Fréttablaðið - 15.10.2014, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. október 2014 | SKOÐUN | 13
Í fyrri grein minni fór
ég yfir skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um starfs-
mannalögin. Í þessari
grein fer ég yfir viðbrögð
við orðum mínum um
umhverfi opinberra
starfsmanna.
Félagi Ögmundur Jón-
ason sendi mér tóninn í
Fréttablaðsgrein. Hann
minnti á að ríkisstjórn
Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna hefði sagt upp
fjölda heilbrigðisstarfsmanna
sem og lögreglumönnum. Fyrr-
verandi heilbrigðisráðherra og
innanríkisráðherra hélt því síðan
fram að ég vilji auðvelda núver-
andi stjórnvöldum að gera slíkt
hið sama. Þingmaðurinn flytur
mál sitt gegn betri vitund. Ólíkt
ríkisstjórn þeirri sem Ögmundur
sat í og studdi hefur ríkisstjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks staðið vörð um heilbrigðis-
kerfið og hækkaði framlög til heil-
brigðismála um 10 milljarða í sínu
fyrsta fjárlagafrumvarpi. Og lög-
reglumönnum var fjölgað.
Eineltisforstjórar
Ögmundur nefndi hins vegar
annað sem hefði átt að vekja
athygli fjölmiðla. Sem formaður
BSRB kynntist Ögmundur skugga-
hliðum ríkisrekstrar; eineltisfor-
stöðumönnum en orðrétt sagði
Ögmundur:
„Til eru nefnilega þeir forstjór-
ar sem sjálfir ráða ekki við starf
sitt. Þetta eru einstaklingar sem
beita geðþóttavaldi; eru eineltis-
forstjórar.“ Síðan rekur þingmað-
ur dæmi sem hann þekkir frá
fyrri störfum sínum.
Ég spyr, er í góðu lagi að hafa
fyrirkomulagið með þessum
hætti? Mitt svar er nei, við verð-
um að breyta þessu umhverfi. Ég
held því miður að Ögmundur hafi
rétt fyrir sér og lýsi hluta vand-
ans ágætlega. Það er fullkominn
misskilningur að almenni markað-
urinn einkennist af því háttalagi
sem Ögmundur gerir að umtals-
efni. Ég fullyrði að stjórnandi
sem hagar sér eins og Ögmund-
ur lýsir verði aldrei eftir-
sóttur á almenna markaðn-
um. Vandinn við núverandi
fyrirkomulag hjá hinu
opinbera er að eineltis-
stjórnendurnir njóta sér-
stakrar verndar. Það eru
ekki almannahagsmunir.
Varhugavert að ræða
breytingar!
Formaður BHM, Guðlaug
Kristjánsdóttir, heldur því
fram í grein hér í Fréttablaðinu að
það sé jafnvel „varhugavert“ að
ræða breytingar á starfsmanna-
lögunum! Einhvern tíma hefðu
slík ummæli verið kölluð tilraun
til þöggunar en ég ætla nöfnu
minni ekki slíkt. Í kjölfar síðasta
kjarasamnings BHM er verið að
ræða „lagaumhverfi og réttinda-
mál – verkefni verði m.a. að fara
yfir lagaumhverfi og kjarasamn-
ingsbundin réttindi félagsmanna
BHM hjá ríki“. Er það varhuga-
vert?
Ég sakna þess hins vegar að hún
ræði ekki niðurstöður og ábend-
ingar þeirrar skýrslu sem hún
vitnar í. Það er að segja skýrslu
Ríkisendurskoðunar um mann-
auðsmál.
Þetta snýst ekki einungis um
hagræðingu. Ef marka má yfir-
lýsingar formanns BHM í Vísi
5. október þá líkar fólki ekki að
vinna hjá hinu opinbera og flýr
yfir í einkageirann. En í viðtali við
hana kemur fram að „Starfsaldur
fimmtíu prósent ungra háskóla-
menntaðra opinberra starfsmanna
er eitt til fjögur ár og erfiðlega
gengur að halda þeim í vinnu“.
Getur verið að það sé eitthvað
hjá einkageiranum sem er betra
en hjá hinu opinbera? Lífeyrisrétt-
indi opinberra starfsmanna eru
með ríkisábyrgð og starfsöryggið
miklu meira en annars staðar, en
samt sem áður helst ríkinu ekki á
starfsfólki ef marka má orð for-
manns BHM.
Uppnefni, rangtúlkanir
og ósannindi
Grein framkvæmdastjóra SFR í
Fréttablaðinu verður seint talin
innlegg í málefnalega umræðu.
Uppnefni, rangtúlkanir og ósann-
indi einkenna grein þessa valda-
mikla manns. Greinarhöfundur
er líka mjög seinheppinn þegar
hann ásakar mig og formann
fjárlaganefndar um að vilja losna
við heilbrigðisstarfsmenn og lög-
reglumenn, en við beittum okkur
sérstaklega fyrir því að færa fjár-
muni í þessa málaflokka við síð-
ustu fjárlagagerð. Það þýðir ein-
faldlega að mun meiri fjármunir
voru til þess að ráða fólk í störf
hjá heilbrigðisstofnunum og lög-
reglu.
Á síðasta kjörtímabili fækk-
aði störfum á almenna markaðin-
um um nærri 9–16 þúsund. Opin-
berum starfsmönnum fjölgaði á
árunum 2007–2011 skv. skýrslu
sem gerð var fyrir Alþingi af Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands. Á
ákveðnum sviðum opinbera
rekstrarins var hins vegar mikil
fækkun, nánar tiltekið heilbrigðis-
geiranum og þá sérstaklega hjá
Landspítalanum (500 manns) og
hjá lögreglunni.
Orð mín hafa vakið mikil við-
brögð og nokkrir hafa haft uppi
stóryrði. Hvar var þetta yfirlýs-
ingaglaða fólk á síðasta kjörtíma-
bili? Þá var stefnan að hlífa öllum
nema heilbrigðisstarfsmönnum og
lögreglumönnum.
Aðalatriðið er að við verðum að
nýta opinbera fjármuni betur, við
verðum að forgangsraða í ríkis-
fjármálum. Það er ekki andstætt
hagsmunum opinberra starfs-
manna. Þvert á móti er það hagur
allra að umhverfi opinberra
starfsmanna verði aðlaðandi og
hvetji fólk til að starfa þar.
Það verður að breyta starfs-
mannalögunum – seinni grein
Ég hef áður vakið athygli
á því að við svíkjum leik-
skólabörn með rýrum
kosti. Maturinn þeirra í
leikskólanum, þrjár mál-
tíðir ásamt ávöxtum og
lýsi, kostar daglega minna
en einn kaffibolli á kaffi-
húsi. Þeir borgarfulltrú-
ar sem ég hef rætt við um
málið hlusta vel en virð-
ast ekki hafa vald til að
gera neitt. Ég hef reynt
við bæði Gnarr og Dag, og vona
enn að Dagur sjái hversu brýnt
málið er því hann er bæði lækn-
ir og jafnaðarmaður. Með því að
bæta leikskólamatinn gætum við
jafnað stöðu heimila; leikskólar
geta gert betri innkaup en ein-
staklingar. Heima gæti kvöld-
maturinn verið með einfaldara
sniði á virkum dögum. En þegar
máltíðir leikskólans eru oftar og
oftar brauðmeti, grautar, skyr og
pastaréttir þurfa foreldrar frek-
ar að huga að góðum próteingjöf-
um í kvöldmatnum ásamt nægu
grænmeti, jafnvel huga að því að
börnin læri að tyggja. Misskiljið
þetta ekki þannig, að leikskólar
geti gert svo hagstæð innkaup að
rúmlega 300 krónur pr. barn á dag
dugi, en það er sú upphæð sem nú
er lögð til. Matur barna þarf að
vera fjölbreyttur og börn ættu að
eiga rétt á vali eins og aðrir borg-
arar.
Foreldrar gætu greitt meira
Foreldrar framselja til annarra
þá ábyrgð að fara með hags-
muni barna sinna. Í leikskólun-
um tökum við að okkur að fæða
börnin ásamt því að búa þeim
menntandi uppeldisumhverfi. Að
þjónusta börn vel í mat og drykk
ætti að vera sjálfsagður hlutur á
Íslandi. En ábyrgðin á næringu
barnanna hlýtur að liggja hjá for-
eldrum fyrst og fremst. Það ætti
því að spyrja foreldra hvort þeir
vilji greiða níu, jafnvel tíu þúsund
á mánuði, í stað sjö þúsunda eins
og nú er. Auðvitað yrði það fast
gjald fyrir alla en ég trúi því að
niðurstaðan yrði börnunum í hag.
Ákvörðun um þetta ætti ekki að
liggja í pólitískum kerfum því þar
er ekki nægileg ábyrgð.
Að öðlast uppeldi fyrir lífið
Markmið leikskóla er að börnin
öðlist uppeldi og menntun fyrir
líf og starf. Þegar við erum allt
of feit og lífsstílssjúkdómar sliga
heilbrigðiskerfið ættum við að
leggja metnað í að kenna börnun-
um okkar að borða vel og rétt. Það
er þjóðþrifamál að kenna börnum
að borða og miða mat þeirra við
bestu þekkingu þar um. Það er
auk þess mannréttindamál að fá
vel að borða og í samræmi við það
sem best gerist manna á meðal í
samfélaginu. Slagorð dagsins
gæti verið „sýndu mér diskinn
þinn og ræðum svo jöfnuð“.
Gegnsæi um gjöld
Hvað kostar matur fyrir eitt barn/
fyrir einn fullorðinn? Hvað borða
börn fátækra foreldra heima hjá
sér í kvöldmat? Hvað borða börn
þeirra sem eru efnameiri eftir
sinn leikskóladag? Þetta mætti
skoða með gegnsæi og jöfnuð í
huga. Víst er að við þurfum að
áætla meira til matarkaupa í
leikskólum eigi síðar en í fjár-
hagsáætlun 2015. Eðlilegt væri
að miða upphæðina við að hægt
væri að mæta kröfum manneldis-
ráðs um mataræði, að lágmarki.
Að auki þarf svo að skoða sérstak-
lega kostnað við mat leikskóla-
starfsfólks og auka gegnsæi um
það hvernig hann er fjármagn-
aður.
Ódýr matur fyrir
leikskólabörn
Allt frá stofnun Atlants-
hafsbandalagsins árið
1949 hefur Ísland verið
aðildarríki. Aðildin ásamt
varnarsamningnum við
Bandaríkin hefur því verið
hornsteinn íslenskra örygg-
is- og varnarmála í 65 ár.
Samstarf við okkar nán-
ustu bandalags- og vinaríki
hefur gert það að verkum
að uppbygging varnargetu
landsins hefur ekki orðið
Íslandi ofviða.
Sem aðildarþjóð getum
við ekki verið eingöngu í
hlutverki þiggjandans heldur ber
okkur að taka þátt í víðtæku sam-
starfi sem fram fer á vettvangi
bandalagsins og leggja okkar af
mörkum með ýmsu móti.
Á nýafstöðnum leiðtogafundi Atl-
antshafsbandalagsins í Wales til-
kynnti forsætisráðherra um fyrir-
ætlanir íslenskra stjórnvalda að
efla þátttöku og framlög í þágu eigin
varna og bandalagsins. Efld þátttaka
Íslands verður á sviði borgaralegr-
ar sérfræðiþekkingar á þeim sviðum
sem okkur hugnast og farnast best.
Aukið framlag verður m.a. nýtt
til eflingar þyrlubjörgunarsveitar
Landhelgisgæslu vegna loftrýmis-
gæslu, sem einnig kemur til góða
almennri björgunarþjón-
ustu í landinu.
Boðnir verða fram borg-
aralegir sérfræðingar til
starfa á vettvangi banda-
lagsins þar sem það á við,
til dæmis á sviði almanna-
varna, jafnréttismála,
sprengjuleitar, vefvarna,
upplýsingamiðlunar og
öryggis á hafi.
Einnig verður lagt til fé í
sjóði til styrktar uppbygg-
ingu í Úkraínu og til fram-
fylgdar ályktunar öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna
nr. 1325 um konur, frið og öryggi.
Þátttaka íslenskra starfsmanna í
samstarfi af þessu tagi eykur þeim
einnig þekkingu, innsýn og tengsl-
anet sem aftur nýtist þegar heim er
komið.
Þjóðaröryggi Íslands verður ein-
göngu tryggt með ábyrgum hætti
með alþjóðasamstarfi við banda-
lagsríki okkar. Þó að engar beinar
ógnir steðji að landi og þjóð væri
það mikil skammsýni og beinlínis
óábyrgt að standa berskjölduð gagn-
vart utanaðkomandi hættum.
Því hefur frá upphafi ríkt þver-
pólitísk samstaða um aðild Íslands
að Atlantshafsbandalaginu, þó ekki
hafi aðildin verið óumdeild.
Aukið framlag
Íslands til Atlants-
hafsbandalagsins
UTANRÍKISMÁL
Þórunn
Egilsdóttir
þingmaður
Framsóknar og
formaður
Íslandsdeildar
NATO-þingsins
STJÓRNSÝSLA
Guðlaugur
Þór Þórðarson
alþingismaður
➜ Orð mín hafa vakið mikil
viðbrögð og nokkrir hafa
haft uppi stóryrði. Hvar var
þetta yfi rlýsingaglaða fólk á
síðasta kjörtímabili? Þá var
stefnan að hlífa öllum nema
heilbrigðisstarfsmönnum og
lögreglumönnum.
➜ Hvað kostar matur
fyrir eitt barn/fyrir
einn fullorðinn? Hvað
borða börn fátækra
foreldra heima hjá
sér í kvöldmat? Hvað
borða börn þeirra
sem eru efnameiri
eftir sinn leikskóla-
dag? Þetta mætti
skoða með gegnsæi og
jöfnuð í huga.
SAMFÉLAG
Fanný
Heimisdóttir
leikskólastjóri