Fréttablaðið - 28.08.2014, Síða 66
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
FÓTBOLTI Aðeins tveir leikmenn
hafa skorað fjögur mörk beint úr
aukaspyrnu á einu tímabili í efstu
deild frá árinu 1977. Arnór Guð-
johnsen afrekaði það með Val fyrir
sextán árum og nú í sumar hefur
Blikinn Guðjón Pétur Lýðsson náð
að leika það eftir í sumar þótt enn
séu fimm umferðir eftir af Pepsi-
deildinni.
Guðjón Pétur skoraði sitt fjórða
aukaspyrnumark í jafnteflinu
á móti Stjörnunni á sunnudags-
kvöldið en hann var þá að skora
slíkt mark í öðrum leiknum í röð
og jafnframt sitt þriðja mark beint
úr aukaspyrnu í síðustu fjórum
leikjum Blika í Pepsi-deildinni.
Aukaæfingarnar á Álftanesinu
„Aukaæfingarnar eru lykill-
inn að þessu og ég æfi alltaf
aukalega. Ég er búinn að æfa
þær á Áltanesvellinum síðan
ég var pínu lítill og ég æfi
aukaspyrnurnar ennþá
daginn í dag á Álftanes-
velinum,“ segir Guðjón
Pétur. En stendur eitt-
hvað af þessum fjórum
mörkum upp úr?
„Ég myndi segja
að Fylkismarkið hafi
verið mikilvægasta
markið af þessum fjór-
um. Þetta var fyrsti
leikurinn eftir að nýr
þjálfari tók við og við
vorum líka komnir 1-0
undir. Það var mikilvægt
að tapa ekki leiknum og
ég náði þarna að jafna
leikinn,“ sagði Guðjón
Pétur.
Guðjón Pétur var
reyndar nálægt því
að skora eitt mark
til viðbótar beint
úr aukaspyrnu
en Blikar skor-
uðu eitt marka
sinna á móti Þór
í sumar eftir að
aukaspyrna Guð-
jóns var varin
í slá og Elfar
Freyr Helga-
son skallaði
frákastið
inn í mark-
ið á mark-
línunni.
Öll eftir að Gummi Ben tók við
Það vekur athygli að Guðjón
Pétur hefur skorað öll auka-
spyrnumörkin sín eftir að
Guðmundur Benedikts-
son tók við liðinu af
Ólafi Kristjánssyni.
„Ég fékk þá bara að
spila þá. Ég fékk ekki að
spila þegar Óli var með
liðið í byrjun tímabilsins. Það er
erfitt að skora ef að maður spil-
ar ekki. Gummi hefur gefið mér
mikið traust og mikið hrós og það
hefur gefið manni auka kraft til
að gera þetta almennilega,“ segir
Guðjón sem auk þess að skora
þessu mörk hefur verið dugleg-
ur að búa til mörk fyrir
liðsfélaga sína.
Gamla metið
var orðið sext-
án ára gamalt.
Arnór Guð-
Ég ætla að bæta metið
Guðjón Pétur Lýðsson skoraði sitt fj órða mark beint úr aukaspyrnu á móti Stjörnunni og jafnaði met Arnórs
Guðjohnsen frá 1998 en enginn annar hefur skorað fl eiri slík mörk á einu tímabili í efstu deild frá 1977.
AUKASPYRNUMÖRK GUÐJÓNS Í SUMAR
1
3 4
2
1 11. júní Fylkisvöllur skoraði á 33. mínútu á móti Fylki
2 6. ágúst Kópavogsvöllur skoraði á 36. mínútu á móti Keflavík
3 20. ágúst Kópavogsvöllur skoraði á 80. mínútu á móti Fram
4 20. ágúst Samsungvöllur skoraði á 49. mínútu á móti Stjörnunni
STÓRHÆTTU-
LEGAR SPYRN-
UR Guðjón Pétur
Lýðsson skorar
ekki bara úr
aukaspyrnunum
Því hann leggur
líka upp mörk úr
þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Flest aukaspyrnumörk á einu
tímabili í efstu deild:
4– ARNÓR GUÐJOHNSEN
með Val 1998
4– GUÐJÓN PÉTUR LÝÐSSON
með Breiðabliki 2014
3– TRYGGVI GUÐMUNDSSON
með FH 2005
3– TRYGGVI GUÐMUNDSSON
með FH 2008
3– BJARNÓLFUR LÁRUSSON
með ÍBV 2004
3– SIGURÐUR GRÉTARSSON
með Breiðabliki 1983
3– GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
með Þór 1983
➜
johnsen átti frábæra
heimkomu í íslenska
boltann sumarið
1998 eftir
tuttugu ár
í atvinnu-
mennsku
en hann
skoraði þá meðal annars
fjögur aukaspyrnumörk í fyrstu
sex leikjum sínum með Val. Arnór
var þá að bæta fimmtán ára gam-
alt met en þó að nokkrir hafi náð
að skora þrjú aukaspyrnumörk
hafði enginn náð að jafna afreki
Arnórs fyrr en í sumar.
Man eftir gulu skónum
„Ég man alveg eftir þessu. Ég man
sérstaklega eftir aukaspyrnu hjá
honum þetta sumar þegar hann
var í gulum skóm og setti hann
yfir vegginn á Hlíðarenda. Það
þótti mjög merkilegt,“ segir Guð-
jón léttur og bætir við:
„Það er frábært að vera kom-
inn á sama stað og þessi gæi en
ég ætla að bæta þetta met,“ segir
Guðjón ákveðinn. Miðað við fram-
göngu hans að undanförnu eru
miklar líkur á því að svo verði.
Þorir einhver að brjóta?
Það má búast við því að varnar-
menn mótherja Blika hugsi sig
nú tvisvar um áður en þeir gefa
Blikum aukaspyrnu nálægt víta-
teignum.
„Það er vonandi að mótherjarnir
okkar þori ekki að brjóta af sér í
kringum teiginn og að við getum
bara hlaupið í gegn. Það væri frá-
bært,“ segir Guðjón að lokum.
Guðjón Pétur fær fimm leiki til
að eignast metið einn en næsti
leikur Blika er á móti Fylki á
sunnudagskvöldið. Guðjón skoraði
einmitt fyrsta aukaspyrnumark
sumarsins í fyrri leiknum á móti
Fylkismönnum. ooj@frettabladid.is
HÁÐULEG ÚTREIÐ Louis van Gaal var ekki upplitsdjarfur
eftir 4-0 tap Manchester United á móti C-deildarliðið MK
Dons í deildarbikarnum. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Nú reynir á þolinmæði stuðn-
ingsmanna Manchester United sem aldrei
fyrr. Eftir gott gengi í æfingaleikjum
hefur byrjunin á tímabilinu verið erfið,
svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Lærisveinar Louis van Gaal eru aðeins
með eitt stig eftir tvo fyrstu leikina í
ensku úrvalsdeildinni og á þriðjudaginn
mátti United þola niðurlægjandi 4-0 tap
gegn C-deildarliði MK Dons í deildarbik-
arnum. Van Gaal stillti vissulega ekki upp
sínu sterkasta liði, en í byrjunarliðinu voru
m.a. leikmenn sem hafa leikið úrslitaleiki í
Meistaradeild Evrópu og á HM. Þetta var í
fyrsta sinn í 58 ár sem Manchester United
tapar fyrir neðrideildarliði með fjögurra
marka mun og jafnframt versta tap gegn
liði í þriðju efstu deild eða neðar í 136 ára
sögu félagsins.
Louis van Gaal hefur orðið tíðrætt um
að það muni taka hann tíma að innleiða
þá hugmyndafræði sem hann vinnur eftir
og að stuðningsmenn United verði að sýna
þolinmæði á meðan á þessari endurupp-
byggingu standi. Hollenski knattspyrnu-
stjórinn bergmálaði þetta stef í viðtölum
eftir útreiðina gegn MK Dons: „Þeir verða
að trúa á okkar hugmyndafræði. Við erum
að byggja upp lið og þú gerir það ekki á
einum mánuði, né einu ári,“ sagði van Gaal
og bætti við: Auðvitað eru þetta vonbrigði,
en ég vona að stuðningsmennirnir haldi
áfram að trúa á hugmyndafræðina okkur,
sem tekur tíma að innleiða.“
Van Gaal hefur oft talað um að liðin sem
hann stjórnar séu vanalega sein í gang.
„Ef þú lítur á ferilinn þá hafa liðin mín
alltaf byrjað rólega. Það er vegna þess að
ég læt leikmönnum mínum mikið af upp-
lýsingum í té og þeir þurfa að aðlagast.“
Það hefur þó ekki alltaf átt við, sé ein-
ungis litið á úrslitin. Barcelona (í fyrri
stjórnartíð van Gaals) og AZ Alkmaar
unnu bæði 11 af fyrstu 15 deildarleikjum
sínum undir stjórn Hollendingsins og Ajax
níu af fyrstu 15. Það er í raun bara Bayern
München – og nú Manchester United –
sem byrjaði virkilega illa undir stjórn
van Gaals. Þýska stórveldið fékk aðeins
tvö stig úr fyrstu þremur deildarleikjum
sínum og eftir 13 leiki sat liðið í 7. sæti
þýsku deildarinnar með 21 stig. Bayern
var einnig í vandræðum í Meistaradeild
Evrópu, en eftir 4-1 sigur á Juventus fóru
hlutirnir að gerast. „Við urðum að vinna
þann leik og gerðum það og það var vendi-
punktur á tímabilinu,“ sagði van Gaal um
Juventus-leikinn. Bayern vann 15 af síð-
ustu 20 deildarleikjum sínum á tímabilinu
(2009-10), tryggði sér sigur í deildinni og
bikarkeppninni, auk þess sem liðið komst
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Stuðningsmenn United vonast eflaust
eftir svipuðum viðsnúningi, en það er
hætt við að þeir þurfi að vera þolinmóð-
ir og raunsæir meðan van Gaal kemur
sínum hugmyndum á framfæri. Ef marka
má fyrstu leiki tímabilsins gæti það tekið
lengri tíma en búist var við. - iþs
Ekkert óvenjulega ga(a)lin byrjun
Louis van Gaal bíður enn eft ir fyrsta sigri sínum sem knattspyrnustjóri Manchester United.
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdóttir,
besti leikmaður íslenska kvenna-
landsliðsins í körfubolta, er búin
að finna sér nýtt lið en hún samdi
við pólska liðið CCC Polkowice í
gær. CCC Polkowice kemur frá
samnefndum 22.000 manna bæ í
austurhluta Póllands og er með
afar öflugt körfuboltalið. Hafnaði
liðið í öðru sæti í efstu deild Pól-
lands á síðustu leiktíð en komst
ekki í lokaúrslitin.
Þetta er þriðja liðið sem Hel-
ena leikur með á atvinnumanns-
ferlinum en hún hefur áður verið
hjá slóvenska liðinu Good Angels
og nú síðast hjá DVTK Miskolc í
Ungverjalandi þar sem hún var
með 10,6 stig að meðaltali í leik
ásamt því að taka 5,2 fráköst í
leik. - kpt
Helena skrifaði
undir í Póllandi
FRÁBÆR Helena er ein besta körfuknatt-
leikskona landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari U-21 árs landsliðs karla í
knattspyrnu, hefur valið hópinn
sem mætir Armeníu og Frakk-
landi í tveimur síðustu leikjum
sínum í undankeppni EM 2015
í Tékklandi. Elías Már Ómars-
son er eini nýliðinn í hópnum, en
hann hefur leikið vel með Kefla-
vík í sumar.
Leikurinn gegn Armeníu fer
fram á Fylkisvelli miðvikudag-
inn 3. september klukkan 16.30
og fimm dögum seinna mætir
íslenska liðið því franska í
Auxerre, en sá leikur hefst klukk-
an 19.00.
Ísland situr í öðru sæti í 10.
riðli með tólf stig, sex stigum
minna en topplið Frakklands. Þau
fjögur lið sem eru með bestan
árangur af liðunum í öðru sæti
riðlanna tíu fara í umspil um sæti
á EM.
Hópinn í heild sinni má sjá inni
á Vísir.is. - iþs
Einn nýliði í
hópnum
EFNILEGUR Rúnar Alex Rúnarsson ver
mark Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL