Fréttablaðið - 28.08.2014, Page 70
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54
VEITINGASTAÐUINN
„Ef verð er engin fyrirstaða þá kýs
ég Fiskfélagið. Kvöldseðillinn er
gómsætur.“
Ragnar Egilsson, matargagnrýnandi Reykjavik
Grapevine.
„Við myndum ekki kalla okkur
rappara, við erum meira bara tón-
listarmenn,“ segir Cody Shaw, einn
meðlima rappsveitarinnar B2B, en
hann og Alex Þór Jónsson stofnuðu
sveitina í byrjun árs 2011 og stend-
ur nafnið fyrir Broke 2 Billion-
aires. Rappsveitin sendi frá sér
sitt fyrsta myndband á dögunum
við lagið No Love en í myndband-
inu má sjá tvo rappara sveitarinnar
í einkaþotu, þyrlu og í sérsmíðuð-
um bíl að kasta fimm þúsund króna
seðlum upp í loftið. „Við erum að
vinna í kringum þessa R’n’B- og
hiphop-stefnu,“ segir Cody. „Við
viljum ekki vera með einhverja
eina stefnu, við viljum bara skapa.“
Nýja myndband strákanna sló
heldur betur í gegn og var það
birt á heimasíðunni World Star
Hip Hop. Vefsíðan sérhæfir sig
í hiphop-tónlist og gefur ungum
og upprennandi tónlistarmönn-
um byr undir báða vængi með því
að birta tónlist þeirra. „Þetta er
algjör blessun að fá myndbandið
okkar á síðuna þeirra,“ segir Cody
en myndbandið vakti talsverða
athygli og eru félagarnir í B2B nú
með þó nokkur tilboð frá útgáfufé-
lögum á borðinu
„Við erum að vinna í mixteipi
sem kemur út á næstunni,“ segir
Alex Þór. „Þessi tónlist á eftir að
hafa áhrif á fólk.“ - bþ
Í einkaþotu og þyrlu
Rappsveitin B2B gaf út sitt fyrsta tónlistarmyndband á dögunum en það er jafn-
framt fyrsta íslenska tónlistarmyndbandið sem birtist á World Star Hip Hop.
UNGIR OG FERSKIR Félagarnir í B2B
vilja ekki kalla sig rappara
Sjálfstætt fólk hryllileg
saga á fallegu máli
Þorleifur Örn Arnarsson leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins sem byggð er á
Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness. Hann segir fólk gjarnt á að mistúlka verkið.
Þessum hluta
verksins, þessari fegurð í
textanum, er oft ruglað
saman við það að sagan í
Sjálfstæðu fólki er í
rauninni algjörlega
hræðileg saga, eiginlega
grísk tragedía.
„Ég ætla að segja söguna eins og
ég held að hún eigi að vera sögð,“
segir Þorleifur Örn Arnarsson leik-
stjóri sem setur upp jólasýningu
Þjóðleikhússins í ár, Sjálfstætt fólk.
Þorleifur, sem hefur átt gríðarlegri
velgengni að fagna á leikstjóraferl-
inum, er þekktur fyrir að taka þekkt
verk og gera þau að sínum eigin.
„Ég held að það sem blekkir oft
með Laxness er það, að tungumál-
ið er svo fallegt í sjálfu sér. Þess-
um hluta verksins, þessari fegurð í
textanum, er oft ruglað saman við
það að sagan í Sjálf-
stæðu fólki er í
rauninni algjör-
lega hræðileg
saga, í ætt við
grísku trage-
díuna. Það að segja hræðilega sögu
í fallegu máli ætti í rauninni að ýta
undir hryllinginn og ég held að það
sé engin bók Íslandssögunnar sem
fólk er tilbúnara til að mistúlka en
þetta verk Nóbelsskáldsins,“ segir
Þorleifur, kíminn.
„Okkur langar að finnast Bjart-
ur vera hetja og við skiljum svo vel
þessi hræðilegu örlög – það að hann
sé alltaf neðstur í fæðukeðjunni. En
heila málið er það að Bjartur er með
aðra fæðukeðju undir sér, fjölskyld-
una, og framferði hans innan þess
ramma er algjörlega hræðilegt.“
Þorleifur segist þó engan áhuga
hafa á að rústa einu dáð-
asta verki íslenskrar
bókmenntasögu. „Ég er
afar hrifinn af verkinu,
en mig langar til þess
að nálgast það án þess
að falla í pytt fegurðar-
innar.“
Þorleifur heldur
áfram og segir að listinni beri
skylda til að setja spurningarmerki
við fyrirframgefnar hugmyndir.
„Það eru svo sannarlega margar
svoleiðis gagnvart Sjálfstæðu fólki.“
Þorleifur leikstýrir sýningunni en
Símon Birgisson, Atli Rafn Sigurð-
arson og Ólafur Egill Egilsson sjá
um leikgerðina. Auk þess fer Atli
Rafn með hlutverk Bjarts í Sumar-
húsum. Filippía Elísdóttir sér um
búninga og Vytautas Narbutas um
leikmynd. olof@frettabladid.is
SETUR UPP VERK
Nóbelskáldsins.
Þorleifur Örn
Arnarsson líkir
Sjálfstæðu fólki við
gríska tragedíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Dómnefnd Ungleiks, sjálfstæðs
leikhóps ungskálda og ungra
leikara, skilaði inn verkefna-
vali sínu fyrir Ungleik 2014
í mánuðinum. Leikverk sex
ungra skálda verða sett upp í ár.
Í dómnefndinni sátu Marta Nor-
dal, leikkona, leikstjóri og for-
seti Leiklistarsambands Íslands,
Vignir Rafn Valþórsson, leik-
ari og leikstjóri, og Jón Viðar
Jónsson leiklistargagnrýnandi.
Hópurinn tók ákvörðun um að
hagræða leikaravali í ár. Því var
Karl Ágúst Þorbergsson feng-
inn til að halda námskeið fyrir
Ungleik þann 9.-10. september í
Hinu húsinu en Karl er mennt-
aður leikstjóri og hefur starfað
með fjölmörgum leikhópum áður.
Síðan verður valið í leikhópinn
af námskeiðinu. Sex verk eftir
ung íslensk skáld verða tekin
fyrir. Þau eru Þórðarsveigur
eftir Adolf Smára Unnarsson og
Fylgsni eftir Ölmu Mjöll Ólafs-
dóttur (tvö ungskáld sem kom-
ust bæði á metsölulista í ár), Say
hello to my little abs eftir Matth-
ías Tryggva Haraldsson, Full-
kominn? eftir Ara Frey Ísfeld,
Góð eggjahræra eftir Tómas
Gauta Jóhannsson og Hirð eftir
Þorvald Sigurbjörn Helgason.
Hægt er að skrá sig á námskeið
Ungleiks með því að senda póst
á ungleikur@gmail.com en þátt-
tökugjaldi er haldið í lágmarki.
- þij
Leikrit sex ungskálda sett upp
Leikarar í Ungleik verða valdir af sérstöku námskeiði sem fer fram í september.
NÝ TÆKIFÆRI
þeir Stefán
Ingvar Vigfússon,
Guðbrandur
Loki Rúnars-
son og Hávarr
Hermóðsson eru
stofnendur Ung-
leiks.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
2. önn
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning
Stundaskrá
Starfsmöguleikar eftir nám eru
margir og spennandi og geta nýst á
ýmsum sviðum og atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og
fylgja öll kennslugögn með náminu.
Kennsla fer fram í Tækniskólanum
einu sinni í viku frá kl. 18-22.
The Academy of Colour and Style er skóli
sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er
meðal annars tekið fyrir litgreining,
fatastíll og textill. Eftir nám fá
nemendur alþjóðlegt diplóma í
útlitsráðgjöf (fashion consultant).
VILTU VERÐA
STÍLISTI?
SAMSTARF VIÐ
KVIKMYNDASKÓLA ÍSLANDS
Dæmi um það sem
tekið er fyrir í náminu:
Lita- og línufræði
Tónalgreining
Vaxtarbygging
Heitt og kalt rými
Stórt og lítið rými
Uppröðun hluta
Stílistun á:
Baðherbergi
Svefnherbergi
Barnaherbergi
Eldhúsi
Garðhýsi
Stofu
Og margt fleira.
The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í
innanhússtílistun. Farið er í helstu grunnþætti í lita- og
línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá persónunni
sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og
litgreiningu en þær upplýsingar segja mikið til um hvernig
einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi eins og liti og
fyrir stílistun á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl.
stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá
Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna fyrir nemendum
ýmis atriði sem koma þeim til góða.
Hver önn tekur þrjá mánuði. Kennsla fer fram í
Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101
www.utlit.is
www.utlit.is
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101
Anna F. Gunnarsdóttir
Stílisti
Helga Sigurbjarnadóttir
Innanhúsarkitekt
Þorsteinn Haraldsson
Byggingafræðingur
INNANHÚSSTÍLISTANÁM
The Academy of Colour and Style og
Kvikmyndaskóli Íslands hafa hafið
samstarf sín á milli, sem felst í því að
nemendur í innanhússtílistanámi og
útlits- og förðunarnámi koma að
verkefnum nemenda í Kvikmynda-
skólanum. Nemendur í útlits- og
förðunarnáminu vinna að búninga-
gerð og förðun fyrir verkefni í
skólanum en nemendur í innanhús-
stílistanáminu aðstoða við þróun á
leikmynd og útfærslu hennar.
ATLI RAFN SIGURÐARSON
ÓLAFUR EGILL
EGILSSON