Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGNámskeið LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512-5447
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Lyon í Frakklandi er oft köll-uð matgæðingahöfuðborg heimsins vegna ríkra mat-
reiðsluhefða og úrvals matar-
markaða. Það var því engin tilvilj-
un að Ólöf Birna Garðarsdóttir,
grafískur hönnuður og annar eig-
andi Reykjavík Letterpress, kaus
borgina þegar hún vildi koma
eiginmanni sínum á óvart þegar
hann varð fimmtugur í sumar.
Hjónin eru bæði miklir matgæð-
ingar og því fannst Ólöfu tilvalið
að skipuleggja óvissuferð til borg-
arinnar og bóka þau á matreiðslu-
námskeið í klassískri franskri mat-
argerð. „Við höfðum áður sótt
matreiðslunámskeið hér á landi
þar sem við lærðum að elda ind-
verskan mat frá grunni. Við hjónin
erum mikil matargöt og segja má
að það sé sameiginlegt áhugamál
okkar að horfa á matreiðsluþætti
og elda góðan mat. Og svo auð-
vitað að borða!“
Með hjálp Google fann Ólöf
kennslueldhúsið Plum Lyon og
leist ljómandi vel á. „Eldhúsið er
í eigu Lucy sem ættuð er frá New
York-ríki en hefur búið í Lyon frá
árinu 2000. Hún er lærður eftir-
réttakokkur og hefur sérhæft sig
í franskri matargerð. Hún opnaði
kennslueldhúsið Plum Lyon í árs-
byrjun 2012 og býður upp á alls
konar námskeið sem sniðin eru
bæði fyrir byrjendur og sérfræð-
inga í matargerð.“
Ólöfu leist best á námskeið sem
kallaðist „Your market basket“ þar
sem þátttakendur héldu á mark-
að og elduðu mat úr ferskasta hrá-
efninu. „Þegar á markaðinn var
komið beið okkar litríkt og ilm-
andi ævintýri þar sem markaðs-
fólkið hafði raðað sér meðfram
götunni. Hversu dásamlegt er
að geta valið úr ferskasta mögu-
legu hráefni á einum stað; allt
frá kryddjurtum, safaríkum hvít-
lauk, ætiþistli, plómum og hind-
berjum til geitaosts, dúfna og kan-
ínukjöts.“ Lucy vissi hvar fersk-
asta hráefnið var að finna og eftir
að hafa keypt inn hélt hópurinn
til eldhússins á ný þar sem töfra
átti fram gómsætan mat. „Við tók
ferðalag þar sem sígild hráefni
franskrar matargerðar léku að-
alhlutverkið. Eftir að hafa leyst
hverja þraut settumst við við mat-
arborðið og gæddum okkur á
kræsingunum ásamt glasi af eð-
alvíni og skemmtilegum sam-
ræðum.“
Einfaldleikinn heillandi
Það sem heillaði þau mest var
þessi einfaldleiki þar sem hráefnið
fékk að njóta sín um leið og bragð-
laukarnir fengu sitt og dönsuðu
dátt. „Að sjóða niður heila rauð-
vínsf lösku ásamt kryddjurtum
þar til eftir lá kjarni sem enginn
kraftur í teningaformi fær fangað
er algjört skylduverkefni. Einnig
var gaman að sjá hvernig allt hrá-
efnið var nýtt til hins ýtrasta og
virðing borin fyrir hverjum ein-
asta bita. Og, jú jú, það var notað
mikið smjör.“
Franskur matur er lýsandi fyrir
allsnægtir og ávexti landsins að
sögn Ólafar. „En eins um leið og
við tengjum franska matargerð-
arlist oftast við eitthvað ægilegt
„gúrmé“ og miklar tilfæringar þá
er fjölbreytnin mikil og það sem
boðið er upp á í hverju héraði fyrir
sig gjörólíkt því næsta. Svo ekki sé
talað um ólík einkenni sveitamat-
ar og þess sem borgarbúar færa á
sinn fágaða disk. Frönsk matar-
menning er því heimur út af fyrir
sig.“
Bragðlaukarnir
dönsuðu dátt í Lyon
Matreiðslunámskeið í matgæðingahöfuðborg heimsins hlýtur að vera draumur
hvers sælkera. Ólöf Birna bauð manni sínum til Lyon í Frakklandi á
fimmtugsafmæli hans og nutu þau frábærrar kennslu og veitinga úr ferskasta
hráefni sem völ var á af mörkuðum Lyon-borgar í Frakklandi.
Gómsætar ólífur nýtast í ýmsa rétti.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Úrvalið á götumörkuðum Lyon er engu líkt. MYND/ÚR EINKASAFNI
Beint af akri á markaðinn. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ilmandi ostar af öllum gerðum.
MYND/ÚR EINKASAFNI
„Við tók ferðalag þar sem sígild hráefni franskrar matargerðar léku aðalhlutverkið,“ segir
Ólöf Birna Garðarsdóttir sem bauð manni sínum á matreiðslunámskeið í Lyon. MYND/GVA
www.mimir.is
Hvað
kann
tu?
Hvað
getu
rðu?
Fáðu
það
meti
ð!
Skoðaðu
GRUNNMENNTASKÓLANN
Fórstu ekki
í framhaldsskóla?
Skoðaðu
AFTUR Í NÁM
Er lesblinda
í þinni
fjölskyldu?
Byrja
ðu
upp á
nýtt
hjá M
ími-s
ímen
ntun
Skráning í síma 580 1800
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is