Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 80
KYNNING − AUGLÝSINGNámskeið LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 20148
Þótt Power Point-forritið geti verið gagnlegt hjálpartæki eru alls ekki allir sem kunna með það
að fara. Algeng mistök er að hafa of
mikinn texta á hverri glæru, of marga
liti í texta og illæsilega fonta. Best er
ef glærurnar eru aðallega notaðar til
minnis og áhersluauka fyrir fyrirles-
arann og að nánari útlistun fari fram
munnlega.
Þeir sem styðjast mikið við Power
Point geta haft gagn af námskeiðum
þar sem farið er ítarlega í alla mögu-
leika sem forritið hefur upp á að bjóða
en þau eru í boði nokkuð víða.
Fyrir þá sem hyggjast spreyta sig
sjálfir eru hér nokkrir punktar til að
hafa bak við eyrað.
Glærugerð
■ Hafðu eitt aðalatriði á hverri glæru.
■ Minna er betra en meira. Hafðu
setningar stuttar og fáar setningar á
hverri glæru.
■ Ekki nota of marga og of skæra liti.
■ Hafðu að minnsta kosti 24 punkta
letur.
■ Ef um töluleg gögn er að ræða ætti að
draga saman niðurstöðurnar í fyrir-
sögn glærunnar. Til dæmis svona
margir kjósa tiltekinn flokk.
■ Notaðu hreyfimyndir og hljóð í hófi.
Framkoma
■ Talaðu hátt og skýrt án þess þó að
öskra. Talaðu á jöfnum hraða og með
jöfnum hljóðstyrk. Forðastu tækni-
mál/fagmál. Vendu þig af hikorðum.
■ Hafðu líkamsstöðuna opna. Ekki
krossleggja hendur og ekki setja
hendur í vasa.
■ Ekki lesa bara af glærunum. Áhorf-
endurnir sjá um það. Þú átt aðeins
að nota þær til minnis og bæta við af
blaði eða eftir minni.
■ Reyndu að hafa gaman. Til þess
þarftu að þekkja efnið vel. Öryggi
kemur með æfingu. Æfðu þig fyrir
framan spegil.
■ Eigðu í samræðum við hlustendur
í stað þess að halda einhliða tölu.
Gættu þess þó að taka ekki aðeins
stöku áhorfendur fyrir.
■ Það er í góðu lagi að nota húmor en
ekki reyna að kreista hann fram. Þú
þarft ekki að vera með uppistand.
■ Það er í lagi að nota grínglærur stund-
um. Gættu þess þó að ofnota þær ekki.
Til minnis og áhersluauka
Fyrirlesarar og kennarar styðjast flestir við PowerPoint til að halda skjásýningar en það auðveldar mörgum að flytja og leggja
áherslu á mál sitt. Forritinu tilheyra fjölmargir tilbúnir bakgrunnar. Notandinn bætir svo texta og myndum við og jafnvel
hreyfimyndum og hljóðupptökum til að auka áhrifin. Það er þó nokkur kúnst að búa til góðar glærur. Hér eru nokkur gagnleg ráð.
Séu PowerPoint-glærur vel unnar
geta þær verið afar gagnlegt
hjálpartæki. Það eru þó nokkur
atriði sem ber að varast við
glærugerðina.
NORDICPHOTOS/GETTY
Matreiðslunámskeið Salt eldhúss eru ekki bara fyrir þá sem hafa brenn-
andi áhuga á matargerð heldur
líka þá sem vilja upplifa skemmti-
lega kvöldstund,“ segir Auður Ögn
Árnadóttir, sem stofnaði hið vin-
sæla Salt eldhús árið 2012.
Salt eldhús er kennslueld-
hús sem býður upp á fjölbreytt
úrval matreiðslunámskeiða og
verður opnað senn í nýju hús-
næði á sjöttu og efstu hæðinni í
Þórunnar túni 2.
„Við opnum í gamla mötuneyti
borgarstjórnar þann 10. septem-
ber og er skráning á haustnám-
skeiðin í fullum gangi. Fyrsta
námskeiðið verður undir hand-
leiðslu Sigurveigar Kárad óttur,
sem kennir sultun og súrsun
grænmetis, og í kjölfarið taka við
freistandi ný námskeið í bland við
vinsælustu námskeið áranna á
undan,“ upplýsir Auður.
Vinsælustu námskeið Salt eld-
húss hafa hingað til verið jóla-
galdrar og franskar makka rónur
og hefur Auður haldið alls 56
námskeið í makkarónugerð.
„Taílensk, indversk og ítölsk
matargerð er einnig sívinsæl og
á jólanámskeiðin komast allt-
af færri en vilja. Sumir hafa fyrir
hefð að fara á jólanámskeið í stað
jólahlaðborðs og þá göldrum
við saman mat sem hægt er að
njóta heima eða gefa í gjafir; paté,
krydduð ávaxtamauk, sultur og
fleira gómsætt, sem við pökkum
inn með slaufum og merkimiðum
í jólapakkann.“
Heimilislegt andrúmsloft
Í Salt eldhúsi er lögð áhersla á
skemmtilega umgjörð, fagurt um-
hverfi, góða stemningu og lítinn
hóp nemenda á hverju námskeiði.
„Andrúmsloftið er heimilislegt
og í lok hvers námskeiðs setjumst
við niður við stórt fjölskylduborð
og njótum afrakstursins með glasi
af góðu víni,“ segir Auður og bætir
við að eini munurinn á því að fara
á námskeið Salt eldhúss og út að
borða sé að kokkurinn eldi frammi
með gestum sínum í stað þess að
elda fyrir þá einn inni í eldhúsi.
„Námsfólkið fær að gera allan
matinn frá grunni og við þjónum
til borðs, vöskum upp og göngum
frá. Upplifunin er því sannkallað
dekur um leið og nemendur öðlast
meira sjálfstraust, færni og þekk-
ingu í eldhúsinu.“
Matreiðslunámskeið Salt eld-
húss njóta vinsælda allra aldurs-
hópa, bæði kvenna og karla.
„Vinkonur koma saman á
makkarónunámskeið, hjón læra
matarhætti framandi landa og
karlmenn eru duglegir að læra
brauðbakstur. Þá koma vina- og
vinnuhópar í hópefli á matreiðslu-
námskeiðin og hafa gaman af.“
Kennarar á námskeiðum Salt
eldhúss eru allir sérfræðingar á
sínu sviði; fólk sem er fætt og upp-
alið við efnistök námskeiðanna.
„Námsframboðið er fjölbreytt
og spennandi og enn á eftir að
bætast við. Því er um að gera að
skrá sig sem fyrst til að missa ekki
af vinsælustu námskeiðunum,“
segir Auður.
Skoðið haustdagskrá Salt eld-
húss nánar á salteldhus.is.
Heimilislegt matardekur
Það er óhætt að segja að Salt eldhús hafi slegið í gegn frá því það opnaði fyrir tveimur árum. Þar er hægt að læra sælkeramatseld
í góðra vina hópi eða hreinlega skrá sig á eitt af þeim fjölmörgu opnu námskeiðum sem boðið er upp á.
Auður Ögn Árnadóttir
stofnaði hið vinsæla
kennslueldhús Salt
eldhúss fyrir tveimur
árum. Salt eldhús er
nýflutt í fyrrverandi
mötuneyti borgar-
stjórnar í Þórunnar-
túni 2 sem áður var
Skúlatún 2, skammt
frá Hlemmi.
M
Y
N
D
/G
VA
Sushi er með vinsælustu
námskeiðum Salt eldhúss.