Fréttablaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 8. september 2014 | FRÉTTIR | 11 Sjúkraþjálfarar eru sérhæfðir í hreyfigreiningu, þjálfun og forvörnum. Þeir greina hreyfivanda og annan vanda sem aftrar fólki frá því að vera virkt og sjálfstætt. Þeir finna leiðir fyrir fólk til aukinnar þátttöku með meðferð, endurhæfingu, þjálfun og hvatningu. Tæplega 600 sjúkraþjálfarar starfa á sjúkra- og endurhæfingarstofnunum, hjúkrunarheimilum, á einkareknum starfsstofum sjúkraþjálfara og hjá íþróttafélögum. Sjúkraþjálfarar sinna árlega um 50 þúsund landsmönnum um allt land, frá rúmliggjandi sjúklingum til afreksíþróttamanna. NOREGUR Norski fjöldamorðing- inn Anders Behring Breivik, sem situr í fangelsi fyrir að myrða 77 manns árið 2011, vill nú ólmur stofna norskan fasistaflokk. Þetta kemur fram í 34 blað- síðna bréfi, sem fréttastofan AFP hefur undir höndum. Í bréfinu krefst hann þess að norska dóms- málaráðuneytið aflétti þeim hindrunum sem eru í vegi fyrir því að hann geti stofnað „Norska fasistaflokkinn“ og samtök sem hann nefnir „Norræna bandalag- ið“. - gb Breivik skrifar bréf: Vill stofna fasistaflokk ANDERS BEHRING BREIVIK Fjölda- morðinginn norski. NORDICPHOTOS/AFP SVEITARSTJÓRNARMÁL Akureyrarbær gagn- rýnir boðaðar breytingar innanríkisráðu- neytisins sem fela í sér að aðalskrifstofa sýslumanns færist til Húsavíkur. Akureyr- arbær telur aðalskrifstofuna eiga heima á Akureyri sökum fjöldans sem þar býr. „Galin yfirlýsing,“ segir Friðrik Sigurðs- son, forseti bæjarstjórnar Norðurþings. Hugmyndir innanríkisráðuneytisins fela í sér breytingar á sýslumannsembættum landsins. Aðalskrifstofa sýslumanns flyst frá Akureyri og verður staðsett á Húsavík. Hins vegar verða sýsluskrifstofur starf- andi á Akureyri, Siglufirði og á Dalvík. Þetta er liður í að fækka sýslumannsemb- ættum sem innanríkisráðuneytið tilkynnti fyrir stuttu. Þetta sættir Akureyrarbær sig ekki við og hefur sent formlega athugasemd vegna þessa. Leggur Akureyrarbær áherslu á að aðalskrifstofa sýslumanns verði stað- sett á Akureyri. „Ekki verður annað séð en að meginmarkmiðum verði best náð með því að staðsetja aðalskrifstofur sýslu- manns á Akureyri. Þjónusta við borgarana er tryggð með því að hafa aðalskrifstofur á þeim stað þar sem mestur fjöldi íbúa er en Akureyri er langfjölmennasta sveitar- félagið í umdæminu,“ segir í athugasemd Akureyrarbæjar. Friðrik minnir á að Akureyrarbær hafi ekki haft uppi sömu varnaðarorð þegar ákvörðun var tekin um flutning Fiskistofu frá höfuðborgarsvæðinu. „Þetta er svartur blettur á norðlenska samvinnu sveitarfé- laga,“ segir Friðrik. „Það orkar tvímælis að vilja fá stofnanir norður á Akureyri en berjast gegn því að stofnanir séu fluttar til Húsavíkur. Það sýnir að Akureyringar telja sig aðeins geta sótt þjónustu í aðra áttina.“ Hann segir þetta ekki vera gæfuspor í samskiptum sveitarfélaganna. - sa Forseti bæjarstjórnar Norðurþings er ósáttur við yfirlýsingar bæjarstjórnar á Akureyri og segir þær skaðlegar fyrir samskipti: Akureyringar gagnrýna val á staðsetningu sýslumanns SÝSLUMAÐURINN Akureyringar sætta sig ekki við að sýslumaður flytji til Húsavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJÉTUR STJÓRNSÝSLA Ríkisráðsfundur verður haldinn á Bessastöðum klukkan ellefu í dag. Ríkisráð mynda forseti Íslands og ríkis- stjórnin. Í reglum um ríkisráð segir að það sé skipað öllum ráð- herrum ríkisstjórnarinnar og forseta Íslands sem jafnframt er forseti ríkisráðsins. Auk þess er ríkisráðsritari á fundum ríkis- ráðsins. Þá segir að forseti ákveði fundi ríkisráðs eftir tillögum forsætis- ráðherra og stýri fundunum. For- seti getur einnig boðað til funda án þess að fyrir liggi tillaga frá forsætisráðherra, ef hann telur það óhjákvæmilega nauðsynlegt. - jhh Línur lagðar fyrir veturinn: Ríkisráð fundar á Bessastöðum FORSETINN Ríkisráðsfundur fer fram á Bessastöðum klukkan ellefu. FRÉTTABLAÐIÐ VALLI ÞING SETT Á ÞRIÐJUDAG Séra Guðrún Helgudóttir predikar við þingsetningu Séra Guðrún Karls Helgudóttir, prestur í Grafarvogskirkju, prédikar þegar Alþingi verður sett á þriðjudag. Séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina. Eftir guðsþjón- ustu ganga svo forseti Íslands, biskup Íslands, ráðherrar og þingmenn yfir í Alþingishúsið þar sem þingsetning mun fara fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.