Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 69
400 ára afmæli
Hallgríms Péturssonar
Afmælishátíð í Hallgrímskirkju
24. - 31. október 2014
Listvinafélag hallgrímskirkju 32. starfsár - Hallgrímssöfnuður
Aðgangur er ókeypis að öllum viðburðum hátíðarinnar
nema annað sé tekið fram.
Kaffihús til styrktar starfi Listvinafélagsins verður
í suðursal kirkjunnar.
www.listvinafelag.is www.hallgrimskirkja.is
24. október föstudagur
18.00 Afmælishátíð Hallgríms Péturssonar hringd inn
Hörður Áskelsson leikur á klukknaspil Hallgrímskirkju
18.15 Opnun myndlistarsýningar „360 dagar í
Grasagarðinum“
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson sýnir myndlistarverk unnin
sérstaklega í tilefni 400 ára afmælis Hallgríms.
Sýningin samanstendur af um 80 ljósmyndum sem mynda saman
eitt verk sem sprettur upp úr hugleiðingum eða umþenkingum
um líf Hallgríms Péturssonar. Ljósmyndirnar eru allar teknar í
frjósömum bakgarði í Brighton á suðurströnd Englands. Þar er
líf Hallgríms sett í samhengi við þá hringrás náttúrunnar sem
sjá má myndgerast í skrúðgarði á 360 dögum. Þar renna saman
myndir venjulegs skrúðgarðs, Getsemane og Edens, Hallgríms
Péturssonar, Jesú og óbreyttrar mannskepnunnar.
Sýningarstjóri: Þóra Sigurðardóttir.
20.00 Sálmar Hallgríms í nýjum búningi
Brot úr Passíusálmum og öðrum sálmum Hallgríms Péturssonar
og sálmalög, bæði gömul og ný. Flutt verða lög eftir m. a. Sigurð
Sævarsson, Tryggva M. Baldvinsson, Smára Ólason og Kirstínu Ernu
Blöndal.
Flytjendur: Kirstín Erna Blöndal, söngur, Gunnar Gunnarsson, orgel,
Sigtryggur Baldursson, slagverk, Guðmundur Vignir Karlsson -
Kippi Kaninus, raftónlist.
Miðaverð: 2500/1500 kr.
25. október laugardagur
12.00 „Fögnuður“
Orgelinnsetning eftir Wayne Siegel prófessor í raftónlist við
Konunglega tónlistarháskólann í Árósum. Verkið er samið
sérstaklega fyrir Klaisorgelið í Hallgrímskirkju í tilefni af 400
ára afmæli Hallgríms og flutt af tölvu tónskáldsins með aðstoð
veðurgervitungls.
Miðaverð: 2000/1000 kr.
13.15 Mótettukór Hallgrímskirkju flytur kórtónlist tengda
Hallgrími
Mótettukór Hallgrímskirkju sem nýverið vann til fernra
gullverðlauna í alþjóðlegri kórakeppni á Spáni flytur sálma eftir
Hallgrím í búningi íslenskra tónskálda.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
14.00 Hver var Hallgrímur? Málþing á Hallgrímshátíð
Dr. Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor: Hallgrímur og
alþýðan. Rímur til skemmtunar og kvæði ætluð ungum og ófróðum.
Dr. Þórunn Sigurðardóttir bókmenntafræðingur: Hallgrímur
og elítan. Hvað geta kvæði Hallgríms sagt okkur um félagslegt
tengslanet hans?
Dr. Sveinn Yngvi Egilsson prófessor: „Að þínum krossi, Kriste kær,
kem ég sem einn framandi“.
Líkamsmyndir Passíusálma í augum nútímalesanda.
Fyrirspurnir og umræður, Ingibjörg Eyþórsdóttir íslenskufræðingur
kynnir og stýrir umræðum.
15.15 Kaffihlé
16.00 Átta skáld yrkja með Hallgrími
Skáldin frumflytja ljóð sín ort í tilefni 400 ára afmælis Hallgríms:
Dagur Hjartarson
Halla Margrét Jóhannesdóttir
Hrafnhildur Þórhallsdóttir
Magnús Sigurðsson
Ragnar Helgi Ólafsson
Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Snæbjörn Brynjólfsson
Soffía Bjarnadóttir
Kristín Steinsdóttir rithöfundur og dr. Sigurður Árni Þórðarson
völdu skáldin.
„Við strjúkum þitt enni“
Frumflutningur verks eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur skáld og
tónskáldið Oliver Kentish.
Flytjendur: Kammerkórinn Hljómeyki ogBjörn Steinar Sólbergsson
orgelleikari. Stjórnandi er Marta Guðrún Halldórsdóttir. Verkið var
pantað af Tónmenntasjóði kirkjunnar í tilefni af 400 ára afmæli
Hallgríms.
26. október sunnudagur
Vígsludagur Hallgrímskirkju
11.00 Hátíðarmessa. Bein útsending á Rás 1
Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir prédikar, sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson sóknarprestur og sr. Sigurður Pálsson fyrrverandi
sóknarprestur þjóna fyrir altari.
Flytjendur tónlistar: Drengjakór Reykjavíkur–Hallgrímskirkju,
stjórnandi Friðrik S. Kristinsson, Mótettukór Hallgrímskirkju,
Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson
trompetar og Eggert Pálsson pákur, stjórnandi og organisti Hörður
Áskelsson.
Afmælismessukaffi í suðursal að messu lokinni.
14.00 Ensk messa
Sálmar Hallgríms Péturssonar sungnir í enskri þýðingu. Prestur sr.
Bjarni Þór Bjarnason.
17.00 „Passíusálmar“ fyrir söngrödd og orgel eftir Michael
Jón Clarke
Flytjendur: Michael Jón Clarke barítón og Eyþór Ingi Jónsson
orgelleikari.
Tónlistin var frumflutt í Akureyrarkirkju fyrir tveimur árum við
frábærar undirtektir og er væntanleg á geisladiski á næstunni.
Miðaverð: 2500/ 1500 kr.
27. október mánudagur
Hallgrímsdagurinn í Hallgrímskirkju
20.00 Hallgrímsmessa á 340. ártíð Hallgríms Péturssonar
Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Jóni Dalbú Hróbjartssyni sóknarpresti Hallgrímskirkju.
Messan er sungin með gamla Grallaratóninu, svipað og tíðkaðist á
tímum Hallgríms.
Kammerkórinn Schola cantorum syngur, stjórnandi Hörður
Áskelsson, organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
31. október föstudagur
Siðbótardagurinn
13.00–17.00 Siðbótarmaðurinn Hallgrímur – málþing á
siðbótardegi
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor:
„Krossferli að fylgja þínum...“ Eftirfylgd um stef í Passíusálmum
Hallgríms Péturssonar.
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor:
Hallgrímur Pétursson og 23. Davíðssálmur.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur:
Sköpun og blessun í hugvekjum Hallgríms Péturssonar.
Ævar Kjartansson stýrir umræðum að erindum loknum.
Málþingið er samstarfsverkefni Nefndar um fimm alda afmæli
siðbótarinnar 2017 og Listvinafélags Hallgrímskirkju.