Málþingið er öllum opið. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.