Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 64

Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 64
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48 Ísland með á EM 2015 Strákarnir í körfuboltalandsliðinu skrifuðu nýjan kafl a í sögu íslenska körfuboltans þegar íslenska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í fyrsta sinn þrátt fyrir naumt tap gegn Bosníu í höllinni. NÆST Á DAGSKRÁ ER EM Strákarnir í íslenska körfuboltalandsliðinu fögnuðu þrátt fyrir tap fyrir Bosníu enda gerðu þeir nóg til að komast á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Stjarnan mætir Inter öðru sinni í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á hinum magnaða 80.000 sæta San Siro-velli í Mílanó í kvöld. Einvígið er í raun búið eftir 3-0 sigur Inter í Laugardalnum í síðustu viku og Garðbæingar eru meðvitaðir um það. „Við ætlum bara að njóta þess að spila þarna. Uppleggið er að koma þeim á óvart og reyna að skora til að búa til leik úr þessu. Það væri algjör draumur að skora fyrsta markið,“ seg- ir Arnar Már Björgvinsson, kantmaður Stjörnunnar, við Fréttablaðið. Hann var í rútu á leið á San Siro á síðustu æfingu fyrir leik þegar Fréttablaðið tók hann tali. Spennan leyndi sér ekki. „Inter var alltaf mitt fyrsta lið þegar ég var að alast upp þannig að ég hef lengi horft hýru auga til San Siro. Það er bara geðveikt að vera að fara að spila þarna og ég get ekki beðið eftir því að komast út á grasið núna.“ Þrátt fyrir að vera margfalt stærra, ríkara og frægara lið sá Inter þó ekki almennilega um gesti sína hvað varðar æfingaaðstöðu. „Þeir redduðu okkur einhverjum velli sem var alveg hlægilega lélegur. Við enduðum á að æfa á einhverju gervigrasi við enda vallarins. Ég veit ekki hvað þetta átti að vera. Við redduðum þeim Hlíðarenda þannig að Inter æfði á betri velli á Íslandi en við í Mílanó,“ segir Arnar Már. -tom Draumur Arnars Más rætist í kvöld ERFITT Inter er 3-0 yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum fimmtán ára og yngri, sem þjálfað er af Frey Sverrissyni, vann bronsverðlaun á Ólympíuleikum æskunnar í Nanjang í Kína. Piltarnir lögðu Grænhöfðaeyjar í leiknum um þriðja sætið, 4-0, en þeir töpuðu fyrir Suður- Kóreu í undanúrslitum. Kolbeinn Finnsson úr Fylki kom Íslandi yfir á 14. mínútu með marki úr vítaspyrnu og Fjölnismaður- inn Torfi Tímóteus Gunnarsson bætti við öðru marki á 40. mínútu. Leikmaður Grænhöfðaeyja skoraði svo sjálfsmark áður en Framarinn Helgi Guðjónsson inn- siglaði 4-0 sigur Íslands á 61. mínútu leiksins. Perú stóð uppi sem Ólympíumeistari eftir sigur á Kóreumönnum í úrslitaleik, 2-1. Ólympíubrons hjá U15 SUND Hrafnhildur Lúthersdóttir, sunddrottningin úr SH, stórbætti eigið Íslandsmet í 100 m bringu- sundi í 25 metra laug í dag á Heimsbikarnum sem fer fram í Doha í Katar. Hrafnhildur synti gríðarlega vel í dag en hún kom í mark á 1:06,88 og hafnaði í þriðja sæti. Það er glæsileg bæting hjá Hrafnhildi en fyrra Íslandsmet hennar var 1:07,26, sem hún setti í Dubai árið 2010. Hrafnhild- ur keppti á dögunum á Evrópu- meistaramótinu í 50 metra laug sem fer fram í Berlín þar hún setti nýtt Íslandsmet í 100 metra bringusundi. - kpt Nýtt Íslands- met sett í Doha Á FLUGI Hrafnhildur hefur verið á frábæru skriði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR KOMINN Á BLAÐ Sanchez skoraði fyrsta mark leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Arsenal komst í gær, sautjánda árið í röð, í riðlakeppni Meistaradeildarinnar eftir 1-0 sigur á tyrkneska liðinu Besik- tas. Alexis Sanchez kom Arsenal yfir undir lok fyrri hálfleiks og héldu Skytturnar út þrátt fyrir að Mathieu Debuchy hafi fengið rautt spjald um miðbik seinni hálfleiks. Rúrik Gíslason og félagar í FC Kaupmannahöfn töp- uðu 4-0 gegn Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Rúrik lék seinasta hálftímann í leiknum en hann er nýkominn af stað á ný eftir slæm meiðsli í baki. - kpt Sanchez með sigurmarkið KÖRFUBOLTI Mikið var rætt og ritað um möguleika Hlyns Bæringssonar á að leika með Íslandi gegn Bosníu í gær en þrátt fyrir meiðsli á ökkla þá byrjaði hann leikinn. Meiðslin og villuvandræði gerðu það þó að verkum að Hlynur gat ekki beitt sér eins og hann er vanur en villuvandræðin má að miklu leyti rekja til meiðslanna. Greinilegt var að upplag Bosníumanna var að sækja á Hlyn. „Þetta er í fyrsta sinn á ferlinum sem ég er með fulla Laugardalshöll og það var leiðinlegt að geta ekki tekið þátt í því en að sama skapi hef ég oft spilað 35 mínútur og aðrir minna og ég reyndi að aðstoða eins og ég gat á bekknum,“ sagði Hlynur eftir leikinn í gær. „Það er mjög sérstök tilfinning að fagna eftir tap- leik. Ég hef aldrei gert það áður. Ég meira að segja spurði hvort það væri við hæfi en við erum komnir á Evrópumótið og þótt þetta tapaðist þá erum við mjög ánægðir með það. „Við hefðum getað unnið þennan leik og vorum dálítið óheppnir en aðaltakmarkið hafðist. Við vorum aðeins hik- andi til að byrja með og það hefur loðað aðeins við okkur að vera litlir í byrjun en svo getum við spilað. „Við erum með allt öðruvísi lið en aðrar þjóðir. Við vorum með fimm bakverði inn á um tíma með Pavel (Ermolinskij) sem miðherja. Menn eru ekki vanir að spila á móti þessu,“ sagði Hlynur um sérstöðu íslenska liðsins. „Það væri gaman að ná einhverjum sigrum á Evrópu- mótinu. Við spiluðum mjög vel í undankeppninni og svo duttu hlutir með okkur líka. Það þarf. Við áttum það eigin- lega skilið eftir þessa leiðindariðla sem við höfum verið í undanfarin ár,“ sagði Hlynur kampakátur að leikslokum. - gmi Mjög sérstakt að fagna eft ir tap Hlynur Bæringsson var gríðarlega sáttur þrátt naumt tap gegn Bosníu í gær. FÉLAGAR FAGNA Pavel Ermolinksji faðmar hér Jón Arnór Stefánsson í leikslok þegar ljóst var að þeir væru að fara saman á EM á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Brotið var blað í sögu íslensks körfubolta þegar íslenska liðið tryggði sér sæti í úrslita- keppni Evrópumótsins í körfubolta eftir 8 stiga tap gegn Bosníu Hers- egóvínu í gær. Íslenska liðið barð- ist hetjulega í leiknum gegn sterku liði Bosníu og náði forystu í öðrum leikhluta en Bosníumenn reyndust of sterkir í seinni hálfleik. Sviðsskrekkur í upphafi leiks Íslenska liðið gat léttað andar fyrir leikinn enda hafði sigur Rúmena á Lettum tryggt að íslenska liðið ætti sætið fullvíst myndi Ísland ekki tapa verr en með 30 stigum fyrir Bosníu. Það var hins vegar eins og það væri einhver sviðsskrekkur í íslensku strákunum í upphafi leiksins enda stærsti leikur sem þeir höfðu spilað fyrir landsliðið og líklegast sá stærsti á ferlinum hjá þeim flestum. Gestirnir náðu mest tólf stiga forskoti í fyrsta leikhluta og virk- uðu íslensku leikmennirnir hálf rotaðir ef undanskilinn er Jón Arnór Stefánsson sem spilaði stór- kostlega í leikhlutanum og öllum leiknum. Allt annað var hins vegar að sjá til liðsins í öðrum leikhluta. Þrátt fyrir að vera án Hlyns Bær- ingssonar stigu íslensku strákarn- ir á bensíngjöfina og keyrðu yfir Bosníumenn og tóku fjögurra stiga forskot inn í hálfleikinn. Þreytumerki í seinni hálfleik Jafnt var á með liðunum í þriðja leikhluta en í fjórða leikhluta fóru þreytumerki að láta sjá sig á strákunum. Mikið hefur verið keyrt á fáum einstaklingum og náðu Bosníu menn undirtökunum og unnu að lokum átta stiga sigur. Það ætlaði hins vegar allt að ærast þegar lokaflautið gall, íslensku strákarnir fögnuðu gríðarlega enda nýr áfangi skrifaður í körfu- boltasögu landsins. Fagnað þrátt fyrir tap Fagnaðarlætin voru gríðarleg í Laugardalshöllinni þegar loka- flautið gall en stemmingin var ótrúleg á leiknum í gær. Í fyrsta sinn var uppselt á landsleik í íslenskum körfubolta og var það viðeigandi að á sama tíma tryggðu íslensku strákarnir sér miða á Evrópumeistaramótið í fyrsta sinn. kristinnpall@365.is SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.