Fréttablaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 22
| 6 15. október 2014 | miðvikudagur
Markaðsverðmæti tryggingafélag-
anna þriggja sem skráð eru í Kaup-
höll Íslands hefur lækkað verulega
á síðastliðnum tólf mánuðum. Þó ber
að hafa í huga að tvö af félögunum
hafa greitt út arð sem hefur áhrif á
gengi bréfanna.
Stærsta félagið á markaðnum er
Vátryggingafélag Íslands (VÍS).
Markaðsverðmæti félagsins var 27,3
milljarðar þann 11. október 2013.
Það fór svo alla leið upp í 28,1 millj-
arð þann 31. október 2013 en þann
10. október síðastliðinn var það
komið niður í 20,8 milljarða króna.
VÍS var fyrst tryggingafélaganna
til þess að verða skráð á aðallista
Kauphallarinnar eftir bankahrun.
Það gerðist í apríl 2013. Með því
varð Sigríður Ragna Ólafsdóttir,
sem hafði verið fengin til að stýra
félaginu í gegnum skráningu, fyrsti
kvenforstjórinn sem stýrði skráðu
félagi eftir hrun. Hún er enn í dag
eina konan sem stýrir skráðu félagi.
Félagið var skráð að undangengnu
útboði þar sem 70 prósenta hlutur í
félaginu var seldur. Tæplega 5.000
fjárfestar óskuðu eftir að kaupa
hlutabréf í útboðinu fyrir samtals
um 150 milljarða króna. Söluand-
virði hlutarins sem var seldur nam
hins vegar 14,3 milljörðum króna og
umframeftirspurnin var því liðlega
tíföld.
Rekstur félagsins hefur geng-
ið ágætlega, en hagnaðurinn dróst
verulega saman á fyrri helmingi
þessa árs. Var 451 milljón króna
núna samanborið við 1.094 millj-
óna króna hagnað á sama tímabili
árið 2013. Í afkomutilkynningu eftir
annan fjórðung 2014 sagði Sigríður
Ragna að þróun á fjármálamörkuð-
um á tímabilinu hefði leitt af sér að
ávöxtun af fjárfestingasafni félags-
ins væri nokkuð undir væntingum.
Tryggingamiðstöðin fylgdi fast
á eftir VÍS og var skráð á markað
í maí 2013 eftir að hlutabréfaút-
boði lauk þann 24. apríl. Sjö þúsund
áskriftir bárust að heildarandvirði
357 milljarðar króna, en verðmæti
þess 28,7% hlutar sem var seldur
nam 4,4 milljörðum króna. Eftir-
spurnin var því áttatíuföld. Bréfi n
hækkuðu nokkuð eftir skráningu
og nam heildarverðmæti Trygg-
ingamiðstöðvarinnar 22,7 milljörð-
um íslenskra króna þann 11. októ-
ber 2013. Það fór hæst upp í 25,2
milljarða króna þann 11. desember,
en hefur lækkað og stóð í 18,1 millj-
arði króna síðastliðinn föstudag. Á
einu ári hefur markaðsverðmætið
því lækkað um 7,1 milljarð, eða um
28,1 prósent.
Sjóvá var skráð á markað 11.
apríl síðastliðinn. Markaðsverð-
mæti félagsins var 21,8 milljarð-
ar í lok fyrsta dagsins, en var 18,9
milljarðar á föstudaginn. Breyting-
in frá skráningu nemur 2,9 millj-
örðum króna eða 13,3 prósentum. Í
afkomutilkynningu vegna fyrri árs-
helmings 2014 kemur fram að hagn-
aður af rekstri Sjóvár á þeim árs-
helmingi var 205 milljónir króna,
eða 0,13 krónur á hlut samanbor-
ið við 843 milljóna króna hagnað á
sama tíma árið 2013, sem var 0,53
krónur á hlut. Hagnaður af vátrygg-
ingastarfsemi nam 792 milljónum
króna samanborið við 1.092 millj-
ónir á sama tíma árið á undan, en
tap af fjárfestingarstarfsemi nam
539 milljónum samanborið við 58
miljóna króna tap á fyrri árshelm-
ingi 2013.
Miklar arðgreiðslur
Lakari afkomutölur eru ekki einu
skýringarnar á lægra hlutabréfa-
verði, eins og Stefán Broddi Guð-
jónsson hjá Greiningadeild Arion
banka bendir á. „Frá skráningu á
markað hafa tryggingafélögin TM
og VÍS greitt um 3,3 milljarða króna
í arð til eigenda sinna. Til viðbótar
kaupa þau nú eigin bréf á markaði í
samræmi við endurkaupaáætlun,“
segir Stefán Broddi.
Hann bendir á að þriðja trygg-
ingafélagið, Sjóvá, hafi verið skráð
síðar á markað en hafi sett sér það
markmið að greiða að minnsta kosti
helming hagnaðar hvers árs í arð.
„Ég hugsa að fjárfestar vænti þess
að meirihluti hagnaðar trygginga-
félaganna á hverju ári verði greidd-
ur út í arð. Þeir virðast hins vegar
meta afkomuhorfur lakari en þeir
gerðu áður. Þar kemur aðallega
tvennt til, annars vegar að tjónaþró-
un virðist neikvæðari á þessu ári en
VERÐMÆTI SKRÁÐRA TRYGGINGAFÉLAGA Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
Tryggingamiðstöðin Sjóvá VÍS
Nafnverð hlutafjár 760.000.000 kr. 1.593.000.000 kr. 2.503.000.000 kr.
Gengi bréfa 11. október 2013 29,90 kr. 13,70 kr.* 10,92 kr.
Hæsta verð á síðustu 12 mánuðum 33,10 kr. 13,70 kr. 11,22 kr.
Gengi bréfa 10. október 2014 23,80 kr. 11,87 kr. 8,32 kr.
Markaðsverðmæti 10. október 2014 18.088.000.000 kr. 18.908.910.000 kr. 20.824.960.000 kr.
Breyting á tólf mánuðum 28,10% 13,30%* 23,81%
* Sjóvá var sett á markað 11. apríl 2014 og miðast tölurnar við þann tíma.
Tryggingafélögin hafa öll tekið dýfu
í Kauphöll Íslands á yfirstandandi ári
Markaðsverðmæti tryggingafélaganna þriggja sem skráð eru í Kauphöll Íslands hefur lækkað nokkuð á undan-
förnum mánuðum. Arðgreiðslur skýra hluta lækkunarinnar. En lækkunina má hugsanlega einnig skýra á þann
hátt að fjárfestar telji afkomuhorfur lakari en áður, tjónaþróun neikvæðari og ávöxtun á mörkuðum sé minni.
SJÓVÁ Almennar hf. tekin inn í Kauphöll Íslands Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá Páll Harðarsson, forstjóri Kauphallarinnar (Nasdaq OMX Iceland)
Ég hugsa að
fjárfestar vænti
þess að meirihluti
hagnaðar trygginga-
félaganna á hverju
ári verði greiddur
út í arð. Þeir virðast
hins vegar meta
afkomuhorfur lakari
en þeir gerðu áður.
Þar kemur aðallega
til tvennt, neikvæðari
tjónahorfur og minni
ávöxtun.
ÚTTEKT
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is