Fréttablaðið - 15.10.2014, Page 46

Fréttablaðið - 15.10.2014, Page 46
15. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30 fashion-hugtakið, sem snýst um að gera vöruna persónulega, ekki fjöldaframleidda.“ En hvers vegna skiptir litaval- ið á fötunum þau máli? „Við vilj- um ekki kyngreina börnin með litum. Það virðist vera inngróið í samfélagið að stelpur eigi að vera í bleiku og strákarnir í bláu, sem gerir það að verkum að framboðið af öðru er lítið,“ segir hún. Þau stefna að því að opna net- verslunina á næstunni en byrja með sölu í gegnum Facebook- síðuna Eydalaliljaclothing. „Við ætlum að byrja rólega og hafa fá eintök af hverju. Við stefnum að því að vera með pop up-verslun líka svo ég hvet alla til þess að fylgjast með á Facebook-síðunni okkar,“ segir Guðrún. adda@frettabladid.is Þetta er á „The Strip“ í Las Vegas, á besta stað í borginni. Eldar Ástþórsson. Sex hundruð gestir munu sækja ráðstefnuna EVE-Vegas sem verður haldin á hótelinu Planet Hollywood í borginni Las Vegas um helgina. Hún er haldin fyrir spilara tölvu- leiksins EVE Online í Bandaríkj- unum og kostar miðinn um 24 þús- und krónur. „Þetta er að einhverju leyti svip- að konsept og Fanfestið í Reykja- vík,“ segir Eldar Ástþórsson hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP. „Þetta er ráðstefna en svo tengist skemmt- anahald þessu líka. Það er auðvelt að fljúga til Las Vegas frá eiginlega allri Ameríku og þetta eru spilarar ánægðir með. Þeir geta hist í raun- heimum og rætt ýmis mál varðandi leikinn,“ segir hann. „Síðan erum við með fyrirlestra þar sem við erum að tala um nýjustu viðburði í þróun leiksins, hvað er að gerast í efnahagskerfinu og annað slíkt.“ Eldar segir staðsetningu ráð- stefnunnar vera mjög góða. „Þetta er á „The Strip“ í Las Vegas, á besta stað í borginni.“ Ráðstefnan hefur áður verið haldin í Vegas en þetta verður í fyrsta sinn sem CCP held- ur utan um hana. „Spilararnir sjálf- ir tóku upp á því að halda þetta á sínum tíma en síðustu ár höfum við hjálpað til. Síðan ákváðum við að taka við viðburðinum og það hefur gefið mjög góða raun. Hann hefur stækkað um helming.“ - fb 600 manns sækja EVE-ráðstefnu í Las Vegas Fyrirtækið CCP stendur fyrir viðburði á hótelinu Planet Hollywood um helgina fyrir spilara EVE Online. ELDAR ÁSTÞÓRSSON EVE-ráðstefnan er haldin fyrir spilara tölvuleiksins EVE Online í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Presley og Spicey Tuna á Lemon. Gassi Ólafsson ljósmyndari. BESTI SKYNDIBITINN Guðrúnu Töru Sveinsdóttur fatahönnuði og myndlistarkonu fannst vanta úrval af lífrænum barnafötum á viðráðanlegu verði hér heima, svo hún ákvað að taka málin í sínar hendur. Hún og maður hennar, Gísli Hrafn Magnússon, hafa ákveð- ið að flytja inn barnafatamerkið PurerBaby. Hún segist sjálf ekki hafa viljað vita kynið á sínu barni og þegar hún leitaði að lífrænum fötum í hlutlausum lit var úrvalið ekki mikið. „Við skoðuðum mikið barna- föt á netinu, því okkur langaði að fá lífræn föt fyrir son okkar. Við uppgötvuðum svo merkið Purer- Baby og leist rosalega vel á það og ákváðum að slá til og hefja lítinn innflutning og opna netbúð,“ segir Guðrún. Hún segist hafa kynnst nýrri hlið á fataiðnaðinum þegar hún fór í starfsnám erlendis og það hafi vakið hana til umhugsunar um hvernig föt hún kaupi á sig og barnið sitt. „Við völdum þetta merki því við vildum geta boðið upp á lífræn barnaföt á viðráðan- legu verði. Bómullin í fötunum er ólituð og hefur ekki komist í snert- ingu við eiturefni og þeir sem vinna við að sauma þau fá sóma- samlega greitt fyrir vinnu sína. Merkið er með GOTS-gæðastimp- il, sem er alþjóðleg lífræn og fair- trade gæðavottun,“ segir Guðrún. Ásamt því að bjóða upp á vörur frá PurerBaby er Guðrún að prjóna sokka og smekki úr líf- rænni bómull sem er lituð með náttúrulegum litarefnum. „Ég lærði hjá Jet Korine í Gloriu að lita með náttúrulegum efnum og stefni á að nota þá þekkingu í mína hönn- un. Þetta tengi ég mikið við Slow Selja lífræn barnaföt í hlutlausum litum Hjónin Guðrún Tara Sveinsdóttir og Gísli Hrafn Magnússon opna netverslunina Eydalalilju, sem býður upp á ókynbundin barnaföt úr lífrænum efnum. PUREBABY Guðrún ásamt syni sínum Úlfi Elía Fálka Gíslasyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Teitur Magnússon, söngvari og gít- arleikari hljómsveitarinnar Ojba Rasta, leggur nú lokahönd á fyrstu plötuna sína, Tuttugu og sjö. „Platan öll fór af stað á 27. ald- ursári mínu,“ segir Teitur. „Þetta var ekki beint eitthvað sem ég var búinn að plana heldur er hún kannski ákveðin sönnun á því að maður eigi bara að fylgja flæðinu.“ Teitur gaf út lagið Nenni í fyrra- dag en það var lagið sem lét bolt- ann byrja að rúlla. „Skarphéðinn Bergþóruson frændi minn, grúsk- ari og skáld, benti mér á rúmlega 100 ára gamalt ljóð eftir Benedikt Gröndal, sem birtist held ég aldrei neins staðar opinberlega á sínum tíma. Skarphéðinn hvatti mig til að semja lag við þetta gleymda ljóð. Síðan fóru lögin bara að flæða.“ Þess má geta að Skarphéðinn benti Teiti einnig á ljóðin sem urðu síðar textinn í laginu Hreppstjórinn, með Ojba Rasta. Textarnir á plötunni voru samdir af Teiti og Skarphéðni en Bretinn Mike Lindsay, einn- ig þekktur sem Cheek Mount- ain Thief, tók plötuna upp áður en hann flutti af landi brott. Að sögn Teits eru lögin á plöt- unni fjölbreytt. „Það er verið að styðjast við íslenska texta og dæg- urlagahefð en einhverjum ferskum andblæ er bætt við. Til dæmis fékk ég Samúel Jón Samúelsson til að spila á brasilíska hljóðfærið cuica í einu lagi og Arnljót Sigurðsson úr Ojba Rasta til að spila á hið arabíska saz í öðru. Í Nenni fékk ég Björgvin Gíslason til að spila á sítar og Mike Lindsay til að spila á taisho goto, japanskt þjóðlaga- hljóðfæri. Þetta er suðupottur með áhrifum frá ýmsum stöðum.“ - þij Suðupottur af heims tónlist og íslenskri dægur lagahefð Teitur Magnússon úr hljómsveitinni vinsælu Ojba Rasta leggur lokahönd á fyrstu sólóplötuna. MAÐUR Á AÐ FYLGJA FLÆÐINU Teitur samdi textana á plötunni með Skarphéðni Bergþórusyni skáldi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Það skiptir okkur máli vegna þess að við viljum ekki kyngreina börnin með litum. Vinnan við plötuna fór af stað á 27. aldursári Teits. 27

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.