Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 56

Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 56
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| MENNINGBÍÓ | 40 ➜ Skjaldbökurnar í hnotskurn Emmy-verðlaunin voru afhent í 66. sinn í Nokia Theatre í Los Angeles aðfaranótt þriðjudags. Fjölmargir frábærir leikarar voru hunsaðir af akademíunni í ár, til að mynda Mad Men-stjarn- an Jon Hamm sem hefur verið til- nefndur til Emmy-verðlauna alls þrettán sinnum en aldrei unnið. Í ár tapaði hann fyrir Bryan Cranston úr Breaking Bad. Leikkonan Kerry Washing- ton var tilnefnd í annað sinn í ár fyrir leik sinn í dramaþáttunum Scandal en laut í lægra haldi fyrir Julianna Margulies úr The Good Wife. Önnur stórleik- kona sem var líkleg í þeim flokki var Robin Wright fyrir leik í House of Cards. Margir bjugg- ust við því að Orange is the New Black-serían yrði sigursæl og var leikkonan Kate Mulgrew líkleg til að hreppa verðlaun fyrir aukaleik í gamanseríu. Hún tapaði fyrir Allison Janney og þættirnir sjálfir náðu ekki að næla sér í verð- laun sem besti gamanþáttur. Þá styttu hlaut Mod- ern Family. Hunsuð á Emmy BÍÓFRÉTTIR 7,1 46% 32% 45ára Jack Black leikari Helstu myndir: Kung Fu Panda, King Kong, School of Rock og Tenacious D in The Pick of Destiny AFMÆLISBARN DAGSINS Leikkonan Lake Bell ætlar að leik- stýra kvikmyndinni The Emperor’s Children sem byggð er á skáldsögu Claire Messud. Lake þreytti frumraun sýna í leikstjóra- stólnum með myndinni In a World sem vann Waldo Salt-handritshöfunda- verðlaunin á Sundance- kvikmyndahátíðinni og keppti einnig um verðlaun dómnefndar. Myndin var einnig valin ein af tíu bestu óháðu myndunum af National Board of Review í fyrra. Leikstýrir á ný Dómari hefur fellt niður mál eiganda klámmyndarinnar Deep Throat gegn The Weinstein Co. en eigendur myndarinnar héldu því fram að myndin Lovelace frá 2013 bryti í bága við höfundarréttarlög. Lovelace fjallar um ævi klámstjörn- unnar Lindu Lovelace, stjörnu Deep Throat. Töldu eigendur þeirrar síðarnefndu að þrjár senur úr Deep Throat hefðu verið endurgerðar í Lovelace en dómari taldi það réttmætt. Málið fellt niður The Giver spenna Aðalhlutverk: Jeff Bridges, Meryl Streep, Brenton Thwaites, Alexander Skarsgård og Katie Holmes. FRUMSÝNINGAR Fading Gigolo gaman Aðalhlutverk: John Turturro, Woody Allen, Sharon Stone, Vanessa Paradis, Sofia Vergara og Liev Schreiber. 6,3 58% 54% Kvikmyndin Teen- age Mutant Ninja Turtles er fyrsta myndin um skjald- bökubræðurna fjóra í þrívídd. Hún ger- ist einhvern tíma í framtíðinni þegar ótti og myrkur hvílir yfir New York. Geimveran Shredder ber ábyrgð á því og ætlar að verða einvaldur á jörðinni en reiknar ekki með að ninjabræðurnir láti til skarar skríða, undir leiðsögn læri- meistara síns, rottunnar Splinters. Nánast sérhvert mannsbarn kannast við skjaldbökubræðurna fjóra sem vöktu athygli heimsins seint á níunda áratug síðustu aldar og upplifðu sitt blóma- skeið snemma á þeim tíunda. Skjaldböku- bræðurnir sáust fyrst árið 1984 og því kemur kvikmyndin Teenage Mutant Ninja Turtles út á þrjátíu ára afmæli þeirra. Í aðdraganda myndarinnar létu aðdá- endur í sér heyra þegar framleiðandinn Michael Bay vildi að skjaldbökurnar væru af geimverukyni. Þá vildi hann einn- ig hafa titil myndarinnar Ninja Turtles og sleppa Teenage Mutant. Aðdáendur bræðranna urðu æfir og tók Michael þetta til baka. Myndin hefur gert það gott í miðasölu vestan hafs og toppaði lista yfir mest sóttu myndirnar um frumsýningarhelgina með 65,5 milljónir dollara, rúma 7,6 millj- arða króna. Fór þetta fram út björtustu vonum því spekúlantar höfðu spáð miða- sölutekjum upp á 40 til 45 milljónir doll- ara. Myndin hélt toppsætinu aðra vikuna sem hún var í sýningu en í þeirri þriðju laut hún í lægra haldi fyrir Guardians of the Galaxy. Í aðalhlutverkum eru Megan Fox, Will Arnett, William Fichtner, Alan Ritchson, Johnny Knoxville, Whoopi Goldberg og Tony Shalhoub. liljakatrin@frettabladid.is Aðdáendur skjaldbakanna létu framleiðandann heyra það Kvikmyndin Teenage Mutant Ninja Turtles verður frumsýnd á Íslandi á morgun. Aðsókn að myndinni fór fram úr björtustu vonum enda margir sem eiga ljúfar minningar tengdar skjaldbökubræðrunum skrautlegu. Leonardo (Leo)– Útsjónarsamur og hugrakkur leiðtogi sem er með bláa grímu og tvö löng, beitt sverð. Hann ber mesta ábyrgð þeirra bræðra sem leiðir oft til rimmu á milli hans og Raphaels. Leonardo er skjaldbakan sem finnur lausnirnar og hugsar vel um bræður sína þrjá. Leonardo heitir í höfuðið á upp- finningamanninum, listamanninum og myndhöggvaranum Leonardo da Vinci. Michelangelo (Mike eða Mikey)– Afslapp- aður og frjálslegur grínari sem er með appelsínugula grímu og nunchakus-vopn. Hann er barnalegastur af skjaldbökunum og er mjög ævintýragjarn. Hann elskar líka pitsu. Honum má lýsa sem brimbrettatýpu. Hann heitir í höfuðið á ítalska listmálaranum, arkitektinum og myndhöggvaranum Michelangelo en nafn hans var upprunalega vitlaust skrifað. Raphael (Raph)– Raphael er slæmi strákurinn í hópnum og er með rauða grímu og gengur um með svokölluð sai- sverð. Hann er mjög sterkur og árásargjarn og hikar ekki við að veita fyrsta höggið. Hann er kaldhæðinn og oft meinfyndinn. Hann er afar hlið- hollur bræðrum sínum og lærimeistara. Hann heitir í höfuðið á ítalska listamann- inum og arkitektinum Raphael. Donatello (Don eða Donnie)– Donatello er vísindamaður, uppfinningamaður, verkfræðingur og tæknisnillingur. Hann er með fjólubláa grímu og gengur með vopn sem kallast „bo staff“. Hann er ekki hrifinn af ofbeldi og vill frekar nota gáfur sínar til að leysa vandamál. Hann hikar þó aldrei við að verja bræður sína. Hann heitir í höfuðið á ítalska listamanninum og myndhöggvaranum Donatello. 6,4 34% 20% 4 LITIR AF BÁÐUM GERÐUM NÝTTU TÆKIFÆRIÐ KOMDU STRAX

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.