Fréttablaðið - 08.09.2014, Síða 52
8. september 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 20
Einn reyndasti söngvari Íslands,
Jóhann Smári Sævarsson bassa-
söngvari, og ung söngkona á
uppleið, Jóhanna Héðinsdóttir
mezzósópran, mætast á fyrstu
hádegistónleikum vetrarins hjá
Íslensku óperunni. Þau flytja
aríur úr þekktum óperum eftir
Verdi, Offenbach, Rossini og
fleiri undir yfirskriftinni Hún
elskaði mig aldrei. Þar á meðal
syngur Jóhann
S m á r i t vær
aríur úr óper-
unni Don Carlo,
sem Íslenska
óperan frumsýn-
ir í október. Að
venju er Antonía
Hevesi píanó-
leikari á tónleik-
unum og aðgang-
ur ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Tónleikarnir fara fram í Norður-
ljósum í Hörpu á morgun klukkan
12.15.
Alls verða þrennir hádegistón-
leikar hjá Íslensku óperunni á
haustmisseri. Auk tónleikanna á
morgun koma fram þær Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Diddú, þann 28.
október og Sigrún Pálmadóttir
þann 9. desember.
Þaulreyndur bassi og upprennandi
mezzósópran í Norðurljósum
Fyrstu hádegistónleikar vetrarins hjá Íslensku óperunni verða í Hörpu á morgun.
Dagskrá tileinkuð Edward Snow-
den verður haldin á Loft Hosteli
í kvöld klukkan 20.30. Dagskráin
er hluti af alheimsupplestri til
heiðurs honum sem skipulagður
er af Alþjóðlegu bókmenntahá-
tíðinni í Berlín. Í kvöld verða
upplestrar um heim allan, frá
Lillehammer til Höfðaborgar og
Nýja-Sjálandi til Íslands, þar sem
yfir 200 rithöfundar og fylgis-
menn tjáningarfrelsis munu lesa
upp texta Snowdens.
Skipuleggjendur íslenska
kvöldsins eru Hallgrímur Helga-
son rithöfundur og Birgitta Jóns-
dóttir þingskáld og á meðal les-
ara verða Katrín Jakobsdóttir,
Steinunn Ólína, Sjón, Kristín
Helga Gunnarsdóttir, Kristín
Eysteinsdóttir, Óttarr Proppé,
Aðalheiður Ámundadóttir, Sindri
Freysson, Mörður Árnason og
Helga Vala Helgadóttir. Að lestri
loknum verða svo umræður.
Dagskrá helguð Edward Snowden um allan heim.
Texti Snowdens lesinn
EDWARD SNOWDEN Uppljóstranir
hans opnuðu augu heimsins fyrir
nýjustu tækni njósnageirans og ful-
lkomnu virðingarleysi hans gagnvart
friðhelgi einkalífsins.
Bókasafnadagurinn er í dag og
af því tilefni ætlar Bókasafn
Mosfellsbæjar að beina athygl-
inni að sögupersónunni Önnu í
Grænuhlíð.
Auður Aðalsteinsdóttir bók-
menntafræðingur verður þar
með fyrirlestur um Önnu þar
sem hún spáir m.a. í það hvers
vegna þessi rauðhærði munað-
arleysingi varð svona vinsæll
og hvers vegna vinsældirnar
hafa ekkert dalað í gegnum
tíðina.
Sívinsæl Anna
ÁSTSÆL Rauðhærði munaðarleysinginn
er alltaf jafn vinsæll.
JÓHANNA
HÉÐINSDÓTTIR
TÓNLIST ★★★ ★★
La Traviata
Stjórnandi: Garðar Thor Cortes
UPPLÝSINGAR: LA TRAVIATA Í TÓNLEIKAUPPFÆRSLU
Í NORÐURLJÓSUM Í HÖRPU LAUGARDAGINN 6.
SEPTEMBER. GARÐAR CORTES STJÓRNAÐI. HELSTU
HLUTVERK: ÞÓRA EINARSDÓTTIR, GARÐAR THÓR
CORTES, BERGÞÓR PÁLSSON OG VIÐAR GUNNARS-
SON.
Einhver hélt því eitt sinn fram að La Traviata
eftir Verdi væri í rauninni grínópera. Aðal-
persónan væri jú kona sem þjáist af ólækn-
andi lungnasjúkdómi, en hún syngi samt full-
um hálsi fram í andlátið.
Víst er að ekkert amaði að lungum Þóru
Einarsdóttur sem fór með aðalhlutverkið í La
Traviata í Norðurljósum Hörpu á laugardags-
kvöldið. Það bókstaflega geislaði af henni lífs-
krafturinn. Röddin var unaðslega fókuseruð
og jöfn á öllum sviðum, fegurð hennar var
dásamleg. Svo var túlkunin afar sannfær-
andi, tónlistin flæddi alveg óheft í gegn. Þóra
miðlaði göldrum tónmálsins fullkomlega til
áheyrenda.
Um var að ræða tónleikauppfærslu. Hljóm-
sveitin var smá, hljóðfæraleikararnir voru
21 talsins. Nú man ég ekki hversu margir
komust fyrir í gryfjunni í Gamla bíói, senni-
lega var það eitthvað svipað. Auðvitað var
rödd sveitarinnar mjó, maður saknaði breiða
hljómsins sem á að einkenna óperur af þess-
ari stærðargráðu. En yfirleitt spiluðu hljóð-
færaleikararnir vel, leikurinn var samtaka
og hreinn. Einstaka hnökrar komu þó fyrir,
kannski mest áberandi var þegar ónefndur
músíkant var ca. tveimur slögum á undan í
lokahljómnum í einum kaflanum.
Óperukórinn stóð sig oftast prýðilega. Til
dæmis voru kvenraddirnar flottar fyrst eftir
hlé í atriðinu sem var eyðilagt fyrir alla tíð
þegar það var notað í dömubindaauglýsingu
í sjónvarpinu. Það var fyrir löngu síðan, en
ennþá koma dömubindi upp í huga mér þegar
ég heyri þessa tónlist.
Helst mátti finna að óhreinum tenórröddum
á öðrum stöðum, sem var dálítið bagalegt.
En í það heila var kórinn með sitt á hreinu og
söng af viðeigandi krafti.
Aðrir einsöngvarar voru yfirleitt fínir.
Garðar Thór Cortes söng af sinni alkunnu
mýkt og grípandi tilfinningu. Fínlegu blæ-
brigðin sem eru dæmigerð fyrir hann voru öll
til staðar. Bergþór Pálsson var líka glæsileg-
ur, rödd hans hefur dýpkað eins og hún gerir
ávallt með aldrinum. Það fer honum vel. Viðar
Gunnarsson var sömuleiðis flottur. Óreyndari
söngvarar stóðu sig einnig ágætlega – eftir
því sem þeir gátu. Þar á meðal voru tveir
nemendur sem eru greinilega mjög efnilegir,
Davíð Ólafsson bassi og Einar Dagur Jónsson
tenór. Maður á örugglega eftir að heyra meira
frá þeim er fram líða stundir.
Almennt talað var þetta skemmtileg upp-
færsla. Garðar Cortes stjórnaði af röggsemi
og næmri tilfinningu fyrir mismunandi lit-
brigðum tónlistarinnar. Hann klikkaði ekki
frekar en fyrri daginn
Það er gaman að svona tónleikauppfærslu.
Áheyrandinn fær tónlistina beint í æð, alveg
ómengaða af misgóðum leik og fátæklegri
sviðsmynd og búningum. Því miður kosta
fullbúnar óperusýningar reiðinnar býsn af
peningum. Þeir eru af skornum skammti eins
og allir vita. Vonandi fáum við meira svona á
næstunni. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Ekki gallalausir tónleikar, en þeir
voru skemmtilegir og sumt var frábært.
Ekkert amaði að lungum dívu
GARÐAR THOR OG ÞÓRA EINARSDÓTTIR Ekki gallalausir tónleikar, en skemmtilegir.
MENNING
Skeifan 4, 108 Reykjavík
S. 896 3536 • 588 1818
Nú er opið
á kvöldin hjá
Nanathai
Nýr opnunartími
11.30 – 21.00
Góð tilboð
Mögulega
hægt að fá heimsent.
Kostar 1.000 kr.
Með lágmarkspöntun 3500 kr.
www.banthai.is