Fréttablaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGStofan MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 20142
Myndirnar keypti Hildur árið 2006 í IKEA og rammana líka. Þegar þeir
komu upp úr kafinu nokkrum árum síðar voru rammarnir litaðir með
svartri krítarmálningu og sóma sér vel í stofunni á veggnum fyrir ofan
sófann.
Silfurskórnir sem prýða hilluna eru Hildi dýrmætir. „Oft
var farið í Fram fram fylking heima hjá ömmu. Við frænka
mín fengum þá að velja silfur- eða gullskó í leikinn. Þegar
amma lést fékk ég að eiga silfurskóna.
Maðurinn minn er orð-inn rafvirki, píp-ari og smiður eftir
þessa lífsreynslu,“ segir Hild-
ur glettin um eiginmanninn,
Sigurð Jens Sæmundsson. Frá
árinu 2008 hafa þau hjónin
byggt hús og búið sér og börn-
um sínum þremur heimili í
Bauganesi. Hildur er uppal-
in í Skerjafirði og vildi búa þar
með fjölskyldu sinni. „Eina
leiðin sem við sáum var að
byggja sjálf. Við bönkuðum
því upp á hjá nágrannanum
og spurðum hvort við mætt-
um kaupa framgarðinn hans,“
segir Hildur glaðlega, en þau
hjónin teiknuðu húsið sjálf í
Excel en fengu hjálp tækni-
teiknara á lokasprettinum.
Fjölskyldan flutti inn árið
2009 í fremur hrátt hús-
næði og Hildur og Sigurður
ákváðu að taka eitt herbergi
fyrir í einu. Þau gera flestallt
sjálf og eru skipulögð í öllum
framkvæmdum. „Við gerum
þetta eftir því sem við náum
að safna okkur,“ segir Hildur
og lýsir því að ýmislegt í hús-
inu hafi verið keypt til bráða-
birgða á Bland-síðunni og bíði
þess að verða skipt út þegar
tækifæri gefist. Hún held-
ur úti blogginu heimilisfru-
in.blogspot.com um framgang
þessa stóra verkefnis og birtir
myndir og lýsingar af því sem
er á döfinni hverju sinni.
Fjölskyldurými
Stofan er eitt þeirra herbergja
sem er tilbúið en hún er í
opnu rými ásamt borðstofu
og eldhúsi. „Stofan varð að
vera flott og fín fyrir mömm-
una en samt þannig að krakk-
arnir gætu verið þar líka,“
segir Hildur en fjölskyldan
ver löngum stundum saman í
þessu opna rými. Hildur seg-
ist kunna að meta fallega hluti
en hins vegar þurfi þeir ekki
endilega að vera dýrir. „Ég vel
það sem mér finnst fallegt og
er sama hvaðan það kemur,“
segir Hildur sem tímir ekki að
eyða of miklum fjárhæðum í
húsgögn. „Við viljum heldur
geta farið saman í frí.“
Í betri stofu Heimilisfrúarinnar
Hildur Arna Hjartardóttir heldur úti bloggsíðunni heimilisfruin.blogspot.com. Þar leyfir hún fólki að fylgjast með hvernig hún og
eiginmaður hennar taka fyrir herbergin í húsinu sem þau byggðu í Skerjafirði fyrir nokkrum árum.
Kertastjakinn heitir String, er úr Epal og lífgar
upp á stofuna.
Eames-ruggustólinn fékk Hildur í þrítugsafmælisgjöf frá
Sigurði.
Þar sem gluggarnir í stofunni eru stórir vildi
Hildur ekki velja fyrirferðarmikil borð. Hún
valdi því þessi skemmtilegu, gegnsæju borð
frá IKEA.
Gráu plötuna utan um sjónvarpið smíðuðu hjónin sjálf. Skenkurinn er úr IKEA en hugmyndina að hillueiningunum sá Hildur á netinu.
Stofuboðið er úr Ilvu líkt og teppið. „Mig hafði langað í þetta teppi í mörg ár en Sigga fannst það ljótt og kallaði það heilateppi. Það tók
hann sjö ár að samþykkja það en svo kom hann mér á óvart einhvern daginn og gaf mér það,“ segir Hildur.
Hildur Arna í stofunni fínu. Á bloggsíðunni
sinni heimilisfruin.blogspot.com segir hún
ekki aðeins frá því hvernig gengur með fram-
kvæmdir á heimilinu heldur gefur kökuupp-
skriftir og góð skipulagsráð. MYNDIR/ANTON
Allar smávörur með 40% afslætti
Útstillingavörur á góðu verði
S y r u s s o n H ö n n u n ar h ú s
Erum að rýma fyrir nýjum vörum