Fréttablaðið - 15.10.2014, Síða 28
| 8 15. október 2014 | miðvikudagur
„Ég er á harða hlaupum við að
koma mér inn í alla þá hluti sem
tengjast starfi nu enda fyrirtæk-
ið með mörg stór verkefni í píp-
unum,“ segir framleiðandinn
Björn Þórir Sigurðsson, sem var
í síðustu viku ráðinn til að hafa
umsjón með innlendri fram-
leiðslu RVK Studios.
Björn, eða Bússi eins og hann
er kallaður, hafði áður umsjón
með framleiðslu Turner Broad-
casting Systems á Latabæjarþátt-
unum. Hann hefur lengi starfað
við dagskrárgerð bæði fyrir sjón-
varp og útvarp.
„Hins vegar var mitt fyrsta
starf fólgið í að skúra gólf og
þrífa kaffi stofur í rörasteypu-
verksmiðju sem var í Fífu-
hvammi í Kópavogi. Ég var þá
þrettán ára gamall og vann þar
þangað til ég fór að vinna hjá
Árna Samúelssyni í Sambíóun-
um fjórum árum síðar. Þar fékk
ég mitt uppeldi í viðskiptum og
vinnu og dugnað og hörku í gjöf
frá SAM-fjölskyldunni,“ segir
Björn.
Hann var ráðinn dagskrárgerð-
armaður útvarpsstöðvarinnar
Stjörnunnar árið 1989 og þaðan
lá leiðin á Bylgjuna. Á þeim tíma
stundaði hann einnig nám við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti og
lauk síðan BA-gráðu í auglýsinga-
hönnun frá American InterCont-
inental University í Los Angeles
árið 1994.
„Þegar ég kom heim var enn
ein kreppan þannig að ég endaði
aftur í fjölmiðlunum. Þá hafði
Árni Sam keypt FM957 og hann
bað mig um að taka við stöðinni
og byggja hana upp,“ segir Björn.
„Síðan var ég fenginn til að
taka við Popptíví þar sem ég not-
aði viðskiptamódel sem byggði
meðal annars á því sem ég gat
fært úr útvarpinu yfir í sjón-
varpið.“
Björn hefur einnig starfað sem
dagskrárstjóri Stöðvar 2, sjón-
varpsstjóri Skjás eins og yfi r-
maður sölu- og markaðssviðs
Morgunblaðsins. Hann er giftur
Berglindi Viðarsdóttur, birtinga-
fulltrúa hjá Pipar, og þau eiga
tvær dætur.
Spurður um áhugamál nefnir
Björn aðallega vinnuna og hesta-
mennsku.
„Undanfarin ár hefur það verið
vinnan. En ég er einnig í hesta-
mennsku, datt út úr henni á ung-
lingsárunum en er kominn aftur
á fullt, og mér fi nnst gaman að
keyra mótorhjól. Svo má nefna
kvikmyndir og afþreyingu enda
hefur maður unnið í þeim bransa
frá því maður var unglingur,“
segir Björn að lokum.
Bússi ólst upp í bíóinu hjá Árna Sam
Björn Þórir Sigurðsson var nýverið fenginn til að hafa umsjón með innlendri framleiðslu RVK Studios. Hann
hefur lengi starfað við dagskrárgerð fyrir sjónvarp og útvarp. Vinnan og hestamennska eru aðaláhugamálin.
KOMIÐ VÍÐA VIÐ Björn hefur að auki setið í stjórn Eddu útgáfu og Smáís. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Björn Þóri eða Bússa, eins og hann er
jafnan kallaður, hef ég þekkt í hátt í tvo
áratugi. Fundum okkar bar saman hjá
Íslenska útvarpsfélaginu hf., sem þá átti
og rak bróðurpartinn af einkareknum ljós-
vakamiðlum landsins. Strax þá urðu mér
mannkostir hans ljósir. Bússi er ósérhlífinn og harðdug-
legur, enda skólaður til á sjó. Allt sem hann tekur sér fyrir
hendur gerir hann óaðfinnanlega. Í hans huga er ekki til sú
hugsun að bíða með það til morguns sem gera má í dag.
Slíkir menn eru ekki á hverju strái. Baltasar og félagar geta
verið ánægðir með að hafa fengið Bússa í hópinn.“
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður
„Bússi er frábær vinur og heiðarlegasti
maður sem ég þekki. Hann er kletturinn
sem brýtur á í hafinu, hann stendur alltaf
upp úr þar sem hann kemur. Hann hefur
einstakt nef hvað varðar að sjá hæfileika
í/hjá fólki, framkalla það besta/skemmti-
legasta og veit upp á hár hvað fólk vill hverju sinni. Bússi
er einstakur stjórnandi og hef ég lært ótrúlega margt af
honum. Hann hefur þann einstaka hæfileika að spyrja réttu
spurninganna á rétta augnablikinu. Hann gerir gríðarlegar
kröfur til sjálfs sín og fer fram á 110% árangur hjá sjálfum
sér í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.“
Steinn Kári Ragnarsson, framkvæmdastjóri Rekkjunnar
GERIR MIKLAR KRÖFUR
SVIPMYND
Haraldur Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
Hins vegar
var mitt fyrsta
starf fólgið í að
skúra gólf og þrífa
kaffistofur í röra-
steypuverksmiðju
sem var í Kópavogi.
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 109,00 -16,2% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 232,00 -11,5% 0,9%
Fjarskipti (Vodafone) 33,55 23,1% 1,1%
Hagar 45,00 17,2% 0,0%
Icelandair Group 17,65 -3,0% -1,4%
Marel 104,50 -21,4% -1,9%
N1 18,80 -0,5% -3,1%
Nýherji 5,85 60,3% 0,0%
Reginn 14,90 -4,2% -2,3%
Tryggingamiðstöðin* 23,80 -25,7% -1,2%
Vátryggingafélag Íslands** 8,25 -23,5% 0,6%
Össur 308,00 34,5% -2,4%
HB Grandi 31,30 13,0% -0,2%
Sjóvá 11,71 -13,3% -2,0%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1.156,14 -8,2% -1,1%
First North Iceland
Century Aluminum 2.500,00 117,4% 0,0%
Hampiðjan 20,00 50,9% 0,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,33 9,0% 0,0%
*fyrsta verð 08. maí 2013 **fyrsta verð 24. apríl 2013
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI
60,3% frá áramótum
EIMSKIP
0,9% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
TM
-25,7% frá áramótum
N1
-3,1% í síðustu viku
3
8
3
Stjórn HB Granda hf. telur ekki ástæðu til að gera
athugasemdir við áframhaldandi stjórnarstörf Rann-
veigar Rist fyrir HB Granda, þrátt fyrir framkomna
ákæru á hendur henni. Í yfi rlýsingu sem stjórn HB
Granda sendi frá sér í gær segir að Rannveig njóti fulls
trausts stjórnarinnar. Meginregla íslensks réttarfars
sé að hver maður skuli teljast saklaus þar til sekt hans
sé sönnuð og það mat sé í höndum dómstóla. Því telur
stjórn HB Granda hf. að ekki sé tilefni til sérstakra
viðbragða og ítrekar að hún beri fullt traust til Rann-
veigar.
Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður N1,
hefur verið ákærð vegna sömu saka og bornar eru á
Rannveigu. N1 hafði áður sent frá sér tilkynningu þar
sem lýst var trausti í garð hennar.
Eins og áður hefur verið greint frá sátu þær Rann-
veig og Margrét í stjórn SPRON árið 2008, í aðdrag-
anda þess að bankinn varð óstarfhæfur. Stjórn SPRON
og framkvæmdastjóri hafa verið ákærð fyrir lán sem
veitt var fjárfestingafélaginu Existu í lok september
það ár. - jhh
Rannveig Rist og Margrét Guðmundsdóttir sitja áfram í stjórnum HB Granda og N1:
Gera ekki athugasemdir við
stjórnarsetu sakborninga
SITUR ÁFRAM Stjórn HB Granda telur ekki ástæðu til þess að gera
athugasemdir við setu Rannveigar í stjórninni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vegna niðurfellingar vörugjalds
hafa öll helstu heimilistækin
lækkað í verði um 17% og sjónvörp,
hljómtæki og annað um 20%.
Nú er lag að njóta lífsins!
Við höfum náð samningum við okkar helstu birgja, sem gerir
okkur mögulegt að afnema þessi gjöld nú þegar.
Viðskiptavinir okkar þurfa því ekki að bíða eftir nýju ári til að
gera hagstæð innkaup fyrir heimilið, heldur geta þeir nú komið í
verslanir ORMSSON um allt land og fengið umtalsvert meira
fyrir peninginn en áður.
EKKI EFTIR NEINU AÐ BÍÐA
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800
ORMSSON.IS
SÍÐUMÚLA 9 · SÍMI 530 2900
SAMSUNGSETRID.IS