Fréttablaðið - 23.10.2014, Side 4
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
VINNUVERNDehf
Vinnuvernd ehf.
Brautarholt 28
105 Reykjavík
s: 5780800
www.vinnuvernd.is
vinnuvernd@vinnuvernd.is
EFNAHAGSMÁL Kúa- og sauðfjár-
bændur virðast fá lágmarks-
laun eða minna miðað við búfjár-
reikninga, að því er fram kemur
í nýrri samantekt efnahagsrits-
ins Vísbendingar.
Þá kemur fram að bein-
greiðslur og aðrir styrkir séu
um þriðjungur af tekjum kúa-
bænda og 43 prósent af tekjum
sauðfjárbænda. Ef tekin er með
í reikninginn meðgjöf innflutn-
ingsverndar búvara þá nema
styrkir til kúabúa um 51 prósenti
af tekjum og um 65 prósentum
hjá sauðfjárbúum.
Samkvæmt útreikningum Vís-
bendingar nema mánaðarlaun
mjólkurbóndans um 218 þúsund
krónum á mánuði (með launa-
tengdum gjöldum) en ekki nema
129 þúsund krónum á mánuði hjá
sauðfjárbændum.
„Þetta eru auðvitað mjög
alvarleg tíðindi fyrir bændur og
samfélagið allt. Þessi stétt fær
lágmarkslaun eða minna, en það
getur ekki verið ásættanlegt,“
segir í umfjöllun blaðsins.
Bent er á að heildarstyrkir
til landbúnaðarins, að innflutn-
ingsvernd meðtalinni, séu um
19 milljarðar króna. Þar af séu
útlagðir peningar úr ríkissjóði
liðlega 12 milljarðar. „Þessar
tölur bera það hins vegar með
sér að bændur sem styrktir eru
með þessum hætti lepja dauðann
úr skel.“ Vísbending bendir á að
jafnvel þótt hagnaði sé bætt við
og gert ráð fyrir að hann lendi í
vasa bænda hækki mánaðarlaun
í sauðfjárrækt ekki upp í nema
191 þúsund krónur, en í 342 þús-
und hjá kúabændum.
Velt er upp spurningunni um
hvers vegna andstaða sé jafn-
mikil og raun beri vitni gegn því
að breyta kerfinu, þegar ljóst sé
að neytendur greiði hærra verð
fyrir landbúnaðarvörur en þeir
þyrftu að gera ef innflutningur
væri heimill og að ríkið greiði til
bænda háa styrki sem til dæmis
gætu farið í byggingu spítala. Í
ofanálag séu svo laun bænda lág.
Í umfjöllun Vísbendingar er
bent á að hjá Bændasamtökum
Íslands starfi á fjórða tug starfs-
manna, en auk þeirra séu um 25
búgreinasamtök og fleiri félög
bænda sem sum séu með starfs-
menn á sínum snærum. „Því er
sú hugsun nærtæk að kerfið sé
býsna dýrt og vilji viðhalda sér
sjálft,“ segir í Vísbendingu. „Það
er alþekkt að slíkt gerist oft um
úrelt kerfi sem litlum tilgangi
þjóna lengur.“
Einfalt er sagt að setja fram
áætlun sem opni erlenda mark-
aði markvisst fyrir neytendum
án þess að það snerti þá fjár-
hagslega sem nú stundi land-
búnað. „Styrkirnir eru nú sem
svarar til þrefalds launakostnað-
ar þeirra sem við greinina vinna
og því vel gerlegt að bæði draga
úr ríkisútgjöldum og gera vel við
bændur.“
olikr@frettabladid.is
RÉTTIR Sauðfjárbúskapur er lítt líklegur til þess að bæta hag þeirra sem hann
stunda samkvæmt búfjárreikningum. Laun sauðfjárbænda virðast undir lágmarks-
launum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hagtölur bera með sér að
bændur lepji dauðann úr skel
Styrkir til sauðfjár- og kúabúskapar svara til þrefalds launakostnaðar þeirra sem við greinina vinna. Ný saman-
tekt Vísbendingar á búfjárreikningum sýnir að laun bænda í þessum greinum eru við og undir lágmarkslaunum.
Kúabú Sauðfjárbú
Bútekjur 30.173 9.625
(þar af styrkir) 10.298 4.165
Styrkur sem hlutfall bútekna 34% 43%
Aðrar tekjur 940 432
Framleiðslukostnaður 13.047 3.887
Laun 5.016 1.675
Annar kostnaður 4.321 2.167
Afskriftir 3.655 1.189
Fjármagnskostnaður 2.878 823
Óreglulegar tekjur 656 487
Hagnaður 2.852 803
Afkoma án styrkja -7.446 -3.362
Hlutfall af tekjum -25% -35%
Styrkígildi innflutningsverndar 5.149 2.083
Heildarstyrkir hlutfall 51% 65%
Mánaðarlaun 218 129
Mánaðarlaun með hagnaði 342 191
*Samantekt Vísbendingar (39. tbl.) á tölum Hagstofunnar. Upphæðir eru í þús. kr.
Afkoma meðalbúa árið 2012*
þúsund krónur
eru mánaðar-
laun sauðfj árbænda sam-
kvæmt búreikningum, að
því er fram kemur í nýjasta
tölublaðið efnahagsritsins
Vísbendingar.
129
STJÓRNSÝSLA „Það er rangt. Við
munum borga a.m.k. milljarði
meira fyrir þessa lausn en við
hefðum þurft að gera, samanbor-
ið við ef fyrst hefði verið auglýst
eftir tillögum að lausnum og þær
bestu svo boðnar út,“ segir Dofri
Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Metanorku, um skýringar
Sorpu um að ný gas- og jarðgerð-
arstöð verði boðin út og fyrir-
tækið sé í fullum rétti um fram-
kvæmd málsins.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá hafa Íslenska gámafélagið og
Metanorka kært Sorpu til kæru-
nefndar útboðsmála vegna samn-
ingsgerðar vegna stöðvarinnar.
Dofri segir málið allt stjórn-
sýslufúsk sem muni kosta borg-
arbúa miklu meira en það þyrfti
að gera.
„Stjórnendur Sorpu virðast
hafa fengið ást á þessari Aik-
an-lausn fyrir mörgum árum og
ákveðið að ekki þyrfti að skoða
málið betur. Aðalkostur Aikan
mun vera að geta tekið óflokk-
að sorp. Þó er
stefna sveitar-
félaganna, sem
eiga Sorpu, að
treysta fólki til
að flokka ruslið
sitt. Metanorka
hefur boðið
Sorpu að skoða
aðra lausn, því
við höfum trú
á að fólk geti
og vilji flokka ruslið sitt sjálft í
staðinn fyrir að borga um 40.000
krónum meira á hvert heimili
fyrir lausn sem flokkar fyrir
það.“
Dofri segir að eðlileg stjórn-
sýsla byggðasamlagsins hefði
verið að skilgreina í upphafi þarf-
ir höfuðborgarsvæðisins, auglýsa
svo eftir tillögum að lausnum á
EES-svæðinu, velja þær tillögur
sem best þykja uppfylla fyrir-
framgefin skilyrði og óska loks
eftir tilboðum í þá eða þær lausn-
ir sem koma best út.
- shá
Framkvæmdastjóri Metanorku segir Sorpu velja leið sem kostar heimili tugi þúsunda á ári:
Segir málsmeðferð Sorpu „stjórnsýslufúsk“
FANGELSISMÁL Flestir fangar fá
greitt fæðisfé að upphæð 1.300
krónur á dag.
Þetta kemur fram í svari
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur inn-
anríkisráðherra við fyrirspurn
Helga Hrafns Gunnarssonar,
þingmanns Pírata, um fæðispen-
inga fanga og innkaupastefnu
verslunarinnar Rimlakjara á
Litla-Hrauni. Upphæðin hefur
hækkað um tíu prósent frá því í
október 2007. - ak
Lítil hækkun frá árinu 2007:
Fangar fá 1.300
krónur á dag
LITLA-HRAUN Fangar fá fæðispeninga.
LÖGREGLUMÁL 22 ára karlmað-
ur var dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær í fimm mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
að nef- og kinnbeinsbrjóta annan
mann og að aka bíl sviptur öku-
réttindum undir áhrifum áfengis
og kókaíns.
Maðurinn, sem játaði brot
sín, á nokkurn sakaferil að baki.
Í nóvember í fyrra var hann
dæmdur í sextíu daga fangelsi
fyrir umferðarlaga- og fíkniefna-
brot. Í ljósi játningarinnar og
þess að hann féllst á greiðslu bóta
var fimm mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi talin hæfileg refsing.
Manninum var gert að borga
fórnarlambi sínu 400 þúsund
krónur í skaðabætur. - ktd
Játaði brotin fyrir dómi:
Dæmdur fyrir
líkamsárás
63,6 prósent aukning var á sölu veitinga
og veitingaþjónustu frá 2008 til
2014 ef miðað er við mánuðina maí
og júní.
Fyrra árið var salan þessa mánuði
um sjö milljarðar króna en í ár var
hún tæplega 14,5 milljarðar.
Heimild: Hagstofa Íslands.
DOFRI
HERMANNSSON
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
FREMUR HÆGUR VINDUR hjá okkur næstu tvo daga en síðan vaxandi NA-læg
átt aðfaranótt laugardags. Snjókoma á köflum N-lands en rigning eða slydda S-til.
Úrkomuminna á landinu á föstudaginn og hiti víða rétt um frostmark.
1°
8
m/s
2°
2
m/s
3°
4
m/s
5°
6
m/s
Hæg
breytileg,
en A-læg
5-10 á
Vest-
fj örðum
NA-læg,
10-
18m/s á
annesjum,
annars
hægari
Gildistími korta er um hádegi
12°
26°
11°
15°
28°
6°
8°
12°
12°
29°
16°
24°
24°
23°
18°
13°
13°
12°
2°
4
m/s
2°
6
m/s
0°
2
m/s
1°
5
m/s
0°
3
m/s
1°
3
m/s
-3°
5
m/s
2°
3°
2°
1°
1°
2°
-1°
0°
-3°
-4°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN