Fréttablaðið - 06.10.2014, Síða 12
6. október 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
VERÐ FRÁ:
ÁSTAND
HEIMSINS
FLJÚGA YFIR ÍRAK Tvær herflugvélar frá bandaríska sjóhernum af tegundinni F-18E Super Hornets á flugi eftir að hafa fengið
eldsneyti yfir Írak, skömmu eftir að hafa varpað þangað sprengjum. Bandaríski herinn hélt áfram loftárásum sínum á skotmörk
Íslamska ríkisins í Sýrlandi og Írak um helgina. NORDICPHOTOS/AFP
NÚMER FJÖGUR Marina Silva, forseta-
frambjóðandi fyrir hönd brasilíska sósíal-
istaflokksins, heldur fjórum fingrum á loft
eftir að hafa kosið í gær. Silva er númer
fjögur á kjörseðlinum en búist er við því að
annaðhvort hún eða Aecio Neves etji kappi
við sitjandi forseta, Dilma Rousseff, í þriggja
vikna kosningabaráttu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐ FJÖLDAGRÖF Liðsmaður mexíkóska sjóhersins stendur vörð við veg hjá fjöldagröf
sem fannst skammt frá borginni Iguala á laugardag. 43 stúdentar hurfu og sex manns
dóu í borginni 27. september síðastliðinn. Þar höfðu stúdentarnir tekið þátt í mótmælum
vegna bágrar stöðu kennara. Lögreglan skaut á rútu þeirra og drap sex manns. Alls 22 lög-
reglumenn eru í haldi vegna árásarinnar.
ÞAÐ FYRSTA Í HEIMINUM Fyrsta barn heimsins sem kemur í heiminn í gegnum leg sem hafði verið grætt í móðurina fæddist
í Gautaborg í Svíþjóð um helgina. Vegna þess hversu vel tókst til ákváðu foreldrar barnsins að nefna barnið Vincent, sem þýðir
„að bera sigur úr býtum“. Móðirin, sem er 36 ára Svíi, komst að því þegar hún var 15 ára að hún væri ekki með leg, sér til mikilla
vonbrigða.
KINDUR YFIR LUND-
ÚNABRÚ Fjárhirðar
nýttu í gær rétt sinn
til að reka kindur yfir
Lundúnabrú. Með
atburðinum var endur-
vakin 800 ára gömul
hefð frá því þegar
eingöngu var hægt að
fara yfir Lundúnabrú til
að komast yfir Thames-
ána án þess að þurfa að
borga skatta.
SMITUÐ Heilbrigðisstarfsmenn leiða í burtu hina níu ára Nowa Paye frá Líb-
eríu eftir að í ljós kom að hún sýndi merki þess að hafa sýkst af ebóla-veirunni.
Þrír heilbrigðisstarfsmenn sóttu sex manneskjur sem eru grunaðar um að hafa
smitast af ebóla í þorpinu Freeman.
1
1
4
4
2
2
5
5
3
3
6
6