Fréttablaðið - 06.10.2014, Page 44

Fréttablaðið - 06.10.2014, Page 44
MENNING 6. október 2014 MÁNUDAGUR PI P 40 MILLJÓNIR Á EINN MIÐA! Vænlegast til vinnings MILLJÓNAVELTAN AÐALÚTDRÁTTUR 70 MILLJÓNIR 3.000 manns fá allt frá 5 þúsund k ó á einn miða. A 40 PA R\ T r num u pp í 25 milljónir. TB W A • S ÍA • 1 43 26 0 DRÖGUM 10. OKTÓBER Tryggðu þér miða á hhi.is miða áTryggðu þér www.hhi.is síma, í 563 83OO næstaá eða hj boðsmanni.um averððMi 00 kr.3er aðeins 1. KAREINN MIÐI, ÞREFALDIR MÖGULEI MILLJÓN Á MANN 5 x 1 MILLJÓN 5 heppnir vinningshafar fá eina milljón króna hver. 1 Bernd Ogrodnik brúðulistamað- ur hefur farið víða um heim með sýningu sína Umbreytingu eftir að hún var sýnd hér á landi við frábærar viðtökur á Listahátíð árið 2006. Nú gefst einstakt tæki- færi til að bera þessa sýningu augum en hún verður sýnd næstu þrjár helgar í Þjóðleikhúsinu. Eingöngu verður um þessa þrjá sýningardaga að ræða og því um að gera að bregðast hratt við og tryggja sér miða. Sýningin sem Bernd býður upp á að þessu sinni er stytt, fjöl- skylduvæn útgáfa sem er ferða- útgáfa sýningarinnar. Eins og fyrr segir hefur sýningin ferðast víða um lönd og má meðal annars nefna Rússland, Havaí, Ísrael, Þýskaland, Danmörku, Arúba, Kanada og Kóreu. Nú leggur Bernd enn eina ferðina upp í heimsreisu með sýninguna og meðal þeirra landa sem munu njóta að þessu sinni eru Taíland, Indónesía, Egyptaland og Íran. Bernd mun halda af landi brott í lok október og fyrstu sýningar verða í Þjóðleikhúsi Taílands í Bangkok í byrjun nóvember. - fsb Umbreytingin í Þjóðleikhúsinu Brúðulistamaðurinn Bernd Ogrodnik sýnir hina rómuðu sýningu Umbreyt- inguna í Þjóðleikhúsinu næstu þrjár helgar. Aðeins þessar þrjár sýningar. UMBREYTINGIN Að loknum sýningum í Þjóðleikhúsinu leggur Bernd upp í heims- reisu með sýninguna. Þetta er fyrsta smásagnasafnið mitt, hingað til hef ég einungis gefið út ljóð,“ segir Davíð Stef- ánsson um nýja bók sína Hlýtt og satt – átján sögur af lífi og lygum, sem eins og nafnið bend- ir til inni heldur átján smásögur. „Ég átti lengi í erfiðleikum með að skrifa prósa sem ég var ánægð- ur með, en eftir að ég uppgötvaði að ég var alltaf að reyna að skrifa eins og ég hélt að ætti að skrifa prósa og hætti því fór þetta að rokganga.“ Davíð segist hafa átt brot af smásögum og skáldsögu en ekki tekið sig til og farið að vinna í þeim af alvöru fyrr en árið 2011. „Sumar sögurnar í Hlýtt og satt eru gamlar sögur sem ég endur- skrifaði fyrir útgáfuna en aðrar eru nýjar og komu mun auðveld- legar til mín. Ég er nokkuð viss um að glöggur og nærgöngull les- andi getur séð hvaða sögur það eru. Ég óska mér slíkra lesenda.“ Spurður hvað það sé sem hann vilji koma á framfæri í þessum sögum svarar Davíð að bragði: „Nú á ég auðvitað að segja að mitt sé að skrifa og þitt að skilja og satt best að segja held ég ekki að ég sé neitt færari um það en aðrir lesendur að segja þér hver mein- ing sagnanna sé. Þetta eru marg- laga sögur sem krefjast nokkuð gaumgæfilegs lesturs, meining- in liggur yfirleitt ekki á yfirborði þeirra. Þarna er fjallað um til- finningar og samskipti fólks, einkum ástvina, og ef það ætti að súmmera upp eitthvert þema yrði það sennilega eitthvað á þann veg að sögurnar fjölluðu um hvað það er að vera manneskja og þurfa að hafa samskipti við aðrar mann- eskjur.“ Spurður hvort vænta megi fleiri prósaverka frá hans hendi seg- ist Davíð vera kominn vel á veg með skáldsögu. „Hún er eigin- lega orðin til í höfðinu á mér og ef Guð lofar þarftu að hringja aftur í mig að ári til að ræða við mig um hana.“ fridrikab@frettabladid.is Óskar sér glöggra og nærgöng ulla lesenda Fyrsta smásagnasafn Davíðs Stefánssonar, Hlýtt og satt – átján sögur af lífi og lygum, á sér langan aðdraganda, það reyndist skáldinu erfi tt að glíma við prósann. DAVÍÐ STEFÁNSSON „Satt best að segja held ég ekki að ég sé neitt færari um það en aðrir lesendur að segja þér hver meining sagnanna sé.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þetta eru marglaga sögur sem krefjast nokkuð gaumgæfilegs lesturs. Davíð Stefánsson rithöfundur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.