Fréttablaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 20
 | 4 15. október 2014 | miðvikudagur „Mér fi nnst gagnrýnin hafa verið ósanngjörn og það hvílir alls engin leyndarhyggja yfir þessu ferli,“ segir Hlynur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, um umdeilt val Isavia á fyrirtækjum sem fá að sinna smá- sölu og veitingarekstri í brottfarar- salnum í Kefl avík. Eigendur fyrirtækja sem fengu ekki aðstöðu í flugstöðinni hafa gagnrýnt forval Isavia og sagt það einkennast af leynd og ógagnsæi. Samtök verslunar og þjónustu hafa tekið undir þau orð. „Sömu aðilar og töluðu áður um að ferlið væri faglegt hafa síðar gefi ð í skyn að það hafi verið óljóst hvaða gögn þeir áttu að senda inn með sínum umsóknum og gagnrýnt upplýsingagjöf Isavia,“ segir Hlyn- ur. Funduðu með fyrirtækjunum Isavia hefur meðal annars verið gagnrýnt fyrir að fara ekki í útboð á verslunar- og veitingarýminu þar sem fyrirtækið, sem er hluta- félag í eigu ríkisins, hefði þurft að fara eftir útboðslögum sem eiga að tryggja opið og gagnsætt ferli. „Ef við hefðum farið í útboð hefðu umsækjendurnir getað gert ráð fyrir óraunhæfum tekjum af sölu í fl ugstöðinni í sínum tilboðum og þar af leiðandi unnið með ranga spá um hvað Isavia fengi í sinn hlut. Regl- ur um útboð hefðu þýtt það að við hefðum þurft að taka þeim tilboð- um. Forvalið kemur hins vegar í veg fyrir að menn séu að taka of háum tilboðum sem eru ekki raunhæf og það er mjög mikilvægt í rekstri sem þessum þar sem við getum ekki jafn auðveldlega skipt út verslunum og veitingastöðum.“ Hlynur segir alla umsækjend- ur hafa setið við sama borð. Það hafi legið fyrir frá upphafi hvaða umsóknargögn Isavia myndi láta af hendi að forvalinu loknu. „Útboðsskyldan nær ekki yfi r útleigu á plássi og í forvalinu erum við að gefa upp ákveðin trúnað- argögn, þar á meðal upplýsingar um rekstraraðila á svæðinu, svo aðrir umsækjendur geti setið við sama borð. Að sama skapi erum við bundin trúnaði um hvað viðkomandi bauð, hvað hann skrifaði í sína við- skiptaáætlun og hvernig við mátum umsóknir þeirra,“ segir Hlynur. Meðlimir úr valnefnd Isavia hafa að hans sögn fundað með forsvars- mönnum nokkurra fyrirtækja sem óskuðu eftir frekari rökstuðningi. Þeir hafi fengið útskýringar á ein- kunnagjöf Isavia og hvar fyrirtæki þeirra hafi staðið í sínum fl okkum. „Það gætir misskilnings að við höfum ekki gert það. Hins vegar eru sumir að sækjast eftir því að fá ein- kunnir annarra fyrirtækja og það gefum við ekki upp. Ég skil þó vel að það er mikilvægt fyrir þessi fyr- irtæki að ná árangri og fl ugstöðin er auðvitað mjög ákjósanlegur staður.“ Spurður hvort Isavia hefði mögu- lega átt að fara aðrar leiðir í val- ferlinu, í ljósi umræðunnar í kring- um forvalið, segir Hlynur að hann telji ferlið hafa verið eins opið og gagnsætt og mögulegt hafi verið. „Hins vegar höfum við skrif- að hjá okkur einhver smáatriði sem betur hefðu mátt fara. Þegar við förum í okkar næsta forval þá munum við að sjálfsögðu byggja á því sem við punktuðum niður í þessu ferli.“ Fá meira fyrir plássin Hlynur segir ýmsar ástæður liggja að baki ákvörðun Isavia um að breyta brottfararsal fl ugstöðvar- innar og fara í forval. Farþegum sem fari um Leifsstöð hafi fjölgað, og muni fjölga, og því þurfi meðal annars að stækka vopnaleitar- svæðið og haga rekstrinum þannig að hann skili Isavia tekjum í hlut- falli við farþegafjölgunina. Einnig renna núgildandi samningar um verslana- og veitingarými út um næstu áramót en þeir voru gerðir á árunum 2004-2006. Hlynur segir það hafa ráðið miklu hvað fyrir- tækin sáu fram á að geta skilað til Isavia með veltutengdri leigu. „Auknar tekjur þýða að við getum boðið lægri flugvallarskatta og önnur gjöld. Við höfum að undan- förnu séð að við erum töluvert langt á eftir öðrum flugvöllum þegar kemur að veltutekjum. Með þessum breytingum getum við aukið tekjur af þessum hluta verslunarsvæðisins um sextíu prósent. Ástæðan er sú að við munum bæði fá hærri veltu- tengda leigu frá fyrirtækjunum og síðan erum við að auka plássið um 20-30 prósent.“ Þrettán umsóknir af 71 urðu á endanum fyrir valinu og var niður- staðan kynnt á blaðamannafundi í byrjun októbermánaðar. Sex versl- anir og einn veitingastaður munu halda áfram rekstri í fl ugstöðinni en fjórir nýir veitingastaðir og tvær verslanir koma inn til við- bótar. Á meðal þeirra eru franska fyrirtækið Lagardère Services, sem fékk aðstöðu til reksturs sæl- keraverslunar og fjögurra veitinga- staða sem verða rekin í samstarfi við íslenska fyrirtækið Nord, og norska tískuvöruverslunin Airport Retail Group. „Um allan þann rekstur sem erlendir aðilar koma að verða stofn- uð íslensk fyrirtæki sem greiða hér skatta og gjöld. Það er því ekki verið að taka allan arðinn út úr landinu eins og einhverjir hafa gefi ð til kynna. Einnig lögðum við áherslu á að fá inn íslenskar vörur en þær geta líka verið dýru verði keyptar ef tilboðin sem við fáum eru ekki góð,“ segir Hlynur. Hann segir breytingarnar í brott- fararsalnum eiga að auka sýnileika verslana og veitingastaða og þá um leið veltu þeirra. Í núverandi skipu- lagi séu verslanir í einhverjum til- vikum faldar úti í hornum á bak við veitingastaði og aðrar verslanir. „Ferlið hefst í byrjun nóvember en þá munum við byrja á að skipta um gólfefni og færa ákveðnar versl- anir til í smáum skrefum. Ef þessi farþegafjölgun sem við höfum séð heldur áfram þá fl ýtir það síðan fyrir því að við þurfum að taka ákvörðun um að stækka brottfararsalinn sjálf- an. Hvenær það verður veit ég ekki en það verður jafnvel fyrr en menn reiknuðu upphafl ega með.“ Þykir gagnrýnin hafa verið ósanngjörn Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, gefur lítið fyrir ásakanir um að leyndar- hyggja hafi hvílt yfir forvali Isavia. Valferlið hafi verið opið og gagnsætt. Framkvæmdir hefjast í nóvember. Fríhöfnin, dótturfyrirtæki Isavia, mun áfram sjá um sölu á áfengi, tóbaki og snyrtivörum í Leifsstöð enda féll sá rekstur ekki undir forvalið. Umsókn Fríhafnarinnar um áframhaldandi rekstur tískuvöruverslunarinnar DutyFree Fashion var hins vegar hafnað af valnefnd Isavia, eins og komið hefur fram í Markaðinum. Norska fyrirtækið Airport Retail Group (ARG) mun yfirtaka rekstur verslunarinnar. Hlynur segir Fríhöfnina hafa þurft að lúta sömu reglum og aðrir umsækjendur. Viðskiptaáætlun dótturfyrirtækisins hafi á endanum tapað fyrir áætlun ARG. „Þar urðu þau undir og urðu að lúta því,“ segir Hlynur. Sex mánaða uppgjör Fríhafnarinnar var kynnt í sept- ember. Þá kom fram að fyrirtækið var rekið með tapi upp á 61 milljón króna á tímabilinu, þrátt fyrir að tekjur hefðu aukist um 14,5 prósent frá fyrra ári. „Það er ekkert óeðlilegt að fyrstu sex mánuðirnir séu í mínus því seinni hluti ársins er mjög sterkur. Fyrir- tækið greiðir hátt veltugjald til Isavia enda megintil- gangur Fríhafnarinnar að velta sem mestu og skila sem mestu til móðurfélagsins sem síðan fer í uppbyggingu flugvallarins,“ segir Hlynur. „Það er mjög mikilvægt að menn átti sig á því að Frí- höfnin hefur verið að greiða um átta og hálfan milljarð til Isavia á síðustu fjórum árum. Velta Fríhafnarinnar er meiri en allra hinna verslananna í brottfararsalnum til samans.“ FRÍHÖFNIN VELTIR MEIRA EN AÐRAR VERSLANIR TIL SAMANS VIÐTAL Haraldur Guðmundsson haraldur@frettabladid.is Isavia samdi meðal annars við Joe Ísland ehf. sem mun reka djús- og samlokubar Joe and the Juice í brottfararsalnum. Fyrir- tækin gerðu einnig samning um að Joe Ísland fái aðstöðu við innritunarsal Leifsstöðvar á fyrstu hæð undir veitingastað þar sem farþegar og aðrir geta verslað. Kaffitár rekur nú kaffihús á sama stað og annað í brottfarar- salnum á hæðinni fyrir ofan en verður að loka þeim á næstu mánuðum. Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Kaffitárs, hefur gagnrýnt forvalið harðlega og sagt leikreglurnar hafa verið óskýrar og ógagnsæjar. „Þetta var ekki hluti af forvalinu. Ástæðan fyrir þessu er að það er mjög dýrt að vera með rekstur í flugstöðinni og ákveðin stærðarhagkvæmni í því fyrir Joe and the Juice að geta selt sínar vörur og samnýtt starfsfólk á báðum stöðum. Einnig spilar inn í að í flugstöðinni starfa um fimmtán hundruð til tvö þúsund manns sem mega ekki kaupa mat í brottfararsalnum. Þess vegna ákváðum við að það myndi þjóna breiðari markhópi að bjóða djús, samloku og kaffiþjónustu Joe and the Juice heldur en að gera áframhaldandi samning við Kaffitár,“ segir Hlynur. JOE AND THE JUICE VERÐUR Á TVEIMUR STÖÐUM STÝRIR LEIFSSTÖÐ Hlynur Sigurðsson segir ýmsar ástæður liggja að baki ákvörðun Isavia um að breyta brottfararsal flugstöðvarinnar. FRÉTTABLAÐ IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.